Tíminn - 08.06.1975, Side 17
Sunnudagur 8. júni 1975
TÍMINN
17
Peter Goulandris (t.v.) var mesta stoö Christinu I veikindum fööur hennar. Hann
huggaöi hana einnig eftir lát móöur hennar og vinir þeirra telja aö þau muni gifta
sig innan skamms.
Onassis var yfir fertugt þegar hann giftist Tinu
Livanos.
Ástasamband Onassis og Mariu Callas stóö i
tiu ár.
Til hvers ætlar svo Jackie að
nota öll auðævin? Hún heldur
eflaust áfram að ferðast, og tæp-
ast missir hún áhugann á föstum
og listum. En hún gerir sér engar
gyllivonir um að auðæfin færi
henni hamingju. Flestir álita að
hún muni hafa aðalbækistöðvar
sinar i Paris, borginni, sem er
henni hjartkærust. Jackie hefur
aldrei haft vit á viðskiptum, svo
þeir sem nú stjórna alheimsfyrir-
tæki Onassis fá trúlega að vinna i
friði áfram. Jackie er aðeins 45
ára og enn fögur og aðlaðandi
kona, svo taka verður með i
reikninginn þann möguleika að
hún giftist aftur. En það yrði þá
að vera alveg sérstakur maður, ef
hann á að geta fyllt skarðið, sem
varð við lát Onassis.
En burtséð frá þvi hve mikla
samúð menn hafa með Jackie, þá
verðskuldar Christina mesta
meðaumkun, 24 ára hefur hún
misst alla nána ættingja sina. Á
tveim árum hefur hún misst
bróður sinn, móður sina og föður
sinn. Tvftug gekk hún i misheppn-
að hjónaband með 27 árum eldri
manni, og i ágúst i fyrra voru
vandamál hennar orðin svo mikil
að hún reyndi að svipta sig lifi.
Christina hefur átt marga karl-
menn að vinum, en nú litur út
fyrir að hún ætli að setjast i helg-
an stein með Peter Goulandris
þritugum syni grisks útgerðar-
manns. Hann studdi hana eftir
sorglegt fráfall móður hennar,
þau fögnuðu nýju ári saman, og
hann huggaði hana og hughreysti
þegar faðir hennar lá á bana-
sænginni. Hann er tengdasonur
sem væri alveg Onassis að skapi
og hann hefði samþykkt ráðahag-
inn.
— Ég vil fá mann, sem elskar
mig sjálfrar min vegna, en ekki
vegna peninganna, hefur
Christina sagt, — það gerir Peter,
þvi hann á meira en nóg af
peningum sjálfur.
Auðurinn hefur ekki fært
Christinu hamingju, og hún er oft
Jackie hafði með sér dóttur og
son i hjónabandið og milli þeirra
og stjúpföðurins var ágætt sam-
band. Um tima var sagt að
Onassis ætlaði að gera John að
erfingja sinum, en honum hlýtur
að hafa snúizt hugur, þvi að það
var ekki nefnt einu orði i erfða-
skránni.
Tengdasonur að skapi
Onassis
Erfðaskráin. — Erfðauppgjörið
verður ekki auðvelt, þótt Jackie
og Christina séu beztu vinkonur,
og Onassis hafi látið eftir sig itar-
lega erfðaskrá. Fáir hafa yfirsýn
yfir um hve mikil auðævi er
þama að ræða, en vist er að þau
nema mörgum milljörðum. Þeg-
ar Onassis hafði samið erfða-
skrána lét hann geyma hana i
bankahólfi i Sviss. Eignir hans
voru skip, fasteignir, listaverk,
demantar, verðbréf og reiðufé.
Auðnum verður skipt að jöfnu
milli Jackie og Christinu. Faðir-
inn arfleiddi hana að 40 milljörð-
um en hún fær ekki alla pening-
ana fyrr en hún er orðin 35 ára.
Auk þess fær hún lystisnekkj-
una Christinu, sem heitir eftir
henni, eyna Scorpio i Egeahafi,
lúxusvillu i Aþenu og nokkrar
dýrmætar eyjur aðrar.
Erfðahluti Jackie er einnig 40
milljarðar ísl. króna, svo hún er
örugglega heimsins rlkasta
ekkja. Hún fær mikið af verðbréf-
um, 14 herbergja ibúð við Avenue
Foch i Paris. Höll i Suður Frakk-
landi, skýjakljúfinn „Olympic
Tower” i New York (en þangað
ætlar hún að flytja á næstunni)
stórt landsvæði I Mexikó nálægt
Acapulco. Hluta af peningunum á
hún að deila með börnunum, en
þau fá ekki sitt fyrr en þau eru
orðin þritug. 70 milljónir koma i
hlut Mariu Callas, en hvort hún
þiggur þær, er eftir að vita.
Onassis var dauöans matur þegar hann lagöist á sjúkrahúsiö i
Paris.
kölluð rikasta og óhamingjusam-
astastúlka iheiminum. Svo mikið
er vist, að hún á nú erfiða daga,
og öll huggun og umhyggja, sem
stjúpmóðir hennar getur veitt
henni er kærkomin.
Christina varö nátengdari fööur sinum eftir lát Alexanders bróöur
sins.
Þegar Onassis missti soninn Alexander glataöi hann lifslönguninni.
Allur heimurinn undraöist þegar ekkja Bandarikjaforseta giftist Onassis I október 1968.
Skynsemishjónaband varö aö hlýju ástarsambandi.