Fréttablaðið - 09.06.2005, Blaðsíða 4
KAUP
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
USD
GBP
EUR
DKK
NOK
SEK
JPY
XDR
63,63 63,93
116,82 117,38
78,39 78,83
10,53 10,59
9,91 9,97
8,57 8,62
0,60 0,60
94,07 94,63
GENGI GJALDMIÐLA 08.06.2005
GENGIÐ
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
SALA
109,97 -0,27%
4 9. júní 2005 FIMMTUDAGUR
Norsk-íslenski síldarstofninn kominn inn í lögsöguna:
Demantssíld á fornum sló›um
SÍLDVEIÐAR Íslensk og færeysk skip
eru nú að veiðum skammt út af
Austfjörðum en þar hefur norsk-
íslenska síldin veiðst vel frá því
íslensku skipin héldu til veiða eft-
ir sjómannadag.
Í síðustu viku voru síldarmiðin
um 160 sjómílur út af Austfjörð-
um en í gær voru flest skipanna í
góðri veiði á svæði sem er 47 til 50
sjómílur út af Norðfjarðarhorni.
Sveinn Sveinbjörnsson, fiski-
fræðingur hjá Hafrannsókna-
stofnun, segir að norsk-íslenska
síldin hafi ekki gengið svo langt
inn í íslensku lögsöguna síðan
veiðar á henni hófust að nýju fyr-
ir um áratug og því auknar líkur á
að síldin sé að taka upp sitt gamla
göngumynstur þegar síldarævin-
týrið stóð sem hæst.
Gunnþór B. Ingvason, aðstoð-
armaður forstjóra Síldarvinnsl-
unnar, segir að síldin veiðist bæði
í nót og troll en flest skipin séu
með troll. „Það er ekki nema fjög-
urra tíma sigling á miðin frá Nes-
kaupstað og síldin er mjög stór og
góð, allt að 400 gramma demants-
síld, og fer megnið í flökun og
frystingu,“ segir Gunnþór. -kk
MEÐ LÍFIÐ Í LÚKUNUM
Jón Gunnar Sigurjónsson, verkstjóri í fisk-
iðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað,
með stóra síld sem Geysir landaði í gær.
Skerjafjar›arbraut óraunhæf
a› mati samgöngurá›herra
SKIPULAGSMÁL Samgönguráðherra
líst illa á hugmyndir Reykjavíkur-
listans um hraðbraut yfir Skerja-
fjörðinn. Álftnesingar segja að
borgaryfirvöld hafi ekkert rætt
við þau um málið.
Stefán Jón Hafstein borgar-
fulltrúi varpaði á borgarstjórnar-
fundi í fyrradag fram hugmynd-
um um lagningu vegar frá Vatns-
mýri yfir á Álftanes. Hann taldi
að jafnvel mætti gera göng styttri
en Hvalfjarðargöng sem opnuðust
nærri Álverinu í Straumsvík.
„Það á ekki að vera að afvega-
leiða fólk með hugmyndum eins
og þessari sem lausn til næstu
ára,“ segir Sturla Böðvarsson um
innlegg Stefáns. „Þetta er fram-
tíðarmúsík sem er ekki við
sjóndeildarhring í dag.“
Sturla segir að meginá-
herslan í samgöngu-
málum á höfuðborgar-
svæðinu næstu árin
verði lögð á Sunda-
brautina, og enn-
fremur á Hring-
braut-Miklubraut,
Reykjanesbraut og
Suðurlandsveg.
Sturla rifjaði einnig upp að
Reykjavíkurflugvöllur hefði verið
endurbyggður til ársins 2016 með
sérstöku leyfi borgaryfirvalda.
Gunnar Valur Gíslason, bæjar-
stjóri á Álftanesi, sagði engan frá
Reykjavíkurborg hafa rætt við
sig um þessar hugmyndir. Skerja-
fjarðarvegur er sextíu ára gömul
hugmynd sem margoft hefur ver-
ið rædd. Gunnar Valur segir að
hugmyndin hafi síðast verið skoð-
uð við gerð svæðisskipulags árið
2002, en þá hafi vegurinn ekki
verið talinn hagkvæmur. Gunnar
Valur bendir líka á að Reykjavík
sé ekki einráð um vegafram-
kvæmdir yfir Skerjafjörðinn.
„Það er óvíst að Álftnesingar
myndu samþykkja veg þarna
á milli.“
Stefán sagðist í
gærkvöldi ekki hafa
tekið mið af síðasta
svæðisskipulagi þar
sem margt hefði
breyst síðan þá. Bíla-
eign hefði aukist um
50% á nokkrum árum og
verðmæti lands ykist sí-
fellt. „Það þarf sífellt að
endurmeta hvað er hag-
kvæmt og hvað ekki,“ segir
Stefán. Hann sagðist einnig
vera sammála því að Sunda-
braut ætti að hafa forgang. „Ég
tók það skýrt fram í ræðunni,“
segir Stefán. „Það er verið að
horfa tuttugu ár fram í tím-
ann ef flugvöllurinn skyldi
fara. Vatnsmýrin myndi þá
byggjast smám saman og
þetta gæti komið í framhaldi
af því.“
grs@frettabladid.is
Ernir sækja í sig veðrið:
Stofninn vex
FUGLALÍF Arnarstofn-
inn á Íslandi telur
nú yfir 60 varppör
og telja starfs-
menn Náttúru-
fræðistofnunar
Íslands að stofn-
inn hafi ekki ver-
ið stærri í um
hálfa öld eða frá því að farið var að
fylgjast reglulega með arnarstofn-
inum. Nær öll pörin verpa á hefð-
bundnum arnarsvæðum vestan-
lands en svo virðist sem varpsvæð-
ið sé að stækka og vitað er um tvö
pör við Húnaflóa og eitt á Suður-
landi. Þá hefur óvenjumikið borið á
ungum örnum fyrir norðan og aust-
an og er það í takt við góða afkomu
undanfarin ár. - kk
Öfgamenn að verki:
Kveiktu í bíl
rá›herrans
DANMÖRK Kveikt var í bíl danska
innflytjendaráðherrans Rikke
Hvilshøj í Hróarskeldu í fyrr-
inótt. Bíllinn sjálfur er gjörónýtur
auk þess sem bruninn olli
nokkrum skemmdum á húsi ráð-
herrans. Ráðherrann og fjöl-
skylda hans slapp þó án þess að
verða fyrir meiðslum.
Tilræðismennirnir sendu strax
um morguninn fréttatilkynningu
á flestar helstu fréttastofur Dan-
merkur þar sem þeir lýsa því yfir
að nú hafi þeir fengið nóg af frið-
samlegum baráttuaðferðum gegn
„rasískri innflytjendapólitík“
dönsku ríkisstjórnarinnar.
Tölvan sem notuð var til að
senda póstinn var gerð upptæk á
netkaffihúsi í Nørrebro og leitar
lögreglan leiða til að rekja hver
sendi póstinn. ■
VEÐRIÐ Í DAG
Samgöngurá›herra segir Skerjafjar›arveg vera táls‡n og borgaryfirvöld séu a› afvegalei›a fólk me›
hugmyndinni. Hann var ekki talinn hagkvæmur fyrir flremur árum og óvíst er hvort Álftnesingar kæri
sig um hann. Stefán Jón Hafstein segir margt hafa breyst sí›an sí›asta svæ›isskipulag var samflykkt.
LÖGREGLUMENN SKOÐA FLAKIÐ Lögregla
leitar nú þeirra sem kveiktu í bíl danska
innflytjendaráðherrans.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
LÖGREGLUFRÉTT
FJÓRIR GISTU Í FANGAGEYMSLU
Fjögur fíkniefnamál komu upp
hjá lögreglunni í Reykjavík í
fyrrinótt og gistu fjórir menn
fangageymslu lögreglunnar
vegna þeirra. Málin komu upp
við hefðbundið eftirlit lögreglu,
en bæði fannst hass og am-
fetamín í fórum mannanna. Málin
tengjast ekki innbyrðis og teljast
nú upplýst.
VATNSMÝRI, ÁLFTANES OG HAFNARFJARÐAR-
GÖNG Samkvæmt hugmyndum Stefáns á að
gera veg milli Vatnsmýrar og Álftaness. Það
mætti síðan ýmist gera veg yfir í Reykjanes-
braut eða jafnvel göng, styttri en Hvalfjarðar-
göng, sem kæmu upp nærri Álverinu í
Straumsvík. Þetta kallaði hann hraðbraut
milli miðborgarinnar og Keflavíkur.GUNNAR VALUR GÍSLASON
STURLA BÖÐVARSSON
STEFÁN JÓN HAFSTEIN