Fréttablaðið - 29.04.2005, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 29.04.2005, Blaðsíða 8
1Hvað heita rafmagnsbílarnir sem á aðfara að flytja til landsins í haust? 2Hvaða þrjár af frægustu plötum ís-lenskrar poppsögu verða endurútgefn- ar í sumar? 3Hver er stjórnarmaður Stoke Holding? SVÖRIN ERU Á BLS. 50 VEISTU SVARIÐ? 8 29. apríl 2005 FÖSTUDAGUR ÚTGERÐ Umfangsmiklar breytingar standa nú yfir í Slippstöðinni á Akureyri á nóta- og togveiðiskip- inu Seley ÞH-381 og verður skipið búið til línuveiða. Kostnaður við breytingar og nýjan búnað er um 120 milljónir króna en að breyting- um loknum verður Seley stærsta línuskipið í íslenska flotanum. Allur búnaður til nóta- og tog- veiða verður fjarlægður úr skipinu og komið verður fyrir mjög af- kastamikilli beitingavél. Þessi vél er tölvustýrð og afar fullkominn en hún getur beitt sex króka á sekúndu. Um borð verða línurekkar fyrir 52 þúsund króka og í áhöfn verða 14 manns, segir Kjartan Viðarsson útgerðarstjóri Vísis. Seley er í eigu Vísis í Grindavík og mun skipið leysa af hólmi tvö línuskip sem Vísir hefur gert út, Fjölni ÍS og Frey ÞH, en þau skip verða seld. Skipstjóri á Seley verður Þórður Pálmason sem verið hefur skipstjóri á Hrungni GK. - kk HÆSTIRÉTTUR Hæstiréttur staðfesti í gær dóm Héraðsdóms Reykja- víkur yfir Grétari Sigurðarsyni, Jónasi Inga Ragnarssyni og Tom- asi Malakaukas, en hver þeirra hafði verið dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi. Dóminn hlutu þeir fyrir smygl á tæpum 224 grömmum af amfetamíni, brot gegn lífi og líkama og fyrir ósæmilega meðferð á líki Vaidas- ar Juceviciusar. „Þetta er bara úr í hött að öllu leyti,“ sagði Grétar eftir að dóm- urinn hafði verið kveðinn upp. „Maður hefði haldið að í öllum eðlilegum samfélögum yrði það talið þeim til tekna sem sýnir bót og betrun, vinnur með lögreglu og kemur fram eins og maður. Það virðist ekki vera hér.“ Hann sagðist þó ekki hafa hug á að fara lengra með mál sitt og kvaðst ekki ósáttur við að vera dæmdur í fangelsi fyrir hlutdeild sína í málinu. „Ég er bara ekki sáttur við að fá uppkveðinn sama dóm og þeir.“ Eftir að lík Vaidasar Jucevici- usar fannst í höfninni í Neskaup- stað 11. febrúar í fyrra var í fyrstu óttast að um morðmál væri að ræða enda stungusár á líkinu. Síðar kom í ljós að stung- urnar voru gerðar eftir dauða Vaidasar til að hindra að líkið flyti upp vegna gasmyndunar við rotnun þess. Vaidas hafði flutt innvortis til landsins amfetamín í 61 pakkningu sem hann gleypti. Hann veiktist hins vegar daginn eftir komuna til landsins vegna stíflu í mjógirni af völdum pakkninganna. Grétar, Jónas og Tomas létu hjá líða að koma Vai- dasi til hjálpar og lést hann sár- kvalinn þremur dögum síðar. Jónas og Tomas óku svo með lík hans frá Reykjavík austur á Nes- kaupstað þar sem þeir sökktu því í sjó við netagerðarbryggjuna. Grétar, sem er frá Neskaupstað, flaug austur og aðstoðaði við að fela líkið. Eftir að málið komst í hámæli lýsti Grétar því hvernig honum þætti sér ógnað af lítháískri mafíu, en hann kvaðst laus við þann ótta nú og málið væri liðið hjá. „Núna er ég bara að sinna mínu lífi, halda heimili og vera til friðs,“ sagði hann fyrir utan Hæstarétt í gær. olikr@frettabladid.is BJÖRGVIN GUNNARSSON Vorið 2003 fékk Björgvin fimmtán bleikjur í Leirutjörn á Akureyri 28. apríl og þá hljóp stangveiðimönnum bæjarins kapp í kinn. Akureyri: Stangveiði í Leirutjörn VEIÐI Björgvin Gunnarsson, stýri- maður á Árbaki EA, fékk sína fyrstu bleikju í ár í Leirutjörn á Akureyri á miðvikudag. Segist hann vanur að kasta flugunni snemma á vorin í Leirutjörn en þar er staðbundin bleikja og ur- riði. „Ég hef oft fengið góðan afla í Leirutjörn en fiskur gengur í tjörnina á vorin og einu sinni fékk ég þar hnúðlax sem veiðist ekki oft á stöng,“ segir Björgvin. Dæmi eru um að stórir sjóbirt- ingar gangi í Leirutjörn og fyrr í vor veiddist þar sjö punda sjóbirt- ingur. - kk ■ OPINBERAR HEIMSÓKNIR SELEY Á AKUREYRI Vísir í Grindavík keypti Seley í upphafi árs af Íshafi á Húsavík en skipið hét áður Guðrún Þorkelsdóttir og var gert út frá Eskifirði. Seley ÞH breitt til línuveiða: Stærsta línuskip landsins FR ÉT TA B LA Ð IÐ /K K FR ÉT TA B LA Ð IÐ /K K GRÉTAR SIGURÐARSON Grétar svaraði spurningum fjölmiðla fyrir utan Hæstarétt í gær, eftir að kveðið hafði verið upp úr með staðfestingu á fyrri dómi Héraðs- dóms yfir honum upp á tvö og hálft ár í fangelsi. Ósáttur við dóminn Grétar Sigurðarson, einn þriggja sakborninga í líkfundarmálinu, er ósáttur við dóm sinn. Hann vonaðist til að fá samstarfsvilja og skýr svör metin til refsilækkunar. Hæstiréttur staðfesti í gær fyrri dóm Héraðsdóms. UMHVERFISRÁÐHERRANN TIL KÍNA Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra verður með í för þegar Ólafur Ragnar Gríms- son, forseti Íslands, heldur til Kína um miðjan næsta mánuð. Hún mun hitta kínverska starfs- bræður sína og ræða við þá vítt og breitt um umhverfismál. ÞINGFORSETINN TIL DANMERKUR Halldór Blöndal, forseti Alþingis, er staddur í Danmörku í boði for- seta danska þingsins ásamt fríðu föruneyti. Í ferðinni verður meðal annars rætt við forsætisnefnd danska þingsins og nokkra ráð- herra. Í næstu viku mun svo sendinefndin halda á árlegan fund þingforseta Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna. ELDUR Í FRAMHEIMILINU Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins viðhafði svokallað „stórt útkall“ og kallaði til aukamann- skap til að takast á við eld í útvegg Framheimilisins í gær. Erfiðar aðstæður í íþróttahúsi Fram: Eldur logaði í útvegg ELDSVOÐI Slökkvilið höfuðborgar- svæðisins hafði mikinn viðbúnað vegna elds í Framheimilinu í Reykjavík laust eftir klukkan eitt í gærdag. Enginn meiddist og búið var að hefta útbreiðslu eldsins um klukkustund síðar. Nemendur í Álftamýrarskóla, sem er í næsta húsi, voru sendir heim vegna brunans. Eldurinn logaði í útvegg og í hluta af þaki hússins og kvað Rún- ar Helgason aðstoðarstöðvar- stjóri aðstæður hafa verið frekar erfiðar. „Við þurftum að losa klæðningu frá veggnum og þak- inu til að komast almennilega að þessu,“ sagði hann. Halldór Halldórsson, staðgeng- ill slökkviliðsstjóra, sagði ekki hægt að fullyrða strax um elds- upptök, en sjónir manna beindust þó að vinnu við tjörupappalagn- ingu í viðbyggingu við húsið. „Við sáum aldrei mikinn eld, en óttuð- umst að hann kynni að krauma þarna inni í veggnum,“ sagði Hall- dór og kvað slökkvilið hafa haft vitneskju um brunahættu vegna þess að í vegg byggingarinnar væri loftrými og einnig eldsmat- ur. „En húsið stenst allar bygging- arkröfur, að minnsta kosti eins og þær voru við byggingu þess fyrir um áratug síðan.“ - óká FR ÉT TA B LA Ð IÐ /H AR I
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.