Tíminn - 08.06.1975, Blaðsíða 24
24
TÍMINN
Sunnudagur 8. júnl 1975
Höfundur: David Morrell
Blóðugur
hildarleikur
40
ingslega runnana. Þeir skutu á stað, þar sem önnur kúla
hafði snert laufgreinarnar og komið þeim á hreyfingu,
rétt eins og þar væri einhver á ferð. Nokkrir voru að
hlaða rifflana og ætluðu enn að byrja að skjóta. Flestir
voru þegar byrjaðir. Riff larnir voru af ýmsum gerðum.
Winchester, Springfield, Remington, AAarlin, Savage.
AAismunandi kalibör, 270, 300, 30.06, og 30-30. Skotlokur
og tæmarar, mismunandi magasín, sem rúmuðu ýmist
sex, sjö eða níu skothleðslur. Tóm skothylkin voru á víð
og dreif. Þeim fjölgaði sífellt. Orval hélt síðasta hundin-
um sínum kyrrum og hrópaði. — Hættið. Teasle reis upp
úr skorunni. Hann hnipraði sig saman eins og hann ætl-
aði að stökkva. Æðarnar á hnakka hans tútnuðu þegar
hann hrópaði:
— Andskotinn. Ég sagði ykkur að hætta. Sá næsti, sem
hleypir af skoti missir tveggja daga kaup.
Það hreif. Sumir höfðu ekki enn hlaðið í annað sinn.
Hinum tókst einhvern veginn að halda aftur af sér. Þeir
voru spenntir, rifflarnir við öxl þeirra, fingurnir á
gikknum og þeir voru ákaf ir í að byrja aftur skothríðina.
Þá dró ský fyrir sólu og þeir jöfnuðu sig. Þeir önduðu að
sér, kyngdu og lögðu riff lana frá sér með trega. Svolítil
gola blésog bærði mjúklega skógarlauf ið. — Jesús, sagði
Singleton. Vangar hans voru fölir, strengdir eins og á
trommu. Ward lét sig síga af olnbogunum niður á mag-
ann. Hann sleikti munnvikin. — Jesús, það er rétta orðið.
— Aldrei verið svona hræddur, muldraði einhver hvað
eftir annað.
Teasle leit í kring um sig og sá, að þetta var ungi lög-
reglumaðurinn.
— Hvaða lykt er þetta? spurði Lester.
— Aldrei verið svona hræddur.
— Hann. Lyktin er af honum.
— Buxurnar mínar. Ég...
— Láttu hann eiga sig, sagði Teasle.
Skýið, sem hulið hafði sólina sveif mjúkleaa fram hiá
henni. Heitir geislar hennar skinu aftur á hann. Teasle
leit til sólarinnar, sem var lágt yf ir dalnum. Teasle sá að
stærra ský nálgaðist og að baki því var himinninn þakinn
svörtum og þrútnum skýjum. Hann hneppti svitastork-
inni skyrtu sinni frá brjóstinu. Hún var sem límd við
hann, svo hann hreyfði ekki við henni, en vonaði að tæki
að rigna. Það myndi að minnsta kosti kæla allt.
Við hlið sér heyrði hann Lester tala um unga lögreglu-
manninn. — Ég veit hann réð ekki við það, en Jesús
minn, hvílík lykt.
— Aldrei verið svona hræddur.
— Láttu hann vera, sagði Teasle og horfði enn á skýin.
— Vill einhver veðja um hvort við hittum gaurinn áð-
an? sagði AAitch.
— Er einhver slasaður. Er allt í lagi með ykkur, spurði
Ward.
— Auðvitað. Allir eru hressir og kátir, sagði Lester.
Teasle leit hvasst á hann.Gettu betur. Við erum aðeins
níu. Jeremy hrapaði niður klettana.
— Þrír hundanna minna fóru með honum og tveir aðrir
skotnir til bana, sagði Orval. Rödd hans var tilbreyt-
ingarlaus eins og í vél. Hún var svo einkennileg, að allir
sneru sér að honum. — Fimm. Allir dauðir. Andlit hans
var sementsgrátt.
— AAér þykir þetta leitt, Orval, sagði Teasle.
— Þú mátt svei mér segja það. Þessi andskotans vit-
leysishugmynd er frá þér komin. Þú gazt ekki beðið og
afhent ríkislögreglunni málið.
Síðasti hundurinn skalf á lærunum og ýlfraði.
— Svona svona, sagði Orval og strauk honum mjúklega
um bakið um leið og hann gaut augunum á hundana tvo,
sem lágu dauðir við klettabrúnina, gegn um gleraugun
sín. — Við jöfnum sakirnar. Vertu rólegur. Ef hann er
enn á líf i þarna niðri skulum við jaf na sakirnar. Svo leit
hann á Teasle og röddin hækkaði. — Þú gazt ekki beðið
þess, að andskotans ríkislögreglan tæki við. Var það?
AAennirnir litu á Teasle og biðu svars. Hann bærði var-
irnar, en ekkert hljóð heyrðist.
— Hvað þá? sagði Orval. — Jesús — ef þú hefur eitt-
hvaðað segja þá skaltu tala hátt og snjallt eins og manni
sæmir.
— Ég sagði, að enginn neyddi þig til að koma. Þú
skemmtir þér dável við að sanna okkur að þú værir gam-
all harðjaxl. Þú hljópst langt á undan öllum. Þú klif raðir
upp klettaskoruna til að fjarlægja grjóthnullunginn og
sanna hversu slyngur þú værir. Það er þér að kenna að
hundarnir voru skotnir. Fyrst þú veizt svona mikið, þá
hefðir þú átt að halda þeim frá klettabrúninni.
Orval skalf af reiði. Teasle óskaði, að hann hefði ekki
sagt þetta. Hann starði niður á jörðina. Það var ekki rétt
af honum að hæðast af þörf Orvals til að gera betur en
aðrir. Hann hafði svo sem verið nógu þakklátur þegar
Orval áttaði sig á því hvernig bezt væri að losa steininn.
Hann hafði klifrað upp og bundið kaðal um steininn. Svo
sagði hann mönnunum að toga í hinn endann á meðan
hann beitti þykkri trjágrein til að hræra steininn. Hann
Þarna hafa þeir^/ ^fíý'
fariömeö \ E{J*
vagn þinn /V ^eKK1
yfir Geiri. /Xt:
Við veröum aö i Ná honum? Hvernie?
ná honum J I tlu ár hafa borgar-
^ódysseifur. f\ múrarnir veriö okkur
^ ' \ lokaðir.
Þá verö ég ) Núna hafa
fastur y Troju-búar ,
hér. _/komið vagninum
<7\til borgarinnar.
D
R
E
K
I
K
o
U
B
B
U
R
Ferö þú til ^Nei, fyrst ætla
Dlönu? ég aö breyta
,um lifnaöar
^jnætti, vita hvort
! get þaö^>
SUNNUDAGUR
8. júní
8.00 Morgunandakt. Herra
Sigurbjörn Einarsson bisk-
up flytur ritningarorð og
bæn.
8.10 Fréttir og veöurfregnir.
8.15 Létt morgunlög.
9.00 Fréttir. tJtdráttur úr
forustugreinum dagblað-
anna.
9.15 Morguntónleikar. (10.10
Veðurfregnir). a. Sinfónia
Concertante fyrir tvær
flautur og hljómsveit eftir
Domenico Cimarosa. Ars
Viva hljómsveitin leikur,
Hermann Scherchen stjórn-
ar. b. Sónata i A-dúr eftir
Antonio Diabelli. Julian
Bream leikur á gítar. c.
Partita nr. 1 i B-dúr eftir Jo-
hann Sebastian Bach. Jörg
Demus leikur á pianó. d.
Fiðlukonsert i a-moll op. 53
eftir Antonin Ðvorák. Josef
Suk og Tékkneska Fil-
harmoniusveitin leika,
Karel Ancerl stjórnar.
11.00 Messa I Bústaðakirkju.
12.15 Dagskráin. Tónleikar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.20 Dapur heimspekingur
meö sál.Gisli J. Astþórsson
rithöfundur les þátt úr bók
sinni, „Hlýjum hjartarót-
um”.
13.40 Harmonikulög. Horst
Wende og félagar leika.
14.00 Staldraö viö á Biöndu-
ósi: — fyrsti þáttur. Jónas
Jónasson . litast um og
spjallar viö fólk.
15.00 Miðdegistónleikar: Frá
Suöur-þýzka útvarpinu i
Stuttgart. Sinfóniuhljóm-
sveit Suður-þýzka útvarps-
ins leikur, Sergiu Celi-
bidache stjórnar. — Kynnir:
Guðmundur Gilsson. a.
„Koss álfkonunnar”, ball-
ettsvita eftir Stravinsky. b.
Sinfónia nr. 4 i e-moll op. 98
eftir Brahms.
16.15 Veðurfregnir. Fréttir.
16.25 Alltaf á sunnudögum.
Svavar Gests sér um þátt-
inn.
17.15 Barnatimi: Eirikur
Stefánsson stjórnar. Spjall-
að við Tryggva Tryggvason,
sem syngur nokkur lög á-
samt félögum sinum. —
Svava Fells les ævintýri.
18.00 Stundarkorn með tenór-
söngvaranum Peter Pears.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.25 Úr handraðanum.
Sverrir Kjartansson annast
þáttinn.
20.00 íslenzk kammertónlist.
Flytjendur: Egill Jónsson,
Ólafur Vignir Albertsson,
Gisli Magnússon, Björn
Ólafsson og Jón Nordal. a.
Klarinettusónata eftir
Gunnar Reyni Sveinsson. b.
Pianósónata eftir Arna
Björnsson. c. Fiðlusónata
eftir Jón Nordal.
20.35 Frá árdegi til ævikvölds.
Nokkur brot um konuna i is-
lenzkum bókmenntum.
Þriðji þáttur: „Hin tvi-
eina”. Gunnar Valdimars-
son tekur saman þáttinn.
Flytjendur auk hans: Helga
Hjörvar, Grimur M. Helga-
son, Clfur Hjörvar og Þor-
björg Valdimarsdóttir.
21.30 Frá samsöng Karlakórs
Reykjavikur i Iláskólabiói i
fyrra mánuði. Einsöngvari:
Hreinn Lindal. Undirleikar-
ar: Blásarakvintett og
Kristin ólafsdóttir. Stjórn-
andi: Páll P. Pálsson. Kór-
inn syngur lög eftir Björg-
vin Guömundsson, Hallgrim
Helgason, Pál Isólfsson og
Emil Thoroddsen.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Danslög.
Hulda Björnsdóttir dans-
kennari velur lögin.
23.25 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
AAÁNUDAGUR
9. júní
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunlcikfimi kl. 7.15 og
9.05: Valdimar örnólfsson