Fréttablaðið - 09.06.2005, Blaðsíða 56
Myndlistarmaðurinn Garðar
Jökulsson varð sjötugur fyrr á
árinu. Það væri varla í frásögur
færandi ef ekki væri fyrir það að
hann hefur eingöngu verið mynd-
listarmaður lítinn hluta ævinnar en
hann strauk fyrst pensli eftir striga
fimmtugur að aldri.
Í tilefni afmælisins ætlar hann
að opna þrjár myndverkasýningar í
júní. Hann hefur þegar opnað þá
fyrstu í húsakynnum Skíðaskálans í
Hveradölum. Á laugardaginn opnar
Garðar sýningu í „The Three Flags
Club“ á Keflavíkurflugvelli og
síðar í mánuðinum verða sýndar
myndir eftir hann í Formlist í
Kópavogi.
Þó tiltölulega stutt sé síðan
Garðar hóf að mála hefur hann
ávallt haft mikinn áhuga á mynd-
list. „Ég hugsa að ég hafi séð allar
menningarsýningar í Reykjavík
síðustu 55 árin,“ segir hann kátur í
bragði. Garðar er algerlega sjálf-
menntaður í fræðunum en starfaði
áður í banka og átti heildsölu. Þegar
börnin hans fjögur voru farin að
heiman ákvað hann að breyta alveg
um stefnu. „Ég vissi strax hvað og
hvernig ég ætlaði að mála,“ segir
Garðar, sem fyrst um sinn málaði
sér til ánægju.
Hann segir enga sérstaka anda-
gift koma yfir sig þegar hann
málar. Hins vegar eigi hann í litlum
vandræðum með að framleiða verk.
„Mér finnst afskaplega auðvelt að
ákveða hvenær mynd er búin,“
segir Garðar. Málningarvinnan sem
hann greip stundum í með
málarameistaranum föður sínum
hafi hjálpað sér þegar hann settist
fyrst við strigann.
Garðar segist vera náttúru-
málari en íslensk náttúra hefur
heillað hann alla tíð. „Ég er hvorki
lúðrasveitar-, rauðvíns- eða rauða-
dregilsmaður,“ segir Garðar, sem
sér um allt í kringum vinnu sína
sjálfur. Hann lætur smíða ramma
fyrir sig og setur myndirnar sjálfur
í. „Þetta er eins og að fylgja barninu
sínu úr hlaði,“ segir hann hlæjandi.
Garðar hefur aðeins eina við-
miðun í verðlagningu: „Mynd er í
sjálfu sér aldrei meira virði en sá
tími og efni sem í hana fer og aldrei
meira virði en það sem einhver vill
borga fyrir hana“.
28 9. júní 2005 FIMMTUDAGUR
CHARLES DICKENS (1812-1870)
lést þennan dag.
TÍMAMÓT: GARÐAR JÖKULSSON, SJÖTÍU ÁRA, OPNAR ÞRJÁR SÝNINGAR Í JÚNÍ
„Lánsábyrgð er kerfi þar sem maður sem ekki
getur borgað fær annan mann sem ekki getur
borgað til að ábyrgjast að hann geti borgað.“
Charles Dickens er einn ástsælasti rithöfundur sem uppi hefur verið. Vinsældir
verka hans endurspeglast í því að enn er verið að prenta allar bækur hans.
timamot@frettabladid.is
ANDLÁT
Gísli Jósefsson málarameistari lést á
heimili sínu mánudaginn 6. júní.
Ásta Haraldsdóttir frá Garðshorni, Vest-
mannaeyjum, lést á Heilbrigðisstofnun
Vestmannaeyja fimmtudaginn 2. júní.
Rósa Einarsdóttir lést á Hrafnistu í
Hafnarfirði sunnudaginn 5. júní.
Jensína Sveinsdóttir frá Gillastöðum í
Reykhólasveit, áður til heimilis að Aust-
urbrún, andaðist á Hrafnistu, Reykjavík,
sunnudaginn 5. júní.
Sigurður Ármann Guðmundsson frá
Vestmannaeyjum, Kríuhólum 4, Reykja-
vík, lést á hjúkrunarheimilinu Eir sunnu-
daginn 5. júní.
Guðný Skjóldal Kristjánsdóttir, Linda-
síðu 2, Akureyri, lést mánudaginn 6.
júní.
Áskell Bjarnason lést á heimili sínu í
Danmörku mánudaginn 6. júní.
JAR‹ARFARIR
13.00 Hólmfríður Andrésdóttir, hjúkr-
unarheimilinu Skjóli, áður til
heimilis á Flókagötu 19 í Reykja-
vík, verður jarðsungin frá Háteigs-
kirkju.
13.00 Guðmundur Bergsteinn Jó-
hannsson, Birkigrund 2, Selfossi,
verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju.
13.00 Pétur M. Andrésson, Hátúni 10b,
verður jarðsunginn frá Landakots-
kirkju.
13.30 Sigurður Ingi Sigurðsson, áður til
heimilis að Víðivöllum 4, Selfossi,
verður jarðsunginn frá Selfoss-
kirkju.
Íhaldsflokkur Margrétar Thatcher,
forsætisráðherra Breta, vann stór-
sigur í þingkosningum þennan
dag árið 1983. Thatcher hafði þá
þegar setið eitt kjörtímabil en
flokkur hennar hlaut 397 sæti á
þingi en Verkamannaflokkurinn
aðeins 209. Frjálslyndi flokkurinn,
sem bauð sig fram í fyrsta sinn
þetta árið, hlaut jafn mörg at-
kvæði og Verkamannaflokkurinn
þó sætin hafi einungis orðið 23.
Margrét Thatcher varð leiðtogi
Íhaldsflokksins árið 1975 á tíma
þegar flokknum hafði hnignað
stórlega, og forsætisráðherra eftir
kosningasigur 1979. Hún tryggði
að verkalýðsfélög færu að lögum,
seldi fjölda ríkisfyrirtækja og jók
virðingu fyrir Bretum annars stað-
ar. Ein af ástæðum þessa stórsig-
urs árið 1983 var talin vera vin-
sældir Thatchers eftir sigur Bret-
lands í Falklandseyjastríðinu en
hún hafði ekki sætt sig við her-
nám argentísku herforingjastjórn-
arinnar á eyjunum. Eftir sigurinn
1983 tilkynnti Thatcher að þung
dagskrá yrði á komandi þingi.
Önnur ástæða fyrir sigri Íhalds-
flokksins var talinn vera vand-
ræðagangur innan Verkamanna-
flokksins, sem hafði klofnað fyrir
kosningarnar.
Leiðtogi Verkamannaflokksins,
Michael Foot, sagði útkomu
kosninganna harmleik fyrir þjóð-
ina. Síðar á árinu sagði hann af
sér en við honum tók Neil
Kinnock.
9. JÚNÍ 1983
ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR
1741 Ferming barna er lögboðin
hér á landi en hafði þó
tíðkast um aldir.
1880 Hornsteinn er lagður að Al-
þingishúsinu við Austurvöll
í Reykjavík.
1934 Andrés önd tekur fyrstu
skref sín til frægðar þegar
hann birtist í fyrsta sinn í
mynd Disneys, litlu gulu
hænunni.
1970 Hussein Jórdaníukonungur
sleppur naumlega frá
banatilræði.
1976 Benny Goodman, konung-
ur sveiflunnar, heldur tón-
leika á Listahátíð.
1994 Síld af norsk-íslenska stofn-
inum veiðist innan ís-
lenskrar lögsögu í fyrsta
sinn í 26 ár.
Thatcher vinnur stórsigur
Tilkynningar um merkisatbur›i,
stórafmæli, andlát og jar›arfarir
í smáletursdálkinn hér á sí›unni
má senda á netfangi›
timamot@frettabladid.is.
Augl‡singar á a› senda á
auglysingar@frettabladid.is e›a
hringja í síma 550 5000.
AFMÆLI
Örn Sigurðsson arki-
tekt er 63 ára.
Salvatore Torrini er 59 ára.
Jón Torfi Jónasson prófessor er 58 ára.
Svava Björnsdóttir listamaður er 53
ára.
Guðni Már Henn-
ingsson útvarpsmað-
ur er 53 ára.
Helgi Hjörvar alþing-
ismaður er 38 ára.
Fyrsta starf Katrínar Jakobs-
dóttur, varaformanns Vinstri
grænna, var barnapössun en
þrettán ára passaði hún litla
frænku sína. „Ég þurfti bara að
labba og fékk borgað fyrir, mér
fannst þetta afar skemmtilegt,“
segir Katrín sem hefur ekki
passað börn síðan. Hún segist
ekki vera mikil barnagæla þó
hún hafi verið það á sínum tíma
enda fylgi það aldrinum.
Katrín segist hafa lært heil-
mikið á starfinu. „Þá voru engin
námskeið og maður varð að átta
sig á þessu sjálfur,“ segir Katrín
sem stundum lenti í því að barn-
ið grét stanslaust án þess að hún
hefði hugmynd um af hverju eða
hvað hún ætti að gera.
Katrín stóð í barnapössun í
tvö sumur. Fyrra sumarið hjálp-
aði hún móðurinni með nýfætt
barnið en næsta sumar trillaði
hún um með eins árs barnið í
kerru. Hún segist mest hafa ver-
ið ein á ferðinni. Það virðist hafa
átt ágætlega við hana því næsta
starf hennar var póstútburður.
Á þessum tíma voru vinir
hennar í unglingavinnunni.
Katrín er fegin að hafa sloppið
við að fara í hana þar sem hún
þjáist af gróðurofnæmi og lík-
lega hefði hún eytt sumrinu
hnerrandi með rautt nef.
Katrín segist búa vel að þess-
ari reynslu sem muni nýtast
henni ef hún eignast sjálf börn í
framtíðinni. ■
Innilegar þakkir til ykkar allra fyrir samúðina,
kveðjurnar, blómin og þann mikla stuðning sem
þið hafið sýnt fjölskyldunni vegna andláts og út-
farar ástkærs eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður og afa,
Sigurjóns G. Sigurjónssonar
Birkigrund 71, Kópavogi.
Anna Ásgeirsdóttir
Freyja Sigurjónsdóttir Þórir Sigurgeirsson
Ásgeir Sigurjónsson Silja Sverrisdóttir
Drífa Sigurjónsdóttir Ólafur Baldursson
og barnabörn
Elskuleg systir okkar og mágkona,
Jófríður Ólafsdóttir
Staðarhrauni 3, Grindavík,
verður jarðsungin frá Grindarvíkurkirkju laugardaginn 11. júní
kl. 11.00.
Jón Ólafsson Agnes Jónsdóttir
Pálína Ólafsdóttir Ísleifur Haraldsson
Gísli Örn Ólafsson Njála Vídalín
Magnús Ólafsson Ragnheiður Arngrímsdóttir.
FYRSTA STARFIÐ:
Heppin a› sleppa vi› unglingavinnuna
KATRÍN JAKOBSDÓTTIR
Er ekki rauðadregilsmaður
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
Á VINNUSTOFUNNI „Mynd er í sjálfu sér aldrei meira virði en sá tími og efni sem í hana fer og aldrei meira virði en það sem einhver
vill borga fyrir hana.“