Tíminn - 22.06.1975, Síða 26
26
TÍMINN
Sunnudagur 22. júni 197S.
Frægasta
leikkona
heims
Liv Ullmann er likt við Grétu Garbo,
hún er kölluð mesta leikkona nú á dögum.
Frumraun hennar á Broadway sem Nóra i
Brúðuheimilinu hlaut frábæra gagnrýni.
Blaðamenn sitja um hana, svo hún varð að
flytja af hótelinu, sem hún bjó á til að fá
vinnufrið. Þegar þessi grein var skrifuð
átti hún að fara að leika i nýrri Berg-
mannsmynd i Stokkhólmi viku siðar.
Nora yfirgefur brúöuheimiliö: Liv Ullmann og Sam Waterston (hann lék Nick I Great Gatsby)
Þennan hvassviörisdag i New
York á mótum 64. götu og Broad-
way, hefði enginn þekkt hana þar
sem hún kom aðvifandi klædd i
siðbuxur, refaskinnsjakka, með
dökk gleraugu og rauða prjóna-
húfu. Þetta var óþekkt kona á
götu i 10 milljón manna borg.
Engum kemur til hugar að hér
sé hún á ferð á leið á síðdegissýn-
ingu i Vivian Beaumount leik-
húsinu. Einmana rithandasafnari
tók ekki einu sinni eftir komu
hennar.
Þetta er Liv Ullmann, leikkon-
an, sem allur heimurinn talar
um. Henni er likt við Grétu
Garbo, Marlon Brando og Kat-
herine Hepburn. Enginn leikari
hefur náð annarri eins frægð og
hún siðustu ár. Leikhúsgagnrýn-
endur New York borgar kné-
krjúpa henni allir, og kalla hana
mestu leikkonuna nú. ísblá augu
hennar blasa við milljónum
manna á forsiðu fréttatimaritsins
Newsweek og inni i blaðinu er
grein um „Hvernig Liv sigrar
alla”. Hún er fyrsti Norðmaður-
inn, sem Newsweek gerir svo vel
viö, en Liv hefur lifað slikt áður.
Fyrir tveim árum var svipuð for-
siðugrein um hana i Time, sem
nær til enn fleiri lesenda.
Hún á eftir að leika i eina viku
sem gestur i Vivian Beaumount
leikhúsinu, en leikur hennar i
Brúðuheimilinu er mjög liklega
mesti leiksigur, sem unninn hefur
veriö i Lincoln Center i sigildum
verkum. Það ótrúlega átti sér
stað — þegar það fréttist að leik-
húskonungurinn Joseph Papp
hefði tryggt sér Liv Ullmann i
hlutverk Nóru, myndaðist strax
röð við miðasöluna. Þegar æfing-
ar voru að hefjast var uppselt á
allar sýningar i 40 daga. 75.000
mannshafa séð hana leika þessar
sex vikur, 25.000 urðu frá að
hverfa. Ekki slæmt þegar haft er i
huga að fyrir 17-18 árum stóð hún
útifyrir Leikhússkólanum i Osló
og grét — þvi stjórn skólans taldi
hana skorta hæfileika.
Elt á röndum
Gagnrýnendur segja ,,Hún af-
hjúpar Nóru, rós sem blómstrar
eftir langan vetur”....,,Ullmann
skapar Nóru með látlausum hæfi
leikum sinum...”, „sýning sem
býr yfir siðferðisstyrk...”
Blaðamenn i New York elta
hana á röndum. Hún flutti úr
Pierre hótelinu á Manhattan og
leitaði hælis i Ibúð nálægt Central
Park.
Þegar ég ræði við hana i bún-
ingsherbergi i Vivian Beaumont
leikhúsinu, er hún að koma úr
sturtu, eftir að hafa leikið Nóru i
þrjá ldukkutfma. Roy Helland,
sem er af norskum ættum, er að
greiða henni fyrir næstu sýningu
eftir tvo tima.
Kvöldið 20. apríl kveður hún
Broadway og áhorfendaskarann,
sem þar hefur hyllt hana. Hún
hefur „verið” Nóra i sex vikur,
gert hana að hluta af sér. Hún lýs-
ir Nóru eins og sjálfri sér: Ég fer
af þvi að ég hef uppgötvað sjálfa
mig, hvað ég ætti að vera...
En Nóra hverfur úr hug henni
þegar tjaldið fellur að loknu
Brúðuheimilinu i Beaumountleik-
húsinu.
„Erfiðasta hlutverkið,
sem ég hef leikið”
Næsta kvöld flýgur hún til
Stokkhólms og Ingmars Berg-
mann og verður ný kona — kona,
sem ætlar að fremja sjálfsmorð.
Hún kemur mátulega til að reyna
búningana I „Andliti til andlitis”,
eins og nýja sjónvarpsmyndin
eftir Ingmar Bergmann á að
heita. Liv leikur sálfræðing, sem
reynir að fremja sjálfsmorð — og
verður að byggja upp nýtt lif — á
taugadeild. — Erfiðasta hlutverk,
sem ég hef fengið, segir hún. Áður
taldi hún hlutverk sitt i kvik-
myndinni Persóna erfiðast — hún
sagði ekki eitt einasta orð i hlut-
verki leikkonunnar frægu, sem
hafði útilokað sig frá umheimin-
um.
Liv hefur aldrei fengið fleiri
hlutverk, en þetta ár, sem hún
hefur fengið verðlaun gagnrýn-
enda i New York fyrir Atriði úr
hjónabandi, sem sýnd hefur verið
i 23 vikur i kvikmyndahúsum i
Bandarikjunum og aflað 400
milljóna króna hið minnsta.
Erland Josephson og Liv sýndu
sinn bezta leik, og fólk fann það.
Þannig erum við, þannig eða
ekki.
Eftir „Andliti til andlitis” leikur
Liv aftur með Erland Josephson.
En ekki undir stjórn Bergmanns i
þetta sinn, heldur Danans Henn-
ing Moritzen i Pygmalion, sem
veröur leikinn I Stokkhólmi.
Æfingar hefjar i júll.
— Ég hlakka til þess, segir Liv.
— Moritzen er ekki leikstjóri, sem
horfir á klukkuna og vill fara
heim kl. fjögur. Hann heldur
áfram þangað til hann er ánægð-
ur.
Ekki hvað sem er
Liv er orðin tortryggin gagn-
vart lélegum og sæmilegum verk-
um. Það lærði hún i Hollywood.
Nú þiggur hún ekki hlutverk
nema hafa séð handritið að þvi
fullloknu og verið ánægð með það.
Sömu sögu er að segja um stjórn-
anda og framleiðanda. Kvik-
myndimar „Lost Horizons” og
„40 Karat” kenndu henni þá
lexiu.
„Jörð I Afriku” skáldsaga
Karenar Blixen frá Kenya, er
dæmi um þetta, en i kvikmynd
eftir henni bauðst Liv aðalhlut-
verkið. Liv var ekki ánægð með
handritið. Nú vinnur höfundur
handritsins að „Sunday, Bloody
Sunday” að handriti, sem hún
kannski samþykkir.
Hún lauk við kvikmynd með Ju-
an Bunuel i Madrid fyrir jölin.
Myndin heitir „Leonora” og er
Conta Byggeselskab A/S, sem er stærsti
framleiðandi einingahúsa í Danmörku getur
nú boðið islendingum íbúðarhús, sem sérstak-
lega eru gerð með íslenzkar aðstæður í huga.
Stærðir frá 97 fm til 220 fm.
Við bendum sveitarfélögum sérstaklega á 106
fm hús, sem passa i leiguibúðakerfi rikisins.
Uppsetningatími er stuttur og verðið hagstætt.
Skólanefndir, sveitarfélög, fáanlegar eru til-
búnar skólastofur með stuttum fyrirvara.
Þá framleiðir Conta einnig dagheimili, vöggu-
stofur, skóla, skrifstofur, hótel, mötuneyti,
samkomuhús, vinnubúðir fyrir verktaka og
margt fleira.
Conta-umboðið
Skúlagötu 63 — Simi 28240
P.Box 634 — Reykjavik
Liv á blaöamannafundi. Blaöamenn standa I biöröö viö búningsher
bergi hennar.