Fréttablaðið - 13.03.2005, Side 13
SUNNUDAGUR 13. mars 2005 13
Nokia 3100
eða
= 19.900 kr.
Gefðu
rétta tóninn!
Nokia 3100 iPod shuffle Samsung E 700
+ 300 SMS*, 50 Myndskilaboð og 5 Java-leikir, hringitónar og veggfóður.
*Þú færð 500 kr. inneign á símanúmerið þitt mánaðarlega í 6 mánuði.
Komdu í Og Vodafone verslun, smelltu þér á www.ogvodafone.is eða hringdu í 1414 fyrir nánari upplýsingar.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
O
G
V
2
75
44
03
/2
00
5
Brautryðjanda á Alþingi minnst
Málverk af Ingibjörgu H. Bjarna-
son, fyrstu konunni sem var kosin á
þing, var afhjúpað í Alþingishúsinu
á alþjóðabaráttudegi kvenna, hinn
8. mars. Konur sem setið hafa á Al-
þingi komu saman í tilefni þessa og
minntust Ingibjargar sem braut-
ryðjanda á sviði kvenfrelsis.
Í tilkynningu Alþingis kemur
fram að frá árinu 1845, þegar Al-
þingi var endurreist, hafi 630
manns tekið þar sæti sem aðal-
menn. Þar af eru 56 konur eða 8,9
prósent. Af þessum konum eru 47
enn á lífi.
Konur hlutu kosningarétt og
kjörgengi til Alþingis með stjórnar-
skrárbreytingu sem staðfest var 19.
júní 1915. Réttinum gátu þær fyrst
beitt við kosningar 1916, í lands-
kjörinu 5. ágúst og svo um haustið í
kjördæmakosningunum 21. október.
Bríet Bjarnhéðinsdóttir var þá kjör-
in varamaður landskjörinna en tók
aldrei sæti á Alþingi.
Ingibjörg var kosin á þing sum-
arið 1922, 55 ára að aldri, en hún var
í fyrsta sæti Kvennalistans sem þá
bauð fram. Hún tók sæti á þingi árið
eftir. Þegar hún var kjörin var hún
þegar landskunn sem skólastjóri
Kvennaskólans. Ingibjörg sat á
þingi til ársins 1930, en lést árið
1941.
Lengstu þingsetu kvenna á Jó-
hanna Sigurðardóttir, en hún hefur
setið á Alþingi samfellt síðan 1978.
„Fyrst kvenna til að hljóta kosningu
sem forseti (aðalforseti) var Ragn-
hildur Helgadóttir. Hún var kjörin
forseti neðri deildar 1961-1962 og
aftur 1974-1978. Salome Þorkels-
dóttir var kjörin forseti efri deildar
1983-1987 og síðar forseti samein-
aðs þings 1991 og fyrsti forseti Al-
þingis 1991-1995 (eftir afnám
deildaskiptingar 1991). Guðrún
Helgadóttir var kjörin forseti sam-
einaðs þings 1988-1991, fyrst
kvenna til að vera fyrirsvarsmaður
Alþingis,“ segir í tilkynningu Al-
þingis. ■
KONUR AF ALÞINGI Þegar afhjúpuð var í
vikunni mynd af Ingibjörgu H. Bjarnason,
fyrstu konunni sem kosin var á þing, komu
af því tilefni saman allar þær konur sem
hafa setið á Alþingi og áttu heimangengt.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L.
ANDLÁT
Erlingur Gíslason leikari er
72 ára í dag.
Ari Teitsson, fv. formaður
Bændasamtaka Íslands, er
62 ára í dag.
FÆDDUST ÞENNAN DAG
1733 Joseph Priestly,
klerkur og vísindamaður,
sem uppgötvaði súrefnið.
1764 Charles Earl Grey, forsætisráð-
herra Breta.
1855 Percival Lowell,
stjörnufræðingur
sem átti þátt í fundi
Plútós.
1950 William H. Macy,
leikari.
1956 Dana Delany,
leikkona.
1960 Adam Clayton,
bassaleikari U2.
1962 Terrence Blanchard, djasstónlistar-
maður.
1971 Annabeth Gish,
leikkona.
1976 Danny Masterson,
leikari.
1985 Emile Hirsch, leikari.
Merkúr við sólu
Í dag eru síðustu forvöð að sinni að
sjá innstu reikistjörnuna Merkúr
berum aug-
um. Síðustu
daga hefur
verið hægt
að sjá
p lánetuna
sem alla
jafna er í
felum á bak
við sólina
og hverfur
þangað aft-
ur eftir dag-
inn í dag.
Best er að koma auga á plánet-
una þegar sólin gengur til viðar
því skaðlegt getur verið að rýna í
brennandi sólina. Þegar sólin
hverfur bak við sjóndeildarhring-
inn er Merkúr á að líta eins og
skær stjarna í rósrauðum bjarm-
anum í vestri.
Frekari upplýsingar um gang
Merkúrs er að finna á vefnum
stjornuskodun.is. ■
MERKÚR Í NÆRMYND