Tíminn - 22.06.1975, Qupperneq 27
Sunnudagur 22. júni 1975.
TÍMINN
27
eftir leikriti frá miðöldum um
mann (Michel Picoli), sem elskar
konu sina eftir lát hennar.
— Ég vil ekki tala um þá mynd,
hún er hræðileg, og ég hef ekki
fengið borgað fyrir mina vinnu.
Samningur Liv og Joseph Papp
er enn ekki útrunninn. Hún á að
leika Jeanne D’Arc i Heilagri Jó-
hönnu eftir Bemard Shaw. En
það getur ekki orðið fyrr en 1977.
Loks á hún að leika blömlega
bóndastúlku, Jossie Hogan i leik-
riti eftir Eugen O’Neill i Osló.
— Árið 1976 ætla ég að hvila
mig, segir Liv. Ég get ekki haldið
svona áfram lengi. Það kemur
niður á svo mörgu, lika einkalif-
inu, sem ég met meir en allt ann-
að.
Ég vonast til að fá tima til að
ljúka ýmsu. Ég er að skrifa bók,
sem mál er að ljúka.
— Er langt siðan þú hefur átt
fri?
— Þegar við fórum leikferð með
Brúðuheimilið i fyrra. Þá sá ég
meira af Noregi en nokkru sinni
áður, og lék á stöðum þar sem
þurfti að fá lánaða aukastóla hjá
nágrannanum.
Milljónir i laun
Hún getur tekið sér fri i eitt ár
eða tvö með góðri samvizku. Hún
sveltur ekki þess vegna. Samn-
ingar hennar hljóða upp á
milljónir i dollurum.
Sjálf segist hún ekki skilja allt
fjaðrafokið i kringum sig.
— Ég þekki ekki sjálfa mig 1 öll-
um greinunum, sem skrifaðar eru
um mig sagði hún nýlega i blaða-
viðtali.
Hún er hrein og bein og Banda-
rikjamenn dá hana vegna þess.
Hollywood tók henni opnum örm-
um. Hún kom þangað á réttri
stundu, þegar draumaverksmiðj-
an var farin að þreytast á falleg-
um en sviplausum andlitum.
1 staðinn fengu þeir konu á
fertugsaldri, sem hefur lifað lif-
inu, hefur þroskazt af reynslunni,
leikkona, sem litur út eins og
manneskja, andstætt fullkomnum
fegurðarimyndum Hollywood.
Bandariskur blaðamaður, sem
ræddi við Liv, varð undrandi þeg-
ar hann komst að raun um hvað
hún hafði góða matarlyst. Hann
var vanur leikkonum sem nört-
uðu i megrunarsalat fyrir siða-
sakir. Liv borðaði — og naut þess.
Lærði i Hollywood
Þegar kvikmyndagagnrýnend-
ur afhentu henni verðlaun á hin-
um fræga veitingastað leikhús-
fólks Sardis i New York, hellti
hún vini ofan á kjólinn sinn. Hún
hvarf i fáeinar minútur og kom
aftur inn á sviðið i öðrum kjól. —
Þetta hef ég a.m.k. lært i Holly-
wood, sagði hún við áhorfendur,
— að hafa alltaf varakjól við
hendina.
Kannski var hún að hugsa um
afhendingu Oscarsverðlaunanna
fyrir tveim árum, þegar hún og
stjórnandi Útflytjendanna, Jan
Troell voru útnefnd. Bekk fyrir
framan þau sat ung leikkona, sem
einnig hafði verið útnefnd, klædd
kjól, sem hæfði sigurstundu.
Imiðri athöfninni stóð leikkon-
an upp og fór i annan kjól. Á eftir
féll hún saman, hún fékk ekki
verðlaun.
— Þá var ég glöð að vera venju-
leg stúlka frá Noregi, sem var
gestur í Hollywood.
Liv hefur lært að vera fræg. En
frægðin krefst þess að eitt hlut-
verk taki við af öðru. Og það er
gifurlegt álag að þurfa að stilla
sig inn á nýtt hlutverk á fáum
dögum.
Liv var hás kvöldið, sem
Liv og móðir hennar á leið i frumsýningarveizluna.
Brúðuheimilið var frumsýnt: —
Útslitin sagði móðir hennar,
Janna Ullmann, við mig. — Nú
hefur hún leikið á hverju kvöldi
frá 27. janúar, og stundum tvis-
var á dag.
Röddin fær ekki oft hvild. Það
eru alltaf einhverjir, sem þurfa
að tala við hana. Liv er að vissu
leyti fangi eigin frægðar, hún
ræður sér ekki lengur sjálf.
— Ég vil ekki að það sé svo, það
bara verður svona, segir Liv.
1 vikunni fyrir frumsýningu var
Linn i heimsókn. Þá var álagið
svo mikið hjá Liv að Linn varð að
vera i búningsherberginu svo þær
hefðu tima til að tala saman.
Sú Liv, sem við þekkjum nú, á
ekki margt sameiginlegt með
Nóru i Brúðuheimili Ibsens, áður
en hún vaknar og kemst að þvi
hvað hún er og hvað hún ætti að
verða. — En þannig var þetta
einnig að nokkru leyti með mig,
segir Liv, — i fyrsta hjónabandi
minu og sambúðinni með Berg-
man.
,,Þau vilja trúa þvi
að ég sé stjarna”
Liv litur ekki á mál Nóru sem
kvenréttindabaráttu:
— Kvenréttindabarátta er fyrir
mér mannréttindabarátta, segir
hún. — En bandarikjamenn horfa
á þetta öðrum augum. Ég verð
vör við frelsisbaráttu konunnar i
viðbrögðum áhorfenda. Þegar
Thorvald segir: „Ég vil ekki
fóma heiðri minum fyrir ástina”,
svarar Nóra: „Milljónir kvenna
gera það daglega...” Viðbrögð
áhorfenda eru sterk, þvi baráttan
milli kynjanna er mikið harðari
hér en heima.
Greinilega hefur túlkun hennar
á Nóru náð til áhorfenda. Leikur
hennar er talinn mikill sigur.
Þegar hún fylgir mér til dyra
spyr ég hver hafi sett rauðu tré-
stjörnuna við dyrnar hennar. —
Það er hárgreiðslumaðurinn og
hinir, segir hún afsakandi, — þeir
vilja trúa þvi að ég sé stjarna hér.
Frændi Liv, Per Ingvar Gurholt verkfræðingur í Montreal kom til New York ásamt fjöiskyldu til að vera við frumsýninguna. Hér skálar hann
og dætur hans i kampavini við Liv I leikslok.
fÚTBOÐ
Tilboð óskast i jarðvinnu á fyrirhuguðu
iþróttasvæði i Fossvogi.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frlkirkjuvegi 3,
gegn 10.000.- kr. skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, miðvikudaginn 9. júll
1975, kl. 11.00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800
LANDSLEIKURINN
ísí KSÍ
SSLAND — FÆREYJAR
fer fram á Laugardalsvellinum á morgun
mánudaginn 23. júni kl. 20.00
Lúðrasveit Reykjavikur leikur frá kl.
19.30 e.h.
Forsala aðgöngumiða á mánudag frá kl.
13.00 við Laugardalsvöllinn. Fjölmennið á
völlinn og hvetjið isl. landsliðið til sigurs.
Knattspyrnusamband islands.