Fréttablaðið - 29.04.2005, Qupperneq 40
„Mér finnst ég alltaf vera táning-
ur, eða bara rétt rúmlega það,“
segir Grétar Mar Jónsson, skip-
stjóri og varaþingmaður Frjáls-
lynda flokksins, sem er fimmtug-
ur í dag. Hann segist vera mikið
afmælisbarn og sló upp góðum
veislum þegar hann varð þrítug-
ur og fertugur. Og fimmtugs-
afmælið fer ekki fram í kyrrþey.
„Ég ætla að halda upp á afmælið
á morgun og býð þá vinum, kunn-
ingjum og vandamönnum í Sam-
komuhúsið í Sandgerði milli 19 og
22,“ segir Grétar Mar, sem fékk
vin sinn til margra ára, Guðmund
Árna Stefánsson alþingismann,
til að stýra veisluhöldunum.
Grétar Mar er skipstjóri á
netabátnum Sæmundi GK 4 og
tekur daginn snemma. „Við för-
um út á milli fimm og sex og
erum komnir í land fyrir kvöld-
mat.“ Og engan þarf að undra að
honum líki lífið vel. „Mig langaði
að verða skipstjóri um ferming-
araldurinn og finnst þetta mjög
skemmtilegt.“ Grétar Mar á held-
ur ekki langt að sækja áhugann á
sjósókn, faðir hans og föðurbróð-
ir eru skipstjórar og annar föður-
bróðir hans er grásleppukarl.
„Þetta er í blóðinu,“ segir hann og
unir sér einstaklega vel þessa
dagana enda mokfiskirí.
Utan sjósóknar og stjórnmála
hefur Grétar Mar brennandi
áhuga á íþróttum og var frækinn
handboltamaður á yngri árum;
æfði til að mynda undir stjórn
Guðmundar Árna á sínum tíma.
„Ég er sportidjót og fylgist bæði
með handbolta og fótbolta.“ Í
ensku knattspyrnunni fylgir hann
Liverpool að málum en liðið gerði
jafntefli við Chelsea í undanúr-
slitum Meistaradeildarinnar á
miðvikudagskvöld. Margir segja
Liverpool hafa staðið sig vel í
leiknum, sem fram fór á heima-
velli Chelsea og lyktaði 0-0. Grét-
ar Mar er ekki endilega á því. „Ja,
ég veit það ekki, þeir náðu bara
jafntefli. Ég vildi sigur.“
Miklar hláturrokur kveða við
þegar afmælisbarnið er spurt hvað
það langi í í afmælisgjöf. „Ég veit
það ekki, það er erfitt að svara
svona löguðu þegar maður er kom-
inn á þennan aldur. Ætli mig langi
ekki í Jagúar-bíl og kannski flug-
vél,“ segir hann og hlær enn meira.
Það er líklegt að líf og fjör verði
í Samkomuhúsinu í Sandgerði ann-
að kvöld enda Grétar Mar mikill
gleðimaður og viðbúið að margir
vilja heilsa upp á hann á þessum
tímamótum. ■
28 29. apríl 2005 FÖSTUDAGUR
ALFRED HITCHCOCK (1899-1980)
lést þennan dag.
Langar í Jagúar
TÍMAMÓT: GRÉTAR MAR JÓNSSON FIMMTUGUR
Í kvikmyndum er leikstjórinn Guð. Í
heimildarmyndum er Guð leikstjórinn.
Alfred Hitchcock kvikmyndaleikstjóri varð frægur fyrir
spennumyndir á borð við North by Northwest og Psycho.
timamot@frettabladid.is
AFMÆLI
Regína Thorarensen
blaðamaður er 88 ára.
Jafet Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Verðbréfa-
stofunar, er 54 ára.
Lúðvík Bergvinsson
alþingismaður er 41 árs.
Auðun Georg Ólafsson,
fyrrverandi fréttastjóri RÚV,
er 35 ára.
Rúnar Freyr Gíslason leik-
ari er 32 ára.
GRÉTAR MAR JÓNSSON „Mig langaði að verða skipstjóri um fermingaraldurinn og
finnst þetta mjög skemmtilegt,“ segir afmælisbarnið síunga.
Miklar óeirðir brutust út í Los
Angeles í Bandaríkjunum þeg-
ar kveðinn var upp dómur í
Rodney King-málinu svokall-
aða árið 1992. Kviðdómur
sem samanstóð einvörðungu
af hvítu fólki sýknaði fjóra
hvíta lögreglumenn sem voru
ákærðir fyrir að nota óhóflegt
ofbeldi við handtöku blökku-
mannsins Rodney King ári
áður. Barsmíðarnar náðust á
myndband og vöktu mikinn
óhug meðal fólks þar sem lög-
reglumennirnir sáust ganga í
skrokk á King.
Mikil reiði vaknaði í samfélagi
þeldökkra í borginni þegar til-
kynnt var um úrskurðinn. Mót-
mælendur þustu út á götur og
skeyttu skapi sínu á því sem
fyrir þeim varð. Þegar spurðist
út að lögreglan hefði misst öll
tök í nokkrum hverfum borg-
arinnar og vildi eða gæti ekki
framfylgt þar lögum fóru mót-
mælendur að brenna verslanir
og fyrirtæki á svæðinu. Daginn
eftir stóðu búðir tómar þar
sem þúsundir höfðu látið
greipar sópa.
Uppþotin stóðu í nokkra daga.
55 létust og um 2.000 særð-
ust. 12 þúsund voru hand-
teknir og var eignatjón gríðar-
legt.
Lögreglumennirnir sem höfðu
hlotið sýknudóminn voru síðar
dæmdir af alríkisdómstólum
fyrir að brjóta mannréttindi á
Rodney King. Hann hlaut tæp-
ar fjórar milljónir dala í bætur
frá Los Angeles-borg.
ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR
1106 Jón Ögmundsson er vígður
fyrsti Hólabiskup.
1945 Adolf Hitler giftist Evu
Braun.
1945 Bandarísk herlið frelsa fólk
úr útrýmingarbúðum Þjóð-
verja í Dachau
1967 Breski landhelgisbrjóturinn
Brandur strýkur úr Reykja-
víkurhöfn með tvo íslenska
lögregluþjóna um borð.
1994 Halldór Ásgrímsson tekur
við formennsku í Fram-
sóknarflokknum af Stein-
grími Hermannssyni.
1998 Varðskip kemur með stóra
flotkví til Hafnarfjarðar.
Flutningur hennar frá Bret-
landi tók einn mánuð.
Óeirðir í Los Angeles
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli,
andlát og jarðarfarir í smáletursdálkinn hér að ofan má senda á net-
fangið timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5000.
Elskulegur bróðir okkar,
Snorri Pétursson
til heimilis að Hátúni 10b,
lést miðvikudaginn 13. apríl 2005. Útförin hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hins látna, föstudaginn 22. apríl 2005.
Snorri var jarðsunginn frá Kirkjubæ í Hróarstungu og jarðsettur í
heimagrafreit að Litla Bakka í sömu sveit.
Aðalbjörg Pétursdóttir
Margrét Pétursdóttir
og aðrir aðstandendur.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma
Sigurlaug Arnórsdóttir
Smárahvammi 16, Hafnarfirði,
lést á gjörgæsludeild Borgarspítalans sunnudaginn 24. apríl.
Jarðarförin fer fram í dag, föstudaginn 29. apríl, frá Hafnarfjarðar-
kirkju.
Guðrún Axelsdóttir,
Solveig Axelsdóttir, Svavar Haraldsson,
Hrönn Axelsdóttir, Guillermo Rito
Axel Kristján Axelsson, Anna Eiríksdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
www.hjarta.is • 535 1800
Minningarkort
535 1825
ANDLÁT
Svava Ingibjörg Ingimundardóttir,
hjúkrunarheimilinu Eir, lést sunnudaginn
17. apríl. Útför hennar fór fram 27. apríl.
Sigurður Arnþór Pálsson, Melgerði 29,
Reykjavík, lést mánudaginn 18. apríl. Út-
för hans fór fram í kyrrþey.
Halldóra Auður Jónsdóttir, Hrafnistu,
Hafnarfirði, lést laugardaginn 23. apríl.
Gísli Jóhann Sigurðsson, rafvirkjameist-
ari, Bræðraborgarstíg 38, Reykjavík, lést
mánudaginn 25. apríl.
Halldór Guðjónsson, vélstjóri, Bræðra-
tungu 28, Kópavogi, lést þriðjudaginn
26. apríl.
Halldór Höskuldsson, Réttarheiði 25,
Hveragerði, lést þriðjudaginn 26. apríl.
Unnur Guðmundsdóttir, Stað, Reyk-
hólasveit, lést þriðjudaginn 26. apríl.
JARÐARFARIR
13.00 Sigurlaug Arnórsdóttir, Smára-
hvammi 16, Hafnarfirði, verður
jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju.
13.00 Þórarinn Guðlaugsson, húsa-
smíðameistari, Aðalgötu 5, Kefla-
vík, verður jarðsunginn frá Grafar-
vogskirkju.
15.00 Stefán Þórðarson, Hörgslundi 13,
Garðabæ, verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju.
Nesstofa á Seltjarnarnesi:
Umfangsmiklar endurbætur
Þjóðminjasafn Íslands hefur
ákveðið að ráðast í viðamiklar
endurbætur á Nesstofu á Sel-
tjarnarnesi. Margrét Hallgríms-
dóttir þjóðminjavörður tilkynnti
í gær að um tuttugu milljóna
króna styrkur úr danska sjóðnum
Augustins Fonden gerði safninu
kleift að ráðast í nauðsynlegar
lagfæringar.
Nesstofa er steinhús sem
dönsk yfirvöld létu reisa yfir ný-
skipaðan landlækni á sjöunda
áratug átjándu aldar. Húsið
teiknaði danski hirðteiknarinn
Jacob Fortling. Árið 1772 var
Nesstofu skipt á milli landlæknis
og lyfsala og einnig starfaði ljós-
móðir í því. Húsið komst í einka-
eign þegar embættin voru færð
til Reykjavíkur upp úr 1830. Frá
árinu 1979 hefur húsið verið í
vörslu Þjóðminjasafnsins og
hýsir lækningaminjasafnið Nes-
stofusafn.
Að sögn Þorsteins Gunnarsson-
ar arkitekts verður meginstefnan
í viðgerðum á Nesstofu sú að nálg-
ast upphaflega gerð þess eins og
kostur er. Þar eru lagðar til
grundvallar ítarlegar úttektarlýs-
ingar frá 1763 og 1767 sem og um-
merki í húsinu sjálfu. ■
NESSTOFA Húsið hýsir lækningaminjasafn,
en Danir reistu Nesstofu á sínum tíma sem
bústað fyrir nýskipaðan landlækni.