Fréttablaðið


Fréttablaðið - 29.04.2005, Qupperneq 50

Fréttablaðið - 29.04.2005, Qupperneq 50
Frá árinu 2002 hefur verið starf- rækt á Akureyri ævintýraleik- hús barna, sem í dag ætlar að halda upp á vorið með sýningu í Ketilhúsinu þar sem fram koma fjöllista- og spunahópur, ballett- hópar og danshópur kvenna. „Án þess að vilja stæra mig neitt þá er þetta barnastarf hérna mjög sérstakt fyrirbæri,“ segir Arna Valsdóttir, sem stofnaði Ævintýraleikhúsið ásamt Önnu Richardsdóttur árið 2002. „Þetta er í rauninni fjöllista- hópur. Við erum að vinna gjörn- inga hér með krökkunum og þau eru mörg orðin mjög þjálfuð í þessu. Við vinnum með ljós og skugga, spegla og hljóð, og semjum lítil hljóðverk. Svo erum við að færa út kvíarnar og rekum balletthóp undir sama hatti.“ Fram kemur fjöllista- og spunahópur og verður með sýn- inguna „Hver er ég?“ Sýningin er sköpuð í samvinnu barnanna og leiðbeinandanna, þeirra Önnu og Örnu ásamt Lindu Guð- rúnardóttur tónlistarmanns og Aðalheiði S. Eysteinsdóttur myndlistarmanns, sem einnig eru foreldrar barna í hópnum. Balletthópar koma fram und- ir stjórn Katrínar M. Þorbjörns- dóttur, en hún hefur kennt ball- ett á Akureyri undir hatti Ævin- týradansleikhúss barna frá haustinu 2004. Loks kemur fram danshópur kvenna undir stjórn Allýjar Al- dísar Lárusdóttur, en yngsti dansarinn er aðeins fimm ára en sá elsti 82 ára. Sýningarnar í Ketilhúsinu verða tvær. Sú fyrri hefst klukkan 16 en sú síðari klukkan 18. ■ 38 29. apríl 2005 FÖSTUDAGUR EKKI MISSA AF… ... sýningu leiklistardeild- ar Listaháskólans og leikara hjá Leikfélagi Reykjavíkur á Draumleik eftir August Strindberg, sem sýndur er í Borgarleikhúsinu. Nokkrar aukasýningar verða í maí. ... sýningum á Edith Piaf, leikriti Sigurðar Pálssonar í Þjóðleikhúsinu með Bryn- hildi Guðjónsdóttur í hlut- verki söngfuglsins franska. ... sýningum á verki Hávars Sigurjónssonar, Grjótharðir, sem nú er sýnt í Þjóðleikhúsinu. Í gær var mikið um að vera bæði í Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsinu og Listasafni Íslands þegar fimm gámar fullir af listaverkum eftir Diet- er Roth voru tæmdir. Í gámunum voru eitthvað um þrjú hundruð verk sem verða á yfirlitssýningu á verkum Dieters Roth. Sýningin er stærsta verkefni Listahátíðar í ár og verður hún í báðum þessum stærstu söfn- um borgarinnar og að auki í sýningarsal í húsi Orkuveitu Reykjavíkur. „Þessi verk eru bæði mjög stórar innsetningar og líka grafíkverk. Þetta verður stærsta sýning sem við höfum haft hérna í Listasafni Reykjavík- ur og ég hugsa að sama megi segja um Lista- safn Íslands,“ segir Soffía Karlsdóttir, kynningar- stjóri Listasafns Reykjavíkur. Björn Roth, sonur Dieters og sýningarstjóri þess- arar miklu sýningar, sá um að pakka öllum verk- unum niður ytra og hann var líka mættur í gær til að hjálpa við að taka verkin upp úr kössunum og raða þeim niður í sýningarsölunum. Kl. 17.00 Eins og alltaf á föstudögum og laugar- dögum verða tónleikar í Smekkleysu Plötubúð í kjallaranum í Kjörgarði við Laugaveginn. Í dag kemur þar fram hljómsveitin Benny Crespo’s Gang. menning@frettabladid.is Fimm gámar af Dieter Roth ! Í kvöld verður frumsýnd í Ís- lensku óperunni gamanóperan Apótekarinn eftir Haydn. Flytj- endur eru nemendur í tónlistar- skólum á Reykjavíkursvæðinu, og eru þeir allir þátttakendur í Óp- erustúdíói Íslensku óperunnar og Listaháskóla Íslands. „Hún er ekki sérlega þekkt þessi ópera, og það eru nokkrar ástæður fyrir því,“ segir Ingólfur Níels Árnason, sem leikstýrir. Helsta ástæðan er sú að hluta af tónlistinni við þriðja þátt óper- unnar vantar, en óperan er samin við leikrit eftir ítalskt leikrita- skáld sem var mjög frægt á þess- um tíma. „En þótt óperan sé ekki þekkt þá er tónlistin ákaflega falleg og sagan er mjög skemmtileg.“ Söguþráðurinn er reyndar býsna dæmigerð ástarflækja eins og gjarnan tíðkast í gamanóper- um. „Hún fjallar um apótekara sem er þreyttur á að vera apótekari. Hann er með stúlku hjá sér og er forráðamaður hennar, en henni fylgir gífurlegur heimanmundur þannig að hann sér sér leik á borði og ætlar að giftast henni sjálfur og fá heimanmundinn. “ Apótekarinn hefur fengið þjón sinn, ungan strák, til þess að taka við apótekinu fyrir sig. „Sá strákur er varla læs og vart hæfur til að taka við apótek- inu, en ástir hafa myndast á milli hans og stúlkunnar. Til þess að flækja málin enn meira mætir á sviðið annar strákur, sem er af hefðarættum og ætlar sér að gift- ast þessari stúlku.“ Með helstu hlutverk fara Þor- valdur Þorvaldsson, sem leikur apótekarann Sempronio, Jóna Fanney Svavarsdóttir og Ólafía Línberg Jensdóttir, sem skipta með sér hlutverki Grillettu, Guð- björg Sandholt og Sólveig Samú- elsdóttir sem skipta með sér hlut- verki Volpino og Erlendur Er- lendsson syngur hlutverk Mengo- ne. Þá eru fimm stúlkur í kór og hljómsveitina skipa sautján hljóð- færaleikarar. Hljómsveitarstjóri er Kurt Kopecki, tónlistarstjóri Íslensku óperunnar. Alls verða fimm sýningar á þessari óperu Haydns. Aðgangur er ókeypis, þannig að þetta er kjörið tækifæri fyrir alla sem vilja prófa að bregða sér í óper- una í fyrsta sinn að láta nú verða af því. ■ Hjá Máli ogmenningu eru komnar út í kilju tvær af vinsælustu skáldsögum síðustu jólavertíðar, Bítla- ávarpið eftir Einar Má Guðmunds- son og Svartur á leik eftir Stefán Mána. Báðar bækurnar vöktu mikla athygli um jólin; voru ýmist marg- prentaðar eða seldust upp. Hjá Vöku-Helga-felli er komin út Leyndardómur smaragðsaugans eftir Geronimo Stilton. Sigríður Hall- dórsdóttir þýddi. Hjá Máli ogmenningu er komin út Gáruð vötn eftir Kerstin Ekman í þýðingu Höllu Sverrisdóttur. Kerstin Ekman er einn dáðasti og vinsælasti höfund- ur Norðurlanda. NÝJAR BÆKUR VOLPINO OG APÓTEKARINN Báðir vilja þeir eignast hina ungu og auðugu Grillettu í gamanóperunni Apótekaranum,sem frumsýnd verður í Íslensku óperunni í kvöld. M YN D /H EIÐ A Misskilningur og fjaðrafok Í ÆVINTÝRALEIKHÚSINU Börnin í Ævin- týraleikhúsi barna á Akureyri verða með tvær sýningar í dag til að halda upp á vorið. Leikur að ljósi og speglum
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.