Tíminn - 22.06.1975, Síða 31
Sunnudagur 22. júni 1975.
TÍMINN
31
[ Zeppelínska alþýðu- manninum svarað: Það lá vi ið
a ðéa ivætti
buxurnar...
— segir hr. F tjómi
Kæri Nútimi!
Ég get ekki orða bundizt
vegna skrifa alþýðumanns, sem
taldi sig vera kominn af hinum
þýzka greifa Zeppelin. Þar
byrjar hann að þvæla hrein
ósköp um blues og rokk. Út-
skýring hans á blues var i hæsta
máta ámátleg, en þar sagði
hann meðal annars, að blues
væri t.d. vegna þess að textinn
væri svartsýnn. Samkvæmt
þessari skilgreiningu gætu t.d.
hjómsveitir eins og Osmonds
orðið hörkubluesarar ef þeir
byrjuðu á þeim óskunda að
yrkja dapurleg ástarljóð, eða
félagslega svört ástarljdð. Það
er taktur lags og áherzlur, sem
maður „filar” blues — oft er
notaður mjög rafmagnaður
kassagitar, þó aðallega fyrir
svona 15 árum og fyrr, s.b.
JoeLee Hooker og aðra frábæra
svarta bluesleikara.
Þar sem þssi þýzki
alþýðumaður hefur litið sem
ekkert hlustað á tónlist fyrir
1970 fyrir utan sitt eigið garna-
gaul og annarra álika, verður
það liklega að skoðast sem hans
eigin röksemdarfærsla að halda
þvi fram, að „Zepp” séu
frumkvöðlar nýrrar og betri
hljómlistar. Zeppelin voru bara
beint framhald af þvi sem önnur
hljómsveit skóp, plægði og sáði
fyrir, þ.e. þá músik, sem við
hlustum á I dag. Liklega hefur
engin hljómsveit náð þeim enn
þá, en i dag er þessi hljómsveit
viðmiðunarpóll fyrir aðrar
hljómsveitir, sem vilja teljast
til þungrar tónlistar, — hún hef-
ur án efa miku meiri áhrif I dag
heldur en nokkurn tima
Bitlarnir, Stones og Zeppelin.
Þessi hljómsveit var stofnuð i
desember 1965, en gaf upp
öndina I nóvember 1968. A þess-
um stutta tima gaf hún út 6
stórar plötur, og hver þeirra er
meistarastykki út af fyrir sig.
Þeir sem voru i hljómsveitinni,
voru Ginger Baker, sem þá var
orðin einn virtasti hússleikari
Evrópu, en með honum voru
tveir sem höfðu leikið með John
Mayall þá um árið — og var sá
sem sló gltarinn eitt mesta
gitarefni Breta (og alls
heimsins) Eric Clapton, en nú
söngvari og bassaleikari og aðal
lagasmiður Jack Bruce.
Allir þessir hafa verið og
verða fram til næstu aldamóta
liklegast þeir beztu á þessu
sviði. Það hefur enginn enn
komizt með tærnar þar sem þeir
eru með hælana. Allt, sem
komið hefur frá þeim er pott-
þétt, sem sést bara á þvi hvaða
hljómsveitum þeir hafa starfað
með, t.d. Blind Faith, Air Force
o,s.frv.
Ef þú tekur eitthvað mark á
þeirrikosningu, sem nú vitnaðir
I, var Clapton bezti gitar-
leikarinn og hefur verið, Bruce
bezti bassaleikarinn og Baker
bezti trommuleikarinn — svo
það þarf blindan mann til þess
að loka augunum fyrir þeirri
staðreynd, að CREM hafa verið
betri en Zeppelin.
Þú klykkir svo út með þvi, að
tala svo lofsamlega um gitar-
leikarann Page, að mér var nær
að halda að þú væri að skrifa
minningargrein um sjálfan þig
eða alþingismaður að halda
ræðu um efnahagsvandann.
Það lá við að ég vætti
buxurnar....en ég ætla bara að
benda yður á eitt, að árið 1971
var gefin út plata, sem heitir
GUITAR BOOGIE -
CLAPTON, BECK, PAGE og
inniheldur sú plata gitar-
fantasiur eftir þá sjálfa, sem
þeir leku sjálfir. Þvi miður
Þjóðverji: CLAPTON KOM
SVO LANG BEZT ÚT, að mér
var nær að halda að Clapton
væri á fjórum sinnum hærra
plani en hinir tveir, — þvi miður
fyrir þig.
1 ” Ð c _ t A N | II 1
Hnd» %-]
k
Nú stóraukum við úrvalið
í leðurhúsgögnum.
Þér getið valið úr a. m. k.
4 gerðum og 5 litum
af sófasettum og stakir
leðurstólar eru fyrirliggjandi
í miklu úrvali, íslenzkir,
norskir eða belgískir.
Nýja leðurdeildin er á
3ju hæð og þangað bjóðum
við öllum þeim að koma,
sem eru að leita að
vandaðri og góðri vöru.
Opið til kl. 7 á föstudögum — Lokað á laugardögum
Verzlið
þar sem
úrvalið er
mest og
kjörin bezt
28-600 Byggingavörukjördeild 28-602 Raftækjadeild
28-601 Húsgagnadeild 28-603 Teppadeild
RAFSTILLING
rafvélaverkstæði
DUGGUVOGI 19
Sími 8-49-91
Gerum við allt
í rafkerfi bíla
og stillum
ganginn
OLDHAM
RAFGEYMAR
rafmagns-
handverkfæri
fást um allt land
ÞQRHF
REYKJAVÍK SKÓLAVÖRÐUSTÍG 25
BOGBALLE
DREIFARARNIR
FYRIRLIGGJANDI
VERÐ KR. 45.000,—
Samband islenzkra samvinnufélaga VÉLADEILD
Ármúla 3 Reykjavik simi 38900