Fréttablaðið - 09.06.2005, Blaðsíða 29
3FIMMTUDAGUR 9. júní 2005
Hvað eiga John Galliano og Yves Saint Laurent sameinginlegt?
Jú, þeir hafa báðir verið hönnuðir hjá Dior-tískuhúsinu. Í ár eru
liðin hundrað ár frá fæðingu meistara Dior. Hann fæddist 21.
janúar 1905 í smábæ í Normandíhéraði en lést aðeins 52 ára.
Fyrsta tískuhúsið sem hann starfaði fyrir var Robert Piguet, síð-
an var hann hjá Lucien Lelong áður en hann opnaði Dior-tísku-
hús 1947 í húsi númer 30 á aðallúxusgötu Parísar, Avenue
Montaigne. Þar eru höfuðstöðvar Dior enn í dag.
Dior hlaut samstundis góðar viðtökur á eftirstríðsárunum
þegar fólk þyrsti í lúxus og glæsileika. Bandaríska „Vogue“ kall-
ar stílinn „New Look“. Dior fékk feikigóðar móttökur fyrir vest-
an og kvikmyndastjörnur vildu allar klæðast fatnaði frá honum.
Kvenföt voru ekki lengur einungis hugsuð til að hylja nektina
þegar hlaupið var niður í kjallara í loftárásum, heldur áttu þau
að vera glæsileg og 1947 kom fyrst fram „bar-dragtin“ sem enn
lifir í hönnun John Galliano. Dragtin tekur mið af því að eftir
stríðið var ekki lengur þörf á konum á vinnumarkaðnum, því
varð tískan glæsileg en um leið óþægileg með mjóu mitti. Kon-
an var aftur reyrð á sinn stað, pilsin síkkuðu en höfðu á stríðsár-
unum verið með klaufum svo konur gætu hjólað í þeim í bens-
ínskorti og samgönguleysi. Yves Saint Laurent var aðstoðarmað-
ur Dior og eftir sviplegt fráfall Dior 1957 sýndi Saint Laurent
fyrstu línu sína fyrir Dior 1958, aðeins 21 árs, fjórum árum áður
en hann opnaði sitt eigið tískuhús.
John Galliano, núverandi hönnuður Dior, tók við 1999 og hef-
ur gert Dior að nýju að stórveldi í tískunni. Ekki hefur velgengni
Hedi Slimane, sem hefur hannað herratískuna frá 2001, spillt
fyrir en hann skapaði ímynd hins unga granna karlmanns í
þröngum buxum, hvítri skyrtu með örmjótt bindi, sem minnir á
anorexíusjúkling. Dior er í dag aðalmjólkurkýr LVMH (Luis
Vuitton Moet Hennessy), stærstu lúxussamsteypu heims.
Sagt hefur verið um Coco Chanel að hún hafi frelsað konuna,
(fleygði lífstykkinu, stytti pilsin og tók upp herrasnið í jökkum).
Yves Saint Laurent er sagður hafa gefið konum vald, (buxna-
dragtin, dragtir fyrir ráðherra og ritara). Engin slík setning er
til um Dior. Hjá honum var fegurð og kvenleiki aðalatriðið, tíska
fyrir tískuna. Þeim sem eru á ferð um Frakkland má benda á
safnið á æskuheimili Christian Dior þar sem stendur yfir sýning
á starfi hans: Musee et Jardin Christian Dior, Villa Les Rhumbs,
50400 Granville.
Úr háborg tískunnar
BERGÞÓR BJARNASON SKRIFAR FRÁ PARÍS
Hundrað ára afmæli
skapara „New Look“
• Fyrsti fasti hárliturinn sem
inniheldur Aloe Vera
• Þekur gráu hárin 100%
við fyrstu litun
• 1-2 litanir í pakkanum
• Inniheldur ekki ammoniak
Nærðu hárið
um leið og
þú litar það!
náttú
ruleg
ur
fastu
r
hárli
tur
Fallegt og glansandi hár
Aloe Vera
Lyfjaval,
Móðurást,
Lyfja Borgarnesi,
lyfsalan Hólmavík.
Ekki láta appelsínuhúðina í friði:
raunhæfur árangur hjá 85%*
PERFECTSLIM
EFTIR 24 TÍMA
MINNI APPELSÍNUHÚÐ + STINNANDI ÁHRIF
PerfectSlim inniheldur niðurbrjótandi efni
gegn fitu, vinnur gegn appelsínuhúð sem safnast
hefur fyrir á lærum og rassi.
Bætt með Par-Elastyl™, sem sléttir og stinnir
húðina stig af stigi.
*
Pr
óf
að
á
5
0
ko
nu
m
í
2
vi
ku
r
**
M
æ
lt
m
eð
þ
.t.
g.
t
æ
kj
um
á
2
4
ko
nu
m
**
*
Pr
óf
að
á
5
0
ko
nu
m
Árangur:
Eftir 8 daga: +41% þéttari, +89% stinnari**
Eftir 15 daga: -1 cm minna ummál á lærum***
Viltu vita meira: www.lorealparis.com
BODY-EXPERTISE. ÞÍN EIGIN FEGRUNARAÐGERÐ.
ÞVÍ ÞÚ ÁTT ÞAÐ SKILIÐ.
Fitubrennsla Fitubrennsla
Mildur og
góður ilmur
NAOMI CAMPBELL HEFUR SETT SITT
SJÖTTA ILMVATN Á MARKAÐ.
Ofurfyrirsætan Naomi Campbell hefur
unnið að þróun sinnar eigin ilm- og lík-
amsvörulínu síðan árið 1999 og er nú
sjötta ilmvatnið hennar, Paradise
Passion, komið á markað. Paradise
Passion er blanda blóma með ávaxta-
og moskustónum. Í innsta kjarna ilms-
ins er eitt blóm sérlega áberandi en
það er hið suðræna Papaja-blóm. Glas-
ið er glæsilegt og ilmurinn afskaplega
mildur og góður. Ilmvatninu fylgir lík-
amslína; sturtugel, mýkjandi húðkrem
og lyktareyðir.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
AR
I
Suðrænt og seiðandi
NÝI SUMARILMURINN FRÁ ESCADA ER
ANSI HRESSANDI.
Suðræni og seiðandi ilmurinn Rockin’
Rio er nýi sumarilmurinn frá Escada.
Ilmurinn er blanda af ávöxtum, blóm
og sítrus og er
hann afar ferskur,
sterkur en ekki of
yfirþyrmandi.
Umbúðirnar eru
jafn frískandi og
ilmurinn, ung
stúlka að dansa
með blóm í
kringum sig og
flaskan er afar lit-
rík í gulum og
bleikum tónum.
Ilmurinn er bæði
til í þrjátíu og
fimmtíu millilítra glasi, rakagefandi
húðmjólk í 150 millilítra umbúðum og
bað- og sturtugel í 150 millilítra um-
búðum.
Litir gull, silfur,
svart og hvítt
Verð 2.989.-
Laugavegi 100, S. 561 9444
Sandala
mokkasínur
Vorum að taka upp helling
af nýjum vörum
S M Á R A L I N D
Sími 517 7007
Glæsilegt úrval
af sund- og undirfatnaði
fyrir konur á öllum aldri