Fréttablaðið - 29.04.2005, Síða 56

Fréttablaðið - 29.04.2005, Síða 56
44 29. apríl 2005 FÖSTUDAGUR Útgáfufyrirtækið Smekkleysa hefur haldið fjölda tónleika í búð sinni síðan hún var opnuð á Lauga- veginum í október. Benedikt Reynisson, starfsmað- ur búðarinnar, sem einnig gengur undir nafninu Benni í Karate eftir útvarpsþætti sínum á XFM, segir að yfirleitt fái tónleikarnir góð við- brögð. „Við vorum með tónleikana við opnunina á búðinni og ætluðum ekkert að hafa fleiri tónleika. En síðan ákváðum við upp úr því að halda tónleika allar helgar. Þarna hefur verið að koma fólk frá tólf til þrettán ára upp í þrítugt. Það er alltaf ágætis traffík,“ segir Benni. „Þetta veitir skemmtilega stemmningu. Þarna eru ekki þess- ir týpísku bartónleikar þar sem er fullt af reyk og fullu fólki. Þetta er miklu meira aðlaðandi og fjöl- skylduvænt. Það er líka öllum vel- komið að koma og spila. Það skipt- ir ekki máli hvað þú ert gamall og hvað þú ert að gera.“ Töluverður fjöldi fólks hefur einnig komið í búðina til að sjá Smekkleysusýninguna Humar eða frægð. Þar er stiklað á stóru í sögu Smekkleysu og hljómsveitanna og skáldanna sem hafa komið við sögu hjá fyrirtækinu. Útlendingar hafa kíkt töluvert á sýninguna en þar er að finna muni sem tengjast sögu Smekkleysu, eins og kjólar af Björk. Einnig var þarna kjóll sem fyrr- verandi trommari Sykurmolanna, Sigtryggur Baldursson, klæddist á tónleikum í Bandaríkjunum en honum var stolið fyrir utan búðina fyrir nokkru síðan þar sem hann hafði verið til sýnis. Á morgun verða enn einir tón- leikar í Smekkleysubúðinni. Þar stígur á stokk bandaríska folk- pönkhljómsveitin Defiance frá Indiana. Hefjast þeir klukkan 15.00 en sveitin heldur síðan aðra tónleika klukkan 20.00 í Kaffi Hljómalind. Aðgangseyrir á þá er 500 krónur. Aðrar hljómsveitir sem troða upp í Kaffi Hljómalind verða Shirley Temple Fanclub, kvenna- sveitin Viðurstyggð, The Best Hardcore Band in the World og Deathmetal Supersquad. Að sögn Benna er Defiance frekar óvenjuleg hljómsveit. „Þetta er pönk í grunninn en hljóð- færaskipan er svolítið spes. Þeir spila á kassagítar, kontrabassa, selló, fiðlur og munnhörpur en garga samt á fullu,“ segir hann. Áður en Defiance spilar í Smekkleysubúðinni spilar þar í dag Benny Crespo's Gang sem er ung og efnileg íslensk rokksveit. Hún sækir innblástur sinn frá hljómsveitum á borð við At the Drive-In, Blonde Redhead, Nirvana, Radiohead, The Mars Volta, Portishead, Led Zeppelin, Primus og Uriah Heep. freyr@frettabladid.is Ekki þessir týpísku bartónleikar BENNI Síðan Smekkleysubúðin var opnuð á Laugaveginum í október hafa margir tón- leikar verið haldir þar. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /H EI Ð A

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.