Fréttablaðið - 09.06.2005, Blaðsíða 45
■■■■■■■■■■■
Frönsk arfleifð
Mikil áhersla er lögð á franska arf-
leifð á Fáskrúðsfirði og reynt hefur
verið að gera hana sýnilegri og draga
hana fram í bænum.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
„Í viðleitni okkar til að
draga fram franska arfleifð
höfum við Franska safnið
og auk þess erum við að
setja upp söguskilti við
marga staði í bænum og
utan við hann sem vísa í
tengsl bæjarins við Frakk-
land. Ætlunin er að hafa lít-
inn pésa með korti yfir stað-
setningu skiltanna. Hér geta
ferðamenn komið við í Kaffi
Sumarlínu sem er staðsett í
gömlu uppgerðu húsi á Fá-
skrúðsfirði. Þar er lögð
áhersla á að vera með veit-
ingar úr hráefni af staðn-
um,“ segir Hrafnhildur Ýr
Víglundsdóttir, upplýsinga-
fulltrúi Austurbyggðar, á
Fáskrúðsfirði.
„Hér voru, þegar mest var,
120 franskar fiskiskútur í
firðinum í kringum alda-
mótin 1900. Ein af fáum að-
albækistöðvum frönsku sjó-
mannanna hér við land var
á Fáskrúðsfirði. Ætlað er að
þetta tímabil hafi staðið frá
síðari hluta 19. aldar og þar
til að síðustu skúturnar fóru
héðan á seinni hluta fjórða
áratugs tuttugustu aldar.
Hér á Fáskrúðsfirði var
reistur fyrsti franski spítal-
inn og áhugasamtök eru að
reyna að byggja hann upp
fyrir ferðamenn. Um miðjan
júlí opnar sýning úr grunn-
skóla Fáskrúðsfjarðar á lík-
ani franska spítalans. Hér
verða Franskir dagar 22.-24.
júlí, árleg bæjarhátíð, þar
sem íbúafjöldi tvöfaldast
yfir eina helgi.
Vinabær Fáskrúðsfjarðar í
Frakklandi er Gravelines á
norðurströnd Frakklands,
ekki langt frá landamærum
Belgíu. Á Frönskum dögum
kemur einmitt listakona frá
Gravelines sem sýnir verk
sem hún hefur unnið úr
pappamassa.“
Franska safninu á Fáskrúðsfirði er
ætlað að varðveita franska arfleifð
bæjarins.