Tíminn - 08.06.1975, Síða 16

Tíminn - 08.06.1975, Síða 16
16 TÍMINN Sunnudagur 8. júni 1975 HVAD NU JA CKIE. Það linar ekki sorgina að hún er auð- ugasta ekkja heims? Á hún að taka við stjórn risaútgerðarinnar? Gengur hún i hjónaband í þriðja sinn? Þetta eru spurningar, sem vakna i huga Jackie Onassis. En stærsta og fyrsta viðfangs- efni hennar er að hugga stjúpdóttur sina Christinu, auðugustu stúlku í heimi, og þá sem er sennilega mest einmana. Fjölskylda okkar er talandi dæmi þess að peningar eru ekki sama og hamingja, sagði Christina, 24 ára gömul dóttir skipakóngsins Onassis, eftir að hafa heimsótt hann á banasæng- ina i Paris. HUn og stjúpmóðir hennar Jackie eru rikustu konur i heimi, en milljarðarnir, eignirnar og listaverkin, sem þær eiga, dregur ekki Ur sorginni eftir manninn, sem þær báðar elskuðu meira en allt annað. Hann var einmitt sá eiginmaður, sem Jackie þurfti: Tryggur, rikur og fUs að veita henni það frelsi, sem hUn óskaði sér. Christina átti engan annan að en hann, eftir að bróðir hennar Alexander lézt i flugslysi fyrir tveim árum, og skyndilegt lát móður hennar i fyrra haust. SjUkdómur og andlát Aristo- telesar Onassis færði konurnar tvær nær hvor annarri, en þær höfðu nokkru sinni áður verið. Þær reyndu að hugga hvor aðra við jarðarförina á eynni Scorpio. Onassis var grafinn við hlið sonar sins i litlu kapellunni, þar sem Jackie og hann voru gefin saman næstum 6 1/2 ári áður. Allur heimurinn fylgdist með veikindum Onassis, og nU beinast allra augu að þeim, sem erfa heimsveldi hans. Onassis var meira en forrikur verzlunarmað- ur, hann var lifandi þjóðsaga. Athygli manna beindist ávallt að honum, og þá um leið einnig þeim, sem hann umgekkst. Jackie er vön að vera i sviðsljós- inu og fellur það ekki illa, en Christina á þá ósk heitasta að fá að vera i friði. Einkalif hennar hefur alltaf verið vinsælt efni i blaðagreinar og nU er sorg henn- ar og söknuður á hvers manns vörum. Ekkert verkefni er nU mikilvægara fyrir Jackie en að hugga stjUpdótturina á erfiðum timum. Hann vildi ekki lifa leng- ur Þær vöktu vikum saman við sjUkrabeð Onassis, en örlög réðu þvi að Jackie var fjarri þegar hann lézt. Dóttirin Christina var þar ein, og við hana sagði hann sin hinztu orð. Jackie var i New York með börnum sínum, Caro- line og John. HUn var komin þangað fyrir fjórum dögum, þeg- > < Jackie og Christina vöktu vik- um saman. en Christina var ein viðstödd þegar Onassis iézt. ar hringt var i hana og henni til- kynnt láteiginmanns hennar. Það var henni áfall, þvi að fáeinum tlmum áður hafði hUn hringt á sjUkrahUsið og var þá sagt að allt væri i lagi. HUn var meira að segja farin að vona að hann væri á batavegi. Andlit hennar var mótað sorg og örvæntingu þegar hUn kom til sjUkrahUssins á sunnudags- morgni að kistu Onassis. HUn hefur sagt við vini sina að hUn kæmi aldrei til með að fyrirgefa sjálfri sér að hafa ekki verið hjá honum þegar hann dó. Vikum saman hafði hún verið við hlið hans dag sem nótt, og svo dó hann án þess að þau gætu kvaðzt. 1 fyrra skiptið sem hún varð ekkja, kom dauðinn einnig að óvörum. Þegar John Kennedy forseti var skotinn, féll hann i fang henni og lézt stuttu seinna án þess að kom- ast til meðvitundar. Siðustu mánuðina áður en Onassis lagðist á sjUkrahúsið 6. febrúar s.l. varð hann sifellt meira veikburða og merktur sjúkdómi. Hann gekk óstuddur inn á sjUkrahúsið, en myndir sýna að þar fór dauðvona maður, sem af viljastyrk einum saman gekk siðustu skrefin að sjUkrarúminu, sem honum átti ekki að auðnast að risa upp Ur aftur. — Allt verður að reyna til að bjarga lifi mannsins mins, sagði Jackie og kvaddi til sérfræðinga. SjUkdómsgreiningin var: Veilt hjarta, vöðvarýrnun, gula og e.t.v. illkyjnaður lifrarsjúkdóm- ur, vottur af lungnabólgu, and- þrengsli og bráður gallsjUkdóm- ur. Siðustu mánuðina hafði hann létzt um 14 kiló. En þetta voru ytri einkenni sjúkdómsins. 1 raun og veru hafði Onassis verið „lifandi dáinn” sfð- an einkasonur hans og erfingi Alexander, sem nU væri 27 ára ef hann lifði, fórst i flugslysi 23. janúar 1973. — Þegar Alexander dó, fjaraði liflöngun Onassis Ut, segja vinir hans. Honum fannst lifið ekki hafa neinn tilgang lengur. Enginn var til að taka við þvf sem hann hafði stritað við að byggja upp. Oft sagði hann, að hann hefði enga ánægju af að lifa og hann vildi gjarnan deyja. Ást og umhyggja dóttur og eiginkonu dugði ekki til að rifa hann upp Ur þunglyndinu, sem kom yfir hann við sviplegt lát sonarins. Siðustu árin sýndi hann fyrirtæki sinu litinn áhuga miðað viö það sem hann hefði gert áður. Að visu fór Christina til náms i skrifstofu hans i' New York, en hún hefur aldrei sýnt sömu hæfi- leika til viðskipta og bróðir henn- ar. En sagt var um Alexander að hann væri jafnvel meiri fjárafla- maður en faðirinn. Jackie var honum stöðu- tákn Konur gegndu ávallt mikilvæg- um hlutverkum i lifi útgerðarjöf- ursins. Hann dáði þær og þær hann — Enginn, sem kynnist Ara, kemst hjá að hrifast af honum, sagði Jackie eitt sinn. Onassis var yfir fertugt þegar hann giftist Tinu, 17 ára gamla dóttur Livanosar, forríks grisks skipaeiganda. Þau eignuðust tvö börn og allt virtist leika i lyndi. En þá gekk Maria Callas óperu- söngkona inn á sviðið, og Tina dró sig i hlé og giftist enskum aðals- manni, en Onassis og Callas áttu saman stromasamt ástarævin- týri. Þau giftust aldrei. Onassis fór ekki að hugsa um hjónaband á ný fyrr en hann fékk áhuga á ekkju Bandarikjaforseta. Hann vildi eignast Jackie og vissi að ekki þýddi að bjóða henni annað en hjónaband. Fyrir hvorugu þeirra var þetta stóra ástin. HUn var leið á að vera tilbeðin eins og dýrlingur í Bandarikjunum, og Onassis var i hennar augum sá maður, sem gat veitt henni fjárhagslegt og tilfinningalegt öryggi, sem hún þarfnaðist. Hann var lika fús til að gefa henni tals- vert frelsi. Hann skipti sér ekki af hvar hún var eða með hverjum, svo lengi sem hún hélt sig innan vissra marka. Hann, griski fátæki drengurinn, sem hafði unnið sig upp i að verða auðugasti skipaeigandi heims, átti allt, nema konu sem hann gat verið stoltur af. Að ganga að eiga ekkju hins látna Kennedys for- seta væri geysilegt skref upp á við i þjóðfélagsstiganum. Hjónaband þeirra opnaði dyr, sem áður höfðu verið honum lokaðar. Hjónaband þeirra vakti griðar- lega athygli, og þvi var spáð skammlifi. Fyrstu árin gekk það e.t.v. ekki of vel, en þegar Jackie varð ekkja eftir næstum 6 1/2 árs hjónaband, felldi hún ósvikin tár við gröf manns sins. Hægt og örugglega þróaðist gagnkvæm virðing þeirra á milli og hlýtt ástarsamband. Við og við komu myndir f blöðum, sem báru vott þeirri umhyggju og ást, sem þau báru i brjósti hvort i hins garð.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.