Tíminn - 22.06.1975, Page 27

Tíminn - 22.06.1975, Page 27
Sunnudagur 22. júni 1975. TÍMINN 27 eftir leikriti frá miðöldum um mann (Michel Picoli), sem elskar konu sina eftir lát hennar. — Ég vil ekki tala um þá mynd, hún er hræðileg, og ég hef ekki fengið borgað fyrir mina vinnu. Samningur Liv og Joseph Papp er enn ekki útrunninn. Hún á að leika Jeanne D’Arc i Heilagri Jó- hönnu eftir Bemard Shaw. En það getur ekki orðið fyrr en 1977. Loks á hún að leika blömlega bóndastúlku, Jossie Hogan i leik- riti eftir Eugen O’Neill i Osló. — Árið 1976 ætla ég að hvila mig, segir Liv. Ég get ekki haldið svona áfram lengi. Það kemur niður á svo mörgu, lika einkalif- inu, sem ég met meir en allt ann- að. Ég vonast til að fá tima til að ljúka ýmsu. Ég er að skrifa bók, sem mál er að ljúka. — Er langt siðan þú hefur átt fri? — Þegar við fórum leikferð með Brúðuheimilið i fyrra. Þá sá ég meira af Noregi en nokkru sinni áður, og lék á stöðum þar sem þurfti að fá lánaða aukastóla hjá nágrannanum. Milljónir i laun Hún getur tekið sér fri i eitt ár eða tvö með góðri samvizku. Hún sveltur ekki þess vegna. Samn- ingar hennar hljóða upp á milljónir i dollurum. Sjálf segist hún ekki skilja allt fjaðrafokið i kringum sig. — Ég þekki ekki sjálfa mig 1 öll- um greinunum, sem skrifaðar eru um mig sagði hún nýlega i blaða- viðtali. Hún er hrein og bein og Banda- rikjamenn dá hana vegna þess. Hollywood tók henni opnum örm- um. Hún kom þangað á réttri stundu, þegar draumaverksmiðj- an var farin að þreytast á falleg- um en sviplausum andlitum. 1 staðinn fengu þeir konu á fertugsaldri, sem hefur lifað lif- inu, hefur þroskazt af reynslunni, leikkona, sem litur út eins og manneskja, andstætt fullkomnum fegurðarimyndum Hollywood. Bandariskur blaðamaður, sem ræddi við Liv, varð undrandi þeg- ar hann komst að raun um hvað hún hafði góða matarlyst. Hann var vanur leikkonum sem nört- uðu i megrunarsalat fyrir siða- sakir. Liv borðaði — og naut þess. Lærði i Hollywood Þegar kvikmyndagagnrýnend- ur afhentu henni verðlaun á hin- um fræga veitingastað leikhús- fólks Sardis i New York, hellti hún vini ofan á kjólinn sinn. Hún hvarf i fáeinar minútur og kom aftur inn á sviðið i öðrum kjól. — Þetta hef ég a.m.k. lært i Holly- wood, sagði hún við áhorfendur, — að hafa alltaf varakjól við hendina. Kannski var hún að hugsa um afhendingu Oscarsverðlaunanna fyrir tveim árum, þegar hún og stjórnandi Útflytjendanna, Jan Troell voru útnefnd. Bekk fyrir framan þau sat ung leikkona, sem einnig hafði verið útnefnd, klædd kjól, sem hæfði sigurstundu. Imiðri athöfninni stóð leikkon- an upp og fór i annan kjól. Á eftir féll hún saman, hún fékk ekki verðlaun. — Þá var ég glöð að vera venju- leg stúlka frá Noregi, sem var gestur í Hollywood. Liv hefur lært að vera fræg. En frægðin krefst þess að eitt hlut- verk taki við af öðru. Og það er gifurlegt álag að þurfa að stilla sig inn á nýtt hlutverk á fáum dögum. Liv var hás kvöldið, sem Liv og móðir hennar á leið i frumsýningarveizluna. Brúðuheimilið var frumsýnt: — Útslitin sagði móðir hennar, Janna Ullmann, við mig. — Nú hefur hún leikið á hverju kvöldi frá 27. janúar, og stundum tvis- var á dag. Röddin fær ekki oft hvild. Það eru alltaf einhverjir, sem þurfa að tala við hana. Liv er að vissu leyti fangi eigin frægðar, hún ræður sér ekki lengur sjálf. — Ég vil ekki að það sé svo, það bara verður svona, segir Liv. 1 vikunni fyrir frumsýningu var Linn i heimsókn. Þá var álagið svo mikið hjá Liv að Linn varð að vera i búningsherberginu svo þær hefðu tima til að tala saman. Sú Liv, sem við þekkjum nú, á ekki margt sameiginlegt með Nóru i Brúðuheimili Ibsens, áður en hún vaknar og kemst að þvi hvað hún er og hvað hún ætti að verða. — En þannig var þetta einnig að nokkru leyti með mig, segir Liv, — i fyrsta hjónabandi minu og sambúðinni með Berg- man. ,,Þau vilja trúa þvi að ég sé stjarna” Liv litur ekki á mál Nóru sem kvenréttindabaráttu: — Kvenréttindabarátta er fyrir mér mannréttindabarátta, segir hún. — En bandarikjamenn horfa á þetta öðrum augum. Ég verð vör við frelsisbaráttu konunnar i viðbrögðum áhorfenda. Þegar Thorvald segir: „Ég vil ekki fóma heiðri minum fyrir ástina”, svarar Nóra: „Milljónir kvenna gera það daglega...” Viðbrögð áhorfenda eru sterk, þvi baráttan milli kynjanna er mikið harðari hér en heima. Greinilega hefur túlkun hennar á Nóru náð til áhorfenda. Leikur hennar er talinn mikill sigur. Þegar hún fylgir mér til dyra spyr ég hver hafi sett rauðu tré- stjörnuna við dyrnar hennar. — Það er hárgreiðslumaðurinn og hinir, segir hún afsakandi, — þeir vilja trúa þvi að ég sé stjarna hér. Frændi Liv, Per Ingvar Gurholt verkfræðingur í Montreal kom til New York ásamt fjöiskyldu til að vera við frumsýninguna. Hér skálar hann og dætur hans i kampavini við Liv I leikslok. fÚTBOÐ Tilboð óskast i jarðvinnu á fyrirhuguðu iþróttasvæði i Fossvogi. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frlkirkjuvegi 3, gegn 10.000.- kr. skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað, miðvikudaginn 9. júll 1975, kl. 11.00 f.h. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800 LANDSLEIKURINN ísí KSÍ SSLAND — FÆREYJAR fer fram á Laugardalsvellinum á morgun mánudaginn 23. júni kl. 20.00 Lúðrasveit Reykjavikur leikur frá kl. 19.30 e.h. Forsala aðgöngumiða á mánudag frá kl. 13.00 við Laugardalsvöllinn. Fjölmennið á völlinn og hvetjið isl. landsliðið til sigurs. Knattspyrnusamband islands.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.