Tíminn - 22.06.1975, Page 11
Sunnudagur 22. júni 1975.
TÍMINN
11
Frá
aðalfundi
SÍS:
Framleiðni í landbúnaði
hefur verið gífurleg...
MEÐAL fulltrúa á aðalfundi StS,
sem haldinn var á dögunum að
Bifröst I Borgarfirði, var Sigurjón
Jónasson, bóndi á Skörðugili I
Skagafirði. Sat hann fundinn fyrir
kaupfélag sitt, og I fundarhléi
hittum við hann að máli til að for-
vitnast um hag og tiðindi kaupfé-
lagsins og fundarstörfin. Hann
hafði þetta að segja:
— Aðalfundi Kaupfélags Skag-
firðinga er lokið i ár. Afkoma fé-
lagsins var ekki góð, þvi endar
náðu ekki saman, og þvi var ekki
unnt að greiöa arð að þessu sinni,
en það hefur ekki gerzt svo lengi
að ég man. Hins vegar var unnt
að afskrifa á venjulegan hátt.
Hafa staðið i
framkvæmdum
Kaupfélagið hefur staðið i mjög
miklum framkvæmdum að
undanförnu. Við erum að byggja
nýtt sláturhús, eða réttara sagt
endurbyggja sláturhúsið og færa
það i nýtizkulegra horf. Talið er
að húsið muni kosta um 200
milljónir króna. Þetta er færi-
bandahús, eins og núna eru viða
að ryðja sér til rúms. Upphaflega
átti þessi framkvæmd að kosta
um 40 milljónir króna, en mun að
likindum kosta um 200 milljónir,
eins og áður sagði.
Afköstin hafa
tvöfaldazt
Þá var mjólkursamlagið
endurnýjað frá grunni, eða vél-
búnaður þess. Þetta er i þriðja
sinn, sem við endurnýjum það.
Mjólkursamlagið var byggt á ár-
unum kringum 1936, og siðan
endurbyggt fyrir alllöngu, og svo
núna var velbúnaður þess endur-
nýjaður. Vélbúnaðurinn var
keyptur frá Sviþjóð— Alfa —
Laval — og við þessa breytingu
tvöfaldaðist afkastageta sam-
lagsins.
Með fyrri vélbúnaði gátum við
unnið 5000 litra af m jólk á klukku-
stund, en núna er unnt að vinna
10.000 litra á klukkustund.
Innvegin mjólk á siðasta ári
var 9.3 milljónir kilóa og jókst um
3,4%, sem er aðeins meira en
landsmeðaltalið.
A siðasta ári slátruðum við
63.000 fjár, sem er umtalsverð
aukning. Sláturhúsum hefur
fækkað i Skagafirði, og er slátrun
nú á einni hendi. Fastir starfs-
menn hjá kaupfélaginu eru nú 166
talsins, en 859 komust á launa-
skrá hjá félaginu á árinu.
Heildarlaunagreiðslur voru 271
milljónir króna, ef mað eru talin
launaskyld gjöld, ásamt að-
keyptri þjónustu.
Heildarveltan
1572 milljónir
— Hver var heildarveltan?
— Hún var 1572 milljónir
króna, hafði aukizt um 50%, en
var 1049 milljónir króna á árinu á
undan.
— En svo vikið sé að kaupfé-
laginu: hve margir eru félags-
mennirnir — og deildirnar?
— Félagsmenn i kaupfélaginu
eru 1354 og starfa i 10 félagsdeild-
um. Félagssvæðið er Skagafjörð-
ur, að undanskildum Fljótunum,
þar sem er sérstakt félag, Sam-
vinnufélag Fljótamanna.
— En hvað er að frétta af bú-
skap — hvernig var veturinn?
— Hann var erfiður um margt,
og mjög gjafafrekur, þótt naum-
ast væri hægt að kalla þetta harð-
indi. Samgöngur gengu yfirleitt
vel, a.m.k. þar sem ég bý.
Hagur bænda var ef til vill mis-
jafn, en skuldir þeirra jukust á
árinu sem leið, og segir það ef til
vill söguna skilmerkilegast. Þvi
er nú verr. Þetta er þó ekki svo
undarlegt, þar eð gifurlegar
hækkanir hafa orðið á ýmsum
rekstrarvörum og eiginlega á öll-
um sviðum.
Afkoma bænda
Nægir þar að nefna oliuhækk-
unina og rafmagnshækkunina, en
fleira mætti nefna. Nú, svo kemur
áburðarhækkunin núna.
Segja má, að þessar hækkanir
komi við öll heimili i landinu, og
þær eru ástæðan fyrir verri stöðu
bænda. Hækkanir á afurðum bú-
anna hafa ekki orðið i neinu hlut-
falli við þennan tilkostnað.
Þess má lika geta, að allar
gengisfellingar koma hart niður á
bændastéttinni, þvi þær verka svo
mikið aftur fyrir sig.
— Nú Itefur verið dálitil um-
ræða um styrki til landbúnaðar-
ins. Ilver eru viðhorf bæuda til
þessarar umræðu?
— Ég get nú varla talað fyrir
munn allra bænda. En hvað sjálf-
um mér við kemur, þá finnst mér,
að margt af þvi, sem sagt hefur
verið i þvi sambandi hafi verið
illa grundað. Ef litið er til grann-
þjóða okkar á Norðurlöndum, t.d.
i Noregi, þá eru landbúnaðar-
styrkir ekki minni þar, þótt bú-
skaparskilyrði séu betri en hér.
Norðmenn verða að leggja gifur-
legt fé með framleiðslu bænda hjá
sér. Eina raunhæfa svarið við
þenslu á öllum sviðum er að
reyna að stækka búin og auka
hagkvæmnina. Framleiðni i land-
búnaði hefur verið gifurleg —
ótrúleg á sumum sviðum — og
það er liklega eina ráðið til þess
að halda hlutunum i horfinu.
JG
Útboð
Óskað er eftir tilboðum i efni i flugskýli, er
reist verður á Reykjavikurflugvelli.
útboðsgögn verða afhent á skrifstofu
minni, Reykjavikurflugvelli.
Tilboðum sé skilað á sama stað fyrir kl. 12
á hádegi, föstudaginn 25. júli n.k.
Flugmáiastjórinn,
Agnar Kofoed-Hansen.
Rafgæzlumaður
Rafmagnsveitur rikisins óska að ráða raf-
gæslumann með aðsetri á Breiðdalsvik.
Umsóknir sendist til rafveitustjórans á
Austurlandi Selási 8, Egilsstaðakauptúni
eða til Rafmagnsveitna rikisins, Lauga-
vegi 116, Reykjavik.
Rætt við
Sigurjón
Jónasson
fró Syðra-
Skörðugili
um kaup-
félagsmól
og búskap
í Skagafirði
MönusTA sunnu vh>
PJÖIÍHVIDUPÓIH
CORAL ÍBÚÐIR - MALLORKA
^■■■■■■^■■■■^■■■■■■■■■■■■■^■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•■■■■■■■■■■■■■B
Rosnogoe/ki í
IMú hefur Sunna tekið upp þá nýbreytni að gefa barnafjölskyldum
sérstaklega góð kjör á Mallorkaferðum, með dvöl í íbúðum, þar sem 1.
flokks aðstæður eru til sólbaðs og sunds. Stört útivistarsvæði, fagurt
utsýni, hreinlegar og góðar íbúðir, fyrir 4—7 manna fjölskyldur. Stutt
í fjölbreytt og skemmtilegt verslana-, veitinga- og skemmtistaða-
hverfi. Skammt að fara með börnin á leiksvæði, skóglendi og
fjölbreytt sædýrasafn MARIIMLAND.
Sunna býður þá þjónustu, sem enginn hefur áður gert; íslensk stúlka
annast barnagæslu, aðeins fyrir Sunnugesti á þessum stað. Og okkur
hefur nú tekist að fá 11 íbúðir til viðbótar á þessum eftirsótta stað og
getum því fullnægt bókunum.
FERÐASKRIFSTOFAN SUNNA
Lækjargötu 2 súnar 16400 12070