Fréttablaðið - 29.04.2005, Page 12
SVALIR SUNDMENN
Unglingarnir á Raufarhöfn fögnuðu sumar-
byrjun og hlýindunum á Norðurlandi að
undanförnu með því að draga fram tjöld
og setja upp í húsagörðum. Þeir allra svöl-
ustu stungu sér til sunds í tjörn sem
stendur í miðju þorpinu.
12 29. apríl 2005 FÖSTUDAGUR
Sigurður Thorlacius tryggingayfirlæknir:
Fjarri stefnu
stofnunarinnar
LÍFEYRISMÁL Sigurður Thorlacius,
tryggingayfirlæknir hjá Trygg-
ingastofnun ríkisins, segir það af
og frá að starfsfólk hjá stofnun-
inni sé að ráðleggja öryrkjum að
skilja til að fá hærri bætur. „Slíkt
væri fjarri stefnu stofnunarinnar
og ef einhver starfsmanna væri
með slíkar ráðleggingar þá ætti
hann að vinna annars staðar,“
sagði hann.
Arnþór Helgason, fram-
kvæmdastjóri Öryrkjabandalags-
ins, sagði á Talstöðinni í gær um
tekjutengingu öryrkjabóta, að það
væri „iðulega að ráðgjafar, félags-
ráðgjafar og jafnvel starfsmenn
Tryggingastofnunar ríkisins
hvetji fólk til þess að skilja, til
þess að auka tekjur heimilisins.“
Lára Björnsdóttir, félagsmála-
stjóri í Reykjavík, sagði um um-
mæli Arnþórs að það væri fráleitt
að félagsráðgjafar bentu öryrkj-
um á að skilja við maka til að auka
heimilistekjurnar. Að auki væri
algjörlega bannað að fólk væri að
ráðleggja slíkt. - jss
LÍFEYRISMÁL Lára Björnsdóttir, fé-
lagsmálastjóri í Reykjavík,
kveðst vilja afnema tekjuteng-
ingu öryrkja, nema þeirra sem
vinni fyrir umtalsverðum tekj-
um. Hún segir að um leið og
fólk reyni að komast út á vinnu-
markaðinn, þótt ekki sé nema í
litlum mæli sé lífeyririnn tekinn
af því. Í því sé ekkert vit.
„Fólk verður öryrkjar af
slæmum aðstæðum, bæði
heilsufarslegum og félagsleg-
um, sem geta leitt til ýmiss kon-
ar sjúkdóma. Langtímaatvinnu-
leysi gerir það að verkum að
menn verða óvirkir í samfélag-
inu. Það er þvílíkt niðurbrot á
sjálfsvitund og sjálfsvirðingu,
auk bágs fjárhags, að þeir
sem fyrir því verða
missa heilsuna,“
sagði Lára. „Ég
hef horft upp á
einstæðar mæður
með lítið stuðn-
ingsnet verða
veikar af von-
leysinu einu sam-
an. Þær sjá enga
leið út, en lenda
inni í einhverj-
um vítahring. Andleg og líkam-
leg heilsa haldast í hendur.
Margir karlmenn sem flosna
upp frá fjölskyldunni lenda utan
garðs og enda sem öryrkjar.“
Lára sagði þá ábendingu rétt-
mæta að arðsemiskröfur á vinnu-
markaði væru miklu meiri nú en
áður. Hvíla ætti samfélagsleg
skylda á fyrirtækjum landsins,
bæði í opinbera geiranum og enn
frekar í einkageiranum þar sem
menn græddu á tá og fingri, að
ráða fólk til starfa sem hefði ekki
fulla starfsgetu en gæti
unnið við ýmis-
legt.
„Ég vil
að menn
fái að
v i n n a
með ör-
o r k u -
b ó t -
u n -
um, alveg eins og þeir geta, því
það skiptir svo miklu máli fyrir
heilsuna,“ sagði Lára. „Það er
hægt að hjálpa fólki með þessu
móti svo og með öflugri endur-
hæfingu. Það þarf að setja fjár-
muni í endurhæfingarverkefni.
Stuðningsverkefni af þessum
toga hafa verið reynd í litlum
mæli, en það mætti vera miklu
meira því það er þjóðhagslega
hagkvæmt.“
Lára kvaðst vilja sjá tekju-
tengingunni þannig háttað að fólk
þyrfti að vera með allverulegar
tekjur til þess að bætur færu að
skerðast. Það væri hryggilegt að
horfa upp á að þeir sem væru að
reyna að komast til vinnu aftur
úti í samfélaginu þyrftu að láta
krónu í skerðingu á móti krónu
sem þeir ynnu sér fyrir. Væri
þessu breytt yrði minna um
svarta vinnu og vinnuumhverfið
allt heilbrigðara.
jss@frettabladid.is
SÖGULEG HEIMSÓKN
Lien Chan ásamt konu sinni Fang Yu.
Fundur þeirra Hu fer fram í dag.
Hu og Lien:
Vilja klekkja
á forsetanum
PEKING, AP Lien Chan, leiðtogi
stjórnarandstöðunnar á Taívan,
er kominn til Peking til viðræðna
við Hu Jintao, forseta Kína. Svo
háttsettur taívanskur embættis-
maður hefur ekki sótt Kína heim
síðan þjóðernissinnar flúðu til
Formósu árið 1949 og settu á fót
ríkið sem í dag er Taívan.
Tilgangur fundarins er þó
ekki eingöngu að bæta samskipti
landanna tveggja heldur hafa
báðir áhuga á að einangra Chen
Shui-bian, forseta Taívan. Hann
er hlynntur formlegu sjálfstæði
eyjarinnar en slíkt er eitur í
beinum kínverskra ráðamanna.
Lien vill hins vegar sameinast
Kína á nýjan leik. ■
6.888 kr.
Tæki sem auðvelda vorverkin
ALTO háþrýstidælur
R
V
20
34
Tilbo
ð
maí 2
005
ALTO
háþr
ýstidæ
lur á
tilboð
sverð
i
Nilfisk ALTO Compact
Þrýstingur: 120 bör
Vatnsmagn: 440 l/klst
Nilfisk ALTO Compact
Þrýstingur: 100 bör
Vatnsmagn: 300 l/klst
15.888 kr.
Nilfisk ALTO Excellent
Þrýstingur: 135 bör
Vatnsmagn: 500 l/klst
28.888 kr.
Mán
udag
a til
föstu
daga
frá k
l. 8:0
0 til
18:00
Laug
arda
ga fr
á
kl. 10
:00 t
il 14:
00
Opn
unar
tími
í ve
rslun
RV:
ARNÞÓR HELGASON
Öryrkjum iðulega ráðlagður skilnaður til að
auka heimilistekjurnar.
SIGURÐUR THORLACIUS
Af og frá að starfsfólk TR ráðleggi öryrkjum
að skilja.
N
O
R
D
IC
PH
O
TO
/G
ET
TY
REYKJAVÍK Einn umsækjenda um
lóð í Lambaseli hefur fengið af-
svar. Ekki kemur til greina að
hann fái lóð þar sem hann fékk
úthlutað lóð árið 2001 þó að hann
hafi ekki nýtt sér þá úthlutun.
Eitt af skilyrðunum fyrir lóð-
um í Lambaseli er að umsækj-
endur hafi ekki fengið úthlutað
lóð í Reykjavík frá árinu 2000.
Starfsmenn umhverfis- og
tæknisviðs eru þessa dagana að
fara yfir umsóknirnar og kanna
hvort nokkur brögð séu í tafli
hjá umsækjendum, til dæmis
hvort fjölskyldur hafi skilað inn
fleiri en einni umsókn.
„Stóra stundin er svo mið-
vikudaginn 4. maí en þá mæta
umsækjendur til að velja sér
lóð,“ segir Ágúst Jónsson, skrif-
stofustjóri hjá umhverfis- og
tæknisviði.
„Sá sem er með valnúmer eitt
velur fyrstur og svo velja þeir
koll af kolli.“
Eftir að dregið var úr um-
sóknunum var gagnrýnt að
dregið skyldi úr kökuboxi.
Þótti furðu sæta að tvö sam-
stæð númer skyldu til dæmis
koma upp.
Ágúst segir að ekki hafi sér
vitanlega borist nein kæra
vegna þessa.
- ghs
Lóðirnar í Lambaseli:
Einn fær ekki lóðina
LÓÐIR Í LAMBASELI
Einn þeirra sem fékk úthlutað lóð við Lambasel fær lóðina ekki eftir allt saman þar sem
hann fékk úthlutað 2001. Starfsmenn borgarinnar á leið til sýslumanns þar sem dregið
var úr umsóknunum.
FÉLAGSMÁLASTJÓRI
Lára Björnsdóttir segir að langtímaatvinnuleysi
geri það að verkum að menn verði óvirkir í
samfélaginu.
Vill afnema tekjutengingu
Félagsmálastjórinn í Reykjavík vill afnema tekjutengingu öryrkja, annarra en þeirra sem
hafa umtalsverðar tekjur. Lára Björnsdóttir segir að samfélagsleg skylda eigi að hvíla á
fyrirtækjum um að ráða fólk með skerta starfsgetu í vinnu.