Fréttablaðið - 29.04.2005, Qupperneq 13
ALÞINGI „Ég óttast að það sé verið
að tefja málið, fyrst í allsherjar-
nefnd og síðar uppi í ráðuneyti,“
sagði Ágúst Ólafur Ágústsson al-
þingismaður um frumvarp sem
hann hefur lagt fram um afnám
fyrningarákvæðis þegar um er að
ræða kynferðisbrot gegn börnum
undir 14 ára aldri. Frumvarpið er
nú í allsherjarnefnd. Formaður
hennar, Bjarni Benediktsson, úti-
lokar ekki að það verði afgreitt frá
þessu þingi, en telur einnig koma
til álita að vísa því til dómsmála-
ráðuneytis, þar sem er að hefjast
vinna við aðgerðaáætlun gegn kyn-
bundnu ofbeldi.
„Það er jákvætt að endurskoða
hegningarlögin,“ sagði Ágúst Ólaf-
ur. „En samþykki þessa frumvarps
breytir engu í því efni. Hvað varð-
ar afnám fyrningarfrestsins þá er
óvíst hvað kemur út úr þeirri end-
urskoðun í ráðuneytinu. Ég sé enga
þörf á að vísa jafn einföldu frum-
varpi, þar sem engar alvarlegar at-
hugasemdir hafa borist, til ráðu-
neytisins. Ég skil ekki af hverju
meiri hluti allsherjarnefndar vill
ekki leyfa öðrum þingmönnum að
taka afstöðu til málsins með því að
afgreiða það úr nefndinni“. -jss
FÖSTUDAGUR 29. apríl 2005 13
Ágúst Ólafur Ágústsson alþingismaður:
Óttast töf á frumvarpi um kynferðisbrot
ÁGÚST ÓLAFUR ÁGÚSTSSON
Vill frumvarpið úr nefnd og í
umfjöllun þingsins.
ÁFANGI Á LANGRI LEIÐ
Georgí Parvanov, forseti Búlgaríu, til vinstri,
og forsætisráðherrann Simeon af Sachsen-
Coburg-Gotha munda lindarpennana.
Rúmenía og Búlgaría:
Samningar
undirritaðir
LÚXEMBORG, AP Ríkisstjórnarleiðtog-
ar Rúmeníu og Búlgaríu undirrit-
uðu aðildarsamninga landa sinna að
Evrópusambandinu við athöfn í
Lúxemborg á mánudag. Gert er ráð
fyrir að samningarnir gangi í gildi á
árinu 2007, standi stjórnvöld við að
koma í framkvæmd umsömdum
umbótum fyrir þann tíma.
Samningamenn ESB stóðu fast á
því að í samningunum yrði ákvæði
um að fresta mætti gildistöku hvors
þeirra sem er um eitt ár ef mis-
brestur yrði á umbótunum.
Viðræður um aðildarsamninga
Rúmena og Búlgara hófust árið
2000. Því var undirritun þeirra
fagnað í löndunum tveimur sem
miklum áfanga. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
Maður í ársfangelsi:
Byssa gerð
upptæk
DÓMSMÁL Maður frá Ólafsfirði hlaut
í síðustu viku árs fangelsisdóm í
Héraðsdómi Norðurlands eystra
fyrir aðild að innbrotum, fyrir að
hafa átt óskráða loftskammbyssu
og fyrir handrukkun á hálfri milljón
fyrir þriðja aðila. Maðurinn hefur
frá árinu 1996 hlotið fjölda dóma,
þar á meðal fyrir fíkniefnabrot, ölv-
unarakstur, auðgunarbrot og þjófn-
að.
Tveir voru ákærðir með mannin-
um og var annar sýknaður af kröf-
um ákæruvaldsins, en hinn dæmdur
til að greiða 120 þúsund króna sekt.
Loftskammbyssan var gerð upp-
tæk. - óká
Viðbygging við ME:
Tilboð ná-
lægt áætlun
FRAMKVÆMDIR Fimm tilboð, frá fjór-
um verktökum, bárust í viðbygg-
ingu við Menntaskólann á Egilsstöð-
um. Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á
157,5 milljónir króna og átti Viðhald
fasteigna lægsta tilboðið, 164,5
milljónir króna.
Framkvæmdin var boðin út í
tvígang en í fyrra skiptið var öllum
tilboðum hafnað þar sem þau þóttu
of há.
Ríkiskaup önnuðust útboðið, fyr-
ir hönd Fljótsdalshéraðs, og verða
tilboðin skoðuð og metin áður en
ákveðið verður hverju þeirra verð-
ur tekið. - kk
NÝ ALPAGÖNG
Verkamenn og verkfræðingar sem unnið
hafa að gerð svonefndra Lötschberg-ganga
í gegnum svissnesku Alpana fögnuðu í
gær eftir að síðasta haftið var sprengt í
hinum 34,6 kílómtera löngu göngum. Um
þau munu bruna járnbrautarlestir hlaðnar
vörubílum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P