Tíminn - 27.07.1975, Qupperneq 19
Sunnudagur 27. júH 1975.
TÍMINN
19
(Jtgefandi Framsóknarflokkurinn.
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar:
Þórarinn Þórarinsson (ábm.) og Jón Helgason. Rit-
stjórnarfulltrúi: Freysteinn Jóhannsson. Fréttastjóri:
Helgi H. Jónsson. Auglýsingastjóri: Steingrímur Gisla-
son. Ritstjórnarskrifstofur I Edduhúsinu við Lindargötu,
simar 18300 — 18306. Skrifstofur i Aðalstræti 7, simi 26500'
— afgreiðslusimi 12323 — auglýsingasimi 19523. Verð I
lausasölu kr. 40.00. Askriftargjald kr. 700.00 á mánuði.
Blaöaprent h.f.
Skyldleiki
Þegar ritstjórar Þjóðviljans fá mestu vanliðun-
arköstin, gripa þeir stundum til þess ráðs, að eigna
stjórnmálaritstjóra Timans alls konar ummæli,
sem hann hefur aldrei sagt. Nýjasta dæmið um
það eru þau ummæli Magnúsar Kjartanssonar, að
umræddur ritstjóri Timans hafi sagt, að þeir Geir
Hallgrimsson og Ólafur Jóhannesson hafi ,,ná-
kvæmlega sömu lifsskoðanir og stefnu”! Þetta er
vitanlega hreinn uppspuni Magnúsar, eins og
margt fleira sem hann segir, þegar pólitisk vanlið-
,an þjáir hann. Af hálfu umrædds ritstjóra Timans
hefur hvað eftir annað verið áréttað, að stjórnar-
flokkarnir voru ósammála um margt. í því sam-
bandi má m.a. vitna til eftirfarandi málsgreinar i
forustugrein Timans 8. þ.m.:
,,Af hálfu forustumanna stjórnarflokkanna
hefur aldrei verið farið dult með það, að þá greindi
á um margt, og að það myndi hafa áhrif á afstöðu
þeirra, þegar velja ætti milli úrræða. En þeir hafa
jafnframt sett sér það mark, að reyna að þoka
þessum ágreiningsmálum sem mest til hliðar,
meðan verið er að fást við efnahagsvandann og
sigrast á honum. Það er nú stærsta mál þjóðarinn-
ar og framfið hennar getur oltið á þvi, hvernig það
tekst.”
í áðurnefndri Þjóðviljagrein er hins vegar rétti-
lega bent á þau ummæli Timans, að meginstefna
núv. rikisstjórnar i efnahagsmálum sé i höfuðatr-
iðum hin sama og vinstri stjórnarinnar var. Þetta
er sannleikanum samkvæmt og hefur áður verið
gefin á þessu sú augljósa skýring, að miklu minni
munur er á Alþýðubandalaginu og Sjálfstæðis-
flokknum en margir halda i fljótu bragði. Þetta
gildir jafnt um þessa flokka, hvort heldur sem þeir
eru i stjórn eða stjórnarandstöðu. 1 vinstri stjórn-
inni starfaði Alþýðubandalagið sem ábyrgur
flokkur og stóð að óvinsælum aðgerðuni, ef þær
voru taldar nauðsynlegar, eins og gengisfellingu,
festing visitölubóta, skattahækkunum, tillögum
um beina grunnkaupslækkun o.s.frv. Þá var Sjálf-
stæðisflokkurinn i stjórnarandstöðu og fordæmdi
allar þessar aðgerðir. Núverandi stjórn hefur ver-
ið neydd til að gripa til þessara aðgerða, alveg eins
og vinstri stjórnin, og þó i enn rikari mæli vegna
hinna óhagstæðu viðskiptakjara. Nú er Sjálf-
stæðisflokkurinn i stjórn og stendur þvi sem á-
byrgur flokkur að þessum aðgerðum. Hins vegar
hamast Alþýðubandalagið nú gegn þessum að-
gerðum vegna þess,að það er ekki i stjórn lengur.
En hvort tveggja sýnir, að raunverulega ber ekki
mikið á milli Alþýðubandalagsins og Sjálfstæðis-
flokksins i efnahagsmálum. Munurinn fer mest
eftir þvi, hvort þessir flokkar eru i stjórn eða
st j órnara ndstöðu.
Það er vafalitið þessi skyldleiki flokkanna, sem
átti sinn þátt i þvi, að Magnús Kjartansson færðist
alveg undan að svara þvi fyrir seinustu kosningar,
hvort stjórnarsamvinna Alþýðubandalagsins og
Sjálfstæðisflokksins væri útilokuð. Magnús hélt
öllum dyrum opnum i þeim efnum. Það er lika
kunnugt, að i innsta hring Alþýðubandalagsins eru
menn, sem vildu eftir kosningarnar i fyrra, að Al-
þýðubandalagið gengi til stjórnarsamstarfs við
Sjálfstæðisflokkinn. Þeir menn munu frekar hafa
eflzt siðan og þeir leggja allt kapp á, að þau
tengsli, sem hafa haldist milli þessara flokka siðan
á dögum nýsköpunarstjórnarinnar, verði frekar
styrkt en veikt. Það mun ekki standa á þessum
mönnum, ef Sjálfstæðisflokkurinn býður þeim upp
inýjannýsköpunardans. Þ.Þ.
ERLENT YFIRLIT
Frakkar vilja halda
Mayotte áfram
Tvö ný sjálfstæð afríkönsk eyríki
»
Uppdráttur, sem sýnir Comoro-eyjar og legu þeirra.
Á FUNDI Einingarsamtaka
Afriku, sem verður haldinn i
Kampala, munu mæta i fyrsta
sinn fulltrúar tveggja nýrra
eyrikja i Afriku. Annað þess-
ara eyrikja nær til eyjanna
Sao Tome og Principe, sem
liggja undan vesturströnd
Afriku og hafa lotið yfirráðum
Portúgals um fimm alda
skeið. Sjálfstæði þessa nýja
eyrikis, sem telur um 80 þús.
ibúa, var lýst yfir 12. þ.m. Hitt
þessara eyrikja nær til
Comoro-eyja, sem liggja
undan austurströnd Afriku
milli meginlandsins og Mada-
gaskar. Sjálfstæði þeirra var
lýst yfir 6. þ.m. en liklegt er að
það dragi nokkurn dilk á eftir
sér og geti orðið deilumál milli
Einingarsamtaka Afriku og
Frakka. Þetta deilumál mun
verða meðal meiriháttar mála
á áðurnefndum fundi
Einingarsamtakanna.
COMOROEYJAR komust
undir yfirráð Frakka um 1886
og voru sameinaðar Mada-
gaskar 1912. Eftir siðari
heimsstyrjöldina voru þær
gerðar að sjálfstæðu frönsku
fylki og hafa siðan átt 2 full-
trúa i fulltrúadeild franska
þingsins og einn fulltrúa i
öldungadeildinni. Þótt
Comoroeyjar . væru þannig
óbeint innlimaðar i franska
rikið, skilaði franska stjórnin
skýrslum um málefni eyjanna
til nýlenduráðs Sameinuðu
þjóðanna. Frakkar hafa jafn-
framt lýst sig fúsa til aö fallast
á sjálfstæði þeirra, ef ibúarnir
óskuðu eftir þvi. Árið 1973 náð-
ist samkomulag um, að eyj-
arnar skyldu hljóta sjálfstæði
ekki siðar en 1978, en siöar
kröfðust leiðtogarComoroeyja
þess, að þessi frestur yrði
styttur um 2 ár og féllust
Frakkar á þaö. Aður skyldi þó
fara fram þjóðaratkvæða-
greiðsla, sem leiddi i ljós hver
vilji ibúanna væri. Þessi at-
kvæðagreiðsla fór fram 22.
desember siðastliðinn. úrslit-
in urðu þau, að 95% kjósenda
lýstu sig þvi fylgjandi, að eyj-
arnar yrðu sjálfstæðar. Sú
undantekning varð þó, að um
64% kjósenda á einni af fjór-
um stærstu eyjunum,
Mayotte, lýstu sig andviga þvi
að eyjarnar yrðu sjálfstæðar.
A Mayotte eru um 40 þús. ibú-
ar, en alls eru ibúar Comoro-
eyja um 300 þús. Eftir þessi
úrslit tók að bera á vaxandi
skilnaðarhreyfinguá Mayotte,
og varð það til þess, að for-
ustumenn meirihlutans á
þingi eyjanna ákváðu að láta
til skarar skriða fyrr en ella.
Hinn 6. þ.m. var haldinn fund-
ur i þinginu, þar sem einróma
var lýst yfir sjálfstæöi eyj-
anna. En þingmenn frá May-
otte voru ekki mættir þar.
Rétt áður hafði það lika gerzt,
að franska þingið hafði viður-
kennt niðurstöður þjóðarat-
kvæðagreiðslunnar en þó með
þeim fyrirvara, að ibúar
hverrar aðaleyjanna gætu
greitt atkvæði sérstaklega um
hina nýju stjórnarskrá. Þetta
hefur yfirleitt verið skilið á
þann veg, að Frakkar væru
reiðubúnir til að fallast á, að
Mayotte sliti stjórnarfarslegu
sambandi við hinar eyjarnar,
og héldi áfram að vera i
tengslum við Frakkland.
Franska stjórnin hefur nú
viðurkennt sjálfstæði hins
nýja rikis á Comoroeyjum, en
þó með framangreindum
fyrirvara.
HIN nýja stjórn á Comoro-
eyjum hefur tekiö þetta
óstinnt upp. Hún hefur bent á,
að Comoroeyjar hafi alltaf
verið ein stjórnarfarsleg
heild, enda sé ekki annað eðli-
legt. íbúar á Mayotte halda
þvi hins vegar fram, að þeir
hafi alltaf haft nokkra sér-
stöðu, sem m.a. stafi af þvi, að
þeir játa flestir kristna trú, en
ibúar hinna eyjanna eru
múhameðstrúar. Þetta eru
meginrök þeirra fyrir þvi að
slita sambandinu. Af hálfu
nýju stjórnarinnar i Comoro-
eyjum er þvi hins vegar haldið
fram, að það séu fyrst og
fremst Frakkar, sem standi á
bak við þessa skilnaðarhreyf-
ingu. Sennilegt er að sú skoöun
verði lika almenn á fundi
Einingarsamtakanna. 011
stórveldin stefna nú að þvi, að
tryggja sér hernaðarlega að-
stöðu við Indlandshaf. Frakk-
ar höfðu þessa aðstöðu til
skamms tima á Madagaskar,
en var þá neitað um hana, og
fluttu sig þá að verulegu leyti
til Comoro-eyja og þó fyrst og
fremst til Mayotte. Þess
vegna þykir liklegt, að þeir
vilji tryggja áfram stöðu sina
þar.
COMORO-EYJAR eru
margar talsins, en aðaleyj-
arnar eru fjórar. Samanlagt
er flatarmál eyjanna tæpar
900 fermilur. Þetta eru eld-
fjallaeyjar að uppruna og er
eitt eldfjallið þar, Kartala,
sem er á stærstu eyjunni, enn
virkt. Eyjarnar eru mjög
frjósamar. Ibúarnir lifa fyrst-
og fremst á landbúnaði, þvi að
iðnaður má enn heita enginn.
Meginþorri ibúanna rekur
ættir sinar til arabiskra land -
námsmanna.
Meðal stjórnmálamanna i
Afriku er það yfirleitt litið
óhýru auga, að stórveldin hafi
herstöðvar eða flotastöðvar
við Indlandshaf. Þau telja sér
það hins vegar nauðsynlegt
vegna hinna miklu oliuflutn-
inga, sem eiga sér þar stað.
Það hefur ýtt undir áhuga
vesturveldanna i þessum efn-
um, að Rússar eru sagðir hafa
fengiða.m.k. visi að flotastöð i
Somaliu, en ráðamenn þar
mótmæla þessu þó, og Rússar
gera það einnig, en engu að
siður hefur þeim ekki tekizt að
kveða þennan orðróm niður.
Það hefur ýtt undir hann, að
Rússar hafa veitt Somaliu
mikla hernaðarlega aðstoö.
Fyrir Frakka væri það á
margan hátt óheppilegt, að
þurfa að lenda i hörðum deil-
um við einingarsamtök Afriku
vegna Mayotte. Franska
stjórnin hefur undanfarið unn-
ið markvist að þvi að bæta
sambúðina við þróunarlöndin
og orðið verulega ágengt i
þeim efnum. Af hálfu hinnar
nýju stjórnar á Comoroeyjum
hefur komið til orða að visa
þessari deilu til annað hvort
öryggisráðsins eða Alþjóða-
dómstólsins. Frakkar hafa
ekki látið neitt uppi um það,
hvort þeir myndu fallast á úr-
skurð Alþjóðadómstólsins og
vafasamt er lika, að Einingar-
samtökin vilji eiga slik mál
undir úrskuröi hans. Þau hafa
a.m.k. verið treg til þess hing-
að til.
Þ.Þ.