Tíminn - 22.06.1975, Qupperneq 26

Tíminn - 22.06.1975, Qupperneq 26
26 TÍMINN Sunnudagur 22. júni 197S. Frægasta leikkona heims Liv Ullmann er likt við Grétu Garbo, hún er kölluð mesta leikkona nú á dögum. Frumraun hennar á Broadway sem Nóra i Brúðuheimilinu hlaut frábæra gagnrýni. Blaðamenn sitja um hana, svo hún varð að flytja af hótelinu, sem hún bjó á til að fá vinnufrið. Þegar þessi grein var skrifuð átti hún að fara að leika i nýrri Berg- mannsmynd i Stokkhólmi viku siðar. Nora yfirgefur brúöuheimiliö: Liv Ullmann og Sam Waterston (hann lék Nick I Great Gatsby) Þennan hvassviörisdag i New York á mótum 64. götu og Broad- way, hefði enginn þekkt hana þar sem hún kom aðvifandi klædd i siðbuxur, refaskinnsjakka, með dökk gleraugu og rauða prjóna- húfu. Þetta var óþekkt kona á götu i 10 milljón manna borg. Engum kemur til hugar að hér sé hún á ferð á leið á síðdegissýn- ingu i Vivian Beaumount leik- húsinu. Einmana rithandasafnari tók ekki einu sinni eftir komu hennar. Þetta er Liv Ullmann, leikkon- an, sem allur heimurinn talar um. Henni er likt við Grétu Garbo, Marlon Brando og Kat- herine Hepburn. Enginn leikari hefur náð annarri eins frægð og hún siðustu ár. Leikhúsgagnrýn- endur New York borgar kné- krjúpa henni allir, og kalla hana mestu leikkonuna nú. ísblá augu hennar blasa við milljónum manna á forsiðu fréttatimaritsins Newsweek og inni i blaðinu er grein um „Hvernig Liv sigrar alla”. Hún er fyrsti Norðmaður- inn, sem Newsweek gerir svo vel viö, en Liv hefur lifað slikt áður. Fyrir tveim árum var svipuð for- siðugrein um hana i Time, sem nær til enn fleiri lesenda. Hún á eftir að leika i eina viku sem gestur i Vivian Beaumount leikhúsinu, en leikur hennar i Brúðuheimilinu er mjög liklega mesti leiksigur, sem unninn hefur veriö i Lincoln Center i sigildum verkum. Það ótrúlega átti sér stað — þegar það fréttist að leik- húskonungurinn Joseph Papp hefði tryggt sér Liv Ullmann i hlutverk Nóru, myndaðist strax röð við miðasöluna. Þegar æfing- ar voru að hefjast var uppselt á allar sýningar i 40 daga. 75.000 mannshafa séð hana leika þessar sex vikur, 25.000 urðu frá að hverfa. Ekki slæmt þegar haft er i huga að fyrir 17-18 árum stóð hún útifyrir Leikhússkólanum i Osló og grét — þvi stjórn skólans taldi hana skorta hæfileika. Elt á röndum Gagnrýnendur segja ,,Hún af- hjúpar Nóru, rós sem blómstrar eftir langan vetur”....,,Ullmann skapar Nóru með látlausum hæfi leikum sinum...”, „sýning sem býr yfir siðferðisstyrk...” Blaðamenn i New York elta hana á röndum. Hún flutti úr Pierre hótelinu á Manhattan og leitaði hælis i Ibúð nálægt Central Park. Þegar ég ræði við hana i bún- ingsherbergi i Vivian Beaumont leikhúsinu, er hún að koma úr sturtu, eftir að hafa leikið Nóru i þrjá ldukkutfma. Roy Helland, sem er af norskum ættum, er að greiða henni fyrir næstu sýningu eftir tvo tima. Kvöldið 20. apríl kveður hún Broadway og áhorfendaskarann, sem þar hefur hyllt hana. Hún hefur „verið” Nóra i sex vikur, gert hana að hluta af sér. Hún lýs- ir Nóru eins og sjálfri sér: Ég fer af þvi að ég hef uppgötvað sjálfa mig, hvað ég ætti að vera... En Nóra hverfur úr hug henni þegar tjaldið fellur að loknu Brúðuheimilinu i Beaumountleik- húsinu. „Erfiðasta hlutverkið, sem ég hef leikið” Næsta kvöld flýgur hún til Stokkhólms og Ingmars Berg- mann og verður ný kona — kona, sem ætlar að fremja sjálfsmorð. Hún kemur mátulega til að reyna búningana I „Andliti til andlitis”, eins og nýja sjónvarpsmyndin eftir Ingmar Bergmann á að heita. Liv leikur sálfræðing, sem reynir að fremja sjálfsmorð — og verður að byggja upp nýtt lif — á taugadeild. — Erfiðasta hlutverk, sem ég hef fengið, segir hún. Áður taldi hún hlutverk sitt i kvik- myndinni Persóna erfiðast — hún sagði ekki eitt einasta orð i hlut- verki leikkonunnar frægu, sem hafði útilokað sig frá umheimin- um. Liv hefur aldrei fengið fleiri hlutverk, en þetta ár, sem hún hefur fengið verðlaun gagnrýn- enda i New York fyrir Atriði úr hjónabandi, sem sýnd hefur verið i 23 vikur i kvikmyndahúsum i Bandarikjunum og aflað 400 milljóna króna hið minnsta. Erland Josephson og Liv sýndu sinn bezta leik, og fólk fann það. Þannig erum við, þannig eða ekki. Eftir „Andliti til andlitis” leikur Liv aftur með Erland Josephson. En ekki undir stjórn Bergmanns i þetta sinn, heldur Danans Henn- ing Moritzen i Pygmalion, sem veröur leikinn I Stokkhólmi. Æfingar hefjar i júll. — Ég hlakka til þess, segir Liv. — Moritzen er ekki leikstjóri, sem horfir á klukkuna og vill fara heim kl. fjögur. Hann heldur áfram þangað til hann er ánægð- ur. Ekki hvað sem er Liv er orðin tortryggin gagn- vart lélegum og sæmilegum verk- um. Það lærði hún i Hollywood. Nú þiggur hún ekki hlutverk nema hafa séð handritið að þvi fullloknu og verið ánægð með það. Sömu sögu er að segja um stjórn- anda og framleiðanda. Kvik- myndimar „Lost Horizons” og „40 Karat” kenndu henni þá lexiu. „Jörð I Afriku” skáldsaga Karenar Blixen frá Kenya, er dæmi um þetta, en i kvikmynd eftir henni bauðst Liv aðalhlut- verkið. Liv var ekki ánægð með handritið. Nú vinnur höfundur handritsins að „Sunday, Bloody Sunday” að handriti, sem hún kannski samþykkir. Hún lauk við kvikmynd með Ju- an Bunuel i Madrid fyrir jölin. Myndin heitir „Leonora” og er Conta Byggeselskab A/S, sem er stærsti framleiðandi einingahúsa í Danmörku getur nú boðið islendingum íbúðarhús, sem sérstak- lega eru gerð með íslenzkar aðstæður í huga. Stærðir frá 97 fm til 220 fm. Við bendum sveitarfélögum sérstaklega á 106 fm hús, sem passa i leiguibúðakerfi rikisins. Uppsetningatími er stuttur og verðið hagstætt. Skólanefndir, sveitarfélög, fáanlegar eru til- búnar skólastofur með stuttum fyrirvara. Þá framleiðir Conta einnig dagheimili, vöggu- stofur, skóla, skrifstofur, hótel, mötuneyti, samkomuhús, vinnubúðir fyrir verktaka og margt fleira. Conta-umboðið Skúlagötu 63 — Simi 28240 P.Box 634 — Reykjavik Liv á blaöamannafundi. Blaöamenn standa I biöröö viö búningsher bergi hennar.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.