Fréttablaðið - 09.06.2005, Blaðsíða 34
Trjáplöntusalan
Mosskógur Mosfellsdal
Opið 9 – 19 alla daga • símar: 5668121 og 6636173
Mikið úrval af víðiplöntum
og öðrum trjám
Grænmetismarkaðurinn opnar um miðjan júlí
Tívolístóllinn er töff hönnun
Bo Bedre hefur valið Panton-stólinn hönnun mánaðarins.
Stóllinn varð fyrst frægur og
feikivinsæll fyrir sléttri hálfri öld
er Verner Panton hannaði hann
sérstaklega fyrir eitt af veitinga-
húsunum í Tívolí. Verner Panton
(1926-1998) var ótrú-
lega framsýnn og
frumlegur í hönn-
un sinni, enda
teiknaði hann hús-
gögn úr plasti,
trefjaplasti, svampi
og ýmsum gerviefnum
á meðan aðrir notuðust
enn eingöngu við tré.
Panton notaði ekki að-
eins óvenjulegan efni-
við, heldur fór hann
óhefðbundnar leiðir í
litavali.
Tívolístóllinn var tekinn úr
framleiðslu um tíma en gekk í
endurnýjun lífdaga þegar fyrir-
tækið DJOB kom með ögn endur-
bætta útgáfu, sem meðal annars
var sýnd á skandinavísku hús-
gagnasýningunni í Bella Center í
Kaupmannahöfn seinnihluta maí-
mánaðar. Grindin er úr stáli og
setan og bakið fléttað úr polyethy-
len eða næloni, sem gerir það að
verkum að stóllinn getur staðið
utan dyra jafnt sem innan, meira
að segja í ís-
lenskri veðr-
áttu. Tívolí-
stóllinn fæst í
svörtum, hvít-
um og rauðum
lit og þeir sem
hafa áhuga á
að skoða
þessa sí-
gildu hönn-
un geta litið við í
Epal í Skeifunni 6.
Sýning á húsgögnum eftir norska
tvíeykið Steinar Hindenes og Dave
Vikören opnar laugardaginn 11.
júní í Hönnunarsafni Íslands við
Garðatorg. Síðastliðin 11 ár hafa
þeir verið í framvarðarsveit
norskra húsgagnaarkitekta og selt
húsgögn sín vítt og breitt um heim-
inn, og hefur hönnun þeirra m.a.
verið seld hjá Epal hérna á Íslandi.
Sendiherra Norðmanna á Íslandi,
Guttorm Vik, mun opna sýninguna
á laugardaginn kl. 13, en þar mun
söngkona frá Bergen, Heidi Marie
Vestheim, einnig syngja. Hindenes
og Vikören eru staddir á landinu í
tilefni af sýningunni.
Sýningin ,,Sirkús – Ný hönnun
frá Bergenî verður opin til 4. sept-
ember. Sýningarsalurinn við
Garðatorg er opinn alla daga nema
mánudaga kl. 14-18. Aðgangur er
ókeypis.
Norsk framúrstefnuleg hönnun
Sýning frá Sirkús í Hönnunarsafni Íslands þar sem sýnd er ný hönnun frá Bergen í Noregi.
9. júní 2005 FIMMTUDAGUR
Gott andrúmsloft
á baðherberginu
Einfalt er að halda baðherberginu
smekklegu með nokkrum fallegum
vel völdum hlutum. Eftirfarandi atriði
ber að hafa í huga þegar keyptir eru
munir inn á baðherbergið sem bæði
skreyta og gera gagn.
1. Hafðu handklæðin bara í einum
eða tveimur litum, og haltu þig
við sama mynstrið. Annars lítur
baðherbergið út eins og þvotta-
herbergi. Baðmottan ætti að vera
í stíl við handklæðin.
2. Vandaðu valið á sturtuhenginu.
Gegnsætt sturtuhengi opnar og
stækkar lítið baðherbergi, á með-
an litað þarf að samræmast lita-
samsetningunni.
3. Hengdu upp hillu fyrir ofan kló-
settið fyrir hluti eins og saman-
brotna þvottapoka. Notaðu litlar
körfur fyrir hluti eins og sápur eða
auka rakblöð.
4. Settu pappírsþurrkur í körfu sem
er í stíl við tannburstaglasið og
sápudiskinn.
5. Gerðu baðherbergið persónulegt
með því að hengja upp fallega
innrammaða mynd eða koma
pottaplöntu fyrir á góðum stað.
Stóllinn sá arna heitir
tveimur nöfnum: Pant-
on-stóllinn og Tívolístóll-
inn. Bo Bedre valdi
hann stól júnímánaðar.
Monk er stóll sem hægt er að stafla upp.Stóllinn Chico frá fyrirtækinu Sirkús.
Ávextir fallegir til skrauts
ÞAÐ ER ÓDÝRT OG EINFALT MÁL AÐ FRÍSKA UPP Á HEIMILIÐ MEÐ ÞVÍ AÐ
NOTA ÁVEXTI TIL SKRAUTS.
Ef blásið er til veislu þá þarf að sjálfsögðu að klæða heimilið í veislubúning.
Blóm eru alltaf falleg sem skreyting á borð eða í glugga en það er einnig
tilvalið að notast við ávexti. Hægt er að velja ávexti eftir litum og lögun og
setja í skálar um allt hús eða láta þá liggja á borðum og í hillum. Utanhúss
er flott að láta epli fljóta í skál með flotkertum og
grænar límónur sóma sér vel neðst í
blómavasa þar sem trjágreinum er stungið
inn á milli þeirra.
Eftir veisluna er hægt að
borða ávextina, búa
til ávaxtasafa eða
nota þá í
bakstur.