Fréttablaðið - 29.04.2005, Page 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000
Við og
vinir okkar
Jæja, þá er það komið á hreint. Þaðvoru engin kjarnavopn í Írak.
Búið að snúa landinu á rönguna og
ekkert fundist nema bauna- og
teygjubyssur – og svo auðvitað
Saddam Hussein sem var dreginn
grindhoraður á sínu Satansfési upp
úr fremur grunnu Helvíti; varla að
þurft hafi reku til þess að skófla hon-
um þaðan út. Búið að splundra sögu
og arfleifð, þjóðargersemum og lista-
verkum, rústa byggingasögu og
frelsa suma íbúana. Frekar rösklega
gengið til verks. Saddam hefur feng-
ið nýtt heimilisfang sem ekki er upp
gefið og bíður þar eftir að hljóta sinn
dóm og taka út refsingu eftir hann.
En, hver var aftur glæpurinn?
ÞAÐ ER kominn hundur í götu-
stráka sem ekki voru í hópi frels-
aðra. Þeir búnir að ná sér í fullorð-
insbyssur og –sprengjur og teknir til
við að puðra með þeim á allt sem
útlenskt er í Írak, hermenn, friðar-
gæsluliða, blaðamenn, ljósmyndara
og telpur sem drifið hafa sig á stað-
inn til að vera góðar við alla, tala
fallega við konur og börn sem eru
óbjargálna restar af fyrrverandi fjöl-
skyldum; reyndar á tungum sem inn-
fæddir skilja ekki, en hvaða máli
skiptir það?
EINU SINNI var það Víetnam og
kommúnistar voru ógnin, núna var
það Írak og terroristar ógnin. Hvað
verður það næst?
ÞAÐ VAR virkilega fallegt af okkur
Íslendingum að styðja þessa aksjón.
Við höfum sýnt að við erum hörkutól
í honum heimi, þurfum ekkert að
vera að spreða aurum í mannrétt-
indaskrifstofu á okkar eigin hlaði og
híum vísast fljótlega á Amnesty
International. Nennum ekki vælinu í
þessu friðar- og samúðarpakki. Það
er nóg af plássum fyrir það annars
staðar.
VIÐ VILJUM skera upp herör gegn
fólki sem hugsar ekki eins og við,
trúir ekki á sama guðinn og við. Við
viljum eyðingu fornra menning-
arminja hjá óvinum að vali vina okk-
ar, eyðileggingu náttúrunnar heima
hjá okkur. Við viljum hafa stranga
reglu á hlutunum eins og við sjáum
þá og nennum ekkert að velta því
fyrir okkur að allir hlutir fela í sér
andstæðu sína; af reglu sprettur
kaos.
SÚSÖNNU SVAVARSDÓTTUR
BAKÞANKAR