Fréttablaðið - 09.06.2005, Blaðsíða 8
1Hvað heitir söngvari hljómsveitarinn-ar Iron Maiden?
2Hvað heitir knattspyrnuliðið semGuðjón Þórðarson þjálfar?
3Hvar á landinu er Skorradalur?
SVÖRIN ERU Á BLS. 50
VEISTU SVARIÐ?
8 9. júní 2005 FIMMTUDAGUR
Saurmengun í Arnarneslæk í Garðabæ:
Skólp var leitt í drenlögn
HEILBRIGÐISMÁL Mælingar heilbrigð-
iseftirlits í Arnarneslæk í Garðabæ
í maí sýndu saurgerla langt yfir öll-
um mörkum. Fyrir neðan
Ljósamýri í Garðabæ mældust
17.000 saurkólígerlar í hverjum
100 millilítrum vatns og 73 þúsund
saurkokkar. Til samanburðar má
nefna að í Hraunholtslæk þar sem
ástandið er „verst“ mældust 34
saurkólígerlar og 47 saurkokkar í
hverjum 100 millilítrum vatns.
Guðmundur H. Einarsson,
framkvæmdastjóri Heilbrigðis-
eftirlits Hafnarfjarðar- og Kópa-
vogssvæðis, sagði ekki hafa verið
ástæðu til að girða svæðið af. „Ef
þetta væri hreint skolp þá hlypu
tölurnar á milljónum, en þetta er
ekki til að vaða í og við viljum
meina að þarna hafi eitthvað farið
úrskeiðis.“
Gústaf Jónsson forstöðumaður
þjónustumiðstöðvar Garðabæjar
taldi síðdegis í gær að ástæða
mengunarinnar væri fundin og
rakti hana til mistaka við teng-
ingu skólplagnar frá íbúðarhúsi.
„Svo liggur þetta trúlega líka í því
hversu lítið vatn er í læknum og
þessar tölur því fljótar að fara
upp,“ sagði hann.
„Við gerum við þetta í hvelli.“
-óká
Aldraðir og 75 prósent öryrkjar:
Br‡r og krónur
greiddar ni›ur
HEILBRIGÐISMÁL Aldraðir og
öryrkjar með 75 prósent
örorkumat geta nú fengið
greiddan niður kostnað við föst
tanngervi, það er brýr og krónur,
um 40 – 80 þúsund krónur á
hverju almanaksári.
Jón Kristjánsson, heilbrigðis-
og tryggingamálaráðherra, hefur
sett reglugerð um þátttöku hins
opinbera í kostnaði við
tannlækningar. Samkvæmt henni
er Tryggingastofnun ríkisins
heimilt að greiða kostnað aldraðra
og öryrkja eins og að ofan greinir
vegna fastra tanngerva.
Reglugerðin tekur gildi við
birtingu.
Auk þessarar breytingar
verður TR nú heimilt að greiða
niður tannlæknakostnað til að
koma í veg fyrir alvarlegar
afleiðingar sýkinga í tönnum og
tannvegi á heilsu ónæmisbældra
sjúklinga. Niðurgreiðslan tekur
einkum til sjúklinga með
hvítblæði eða krabbamein á
höfuð- eða hálssvæði,
væntanlegra líffæraþega,
sjúklinga sem þurfa mergskipti
og annarra sambærilegra
sjúklinga. - jss
Fjárlög ESB:
Blair hótar
neitunarvaldi
BRETLAND, AP Fyrst stjórnarskrár-
sáttmálinn og nú fjárlögin? Breski
forsætisráðherrann Tony Blair
varaði við því í gær að Bretar
myndu beita neitunarvaldi gegn
næsta fjárlagaramma Evrópusam-
bandsins ef hin ESB-ríkin munu
standa fast á þeirri kröfu að Bretar
gefi eftir endurgreiðslu sem þeir
hafa fengið úr sjóðum ESB frá því
að Margaret Thatcher samdi um
hana árið 1984.
Hótun Blairs setur sambandið í
enn meiri vanda eftir að bæði
franskir og hollenskir kjósendur
höfnuðu stjórnarskrársáttmálan-
um í þjóðaratkvæðagreiðslum í síð-
ustu viku. Til stendur að leggja
endanleg drög að fjárlagaramma
ESB á tímabilinu 2007-2013 á leið-
togafundi í næstu viku,
Milljarða-endurgreiðslurnar
sem Bretar fá með þessum hætti
eru þyrnir í augum ráðamanna í
meginlandsríkjum ESB. Þeir telja
þær vera tímaskekkju og tákn um
að Bretar telji sig ekki eiga fulla
samleið með meginlandinu. Ger-
hard Schröder Þýskalandskanslari
lýsti vonbrigðum með afstöðu
Bretlandsstjórnar. „Allir verða að
hreyfa sig,“ sagði hann og knúði á
um að samningum um fjárlagara-
mmann 2007-2013 verði lokið án
tafar.
Evrópuþingið ályktaði í gær að
miða skyldi fjárlög ESB á þessu
tímabili við 1,07 prósent af þjóðar-
framleiðslu aðildarríkjanna. Þessi
tala er mitt á milli þeirra 1,14 pró-
senta sem framkvæmdastjórn ESB
leggur til og þess 1 prósents sem
þau sex aðildarríki, sem mest
greiða í sjóði ESB, hafa lagt til. - aa
Sprengjuárás á Bandaríkjaher:
Tveir drepnir
í Afganistan
AFGANISTAN, AP Tveir bandarískir
hermenn dóu og átta særðust í
sprengjuvörpuárás á herstöð í
austurhluta Afganistans í gær, að
því er fram kom í tilkynningu
Bandaríkjahers. Árásin var gerð í
austurhluta Paktika-héraðs, nærri
landamærum Pakistans.
Í fyrstu sagði herinn að aðeins
einn hefði látist, en talsmaður
hersins leiðrétti þær upplýsingar
síðar. Hermennirnir sem urðu
fyrir árásinni voru að afferma
CH-47 Chinook þyrlu. Leitað var
að árásarmönnunum úr lofti en
þeir fundust ekki. ■
meg
a
ARNARNESLÆKUR NEÐAN LJÓSAMÝRI
NIÐURGREIÐSLA Tryggingastofnun hefur
nú fengið heimild til að greiða niður föst
tanngervi fyrir aldraða og öryrkja.
BRETLAND Breskir vísindamenn
telja sig hafa fundið út að fullnæg-
ingarvandi kvenna kunni að tengj-
ast erfðum. Breska ríkisútvarpið,
BBC, greinir frá rannsókn tveggja
vísindamanna á 4.000 kvenkyns
tvíburum á aldrinum 19 til 83 ára
sem leiðir í ljós að fullnæging
kvenna er ekki einvörðungu tengd
sálarlífi og félagslegum þáttum
líkt og sumir hafa haldið fram.
Þeir segja þessa ólíku
eiginleika kvenna hugsanlega hafa
þróast til að gera konum kleift að
finna sem hentugastan maka auka.
Þá telja þeir að verði greint hvaða
gen ráða þessum þáttum mætti
mögulega nota þá vitneskju til að
þróa lyf sem hjálpuðu konum að fá
fullnægingu. Niðurstöðurnar
benda einnig til þess að konur sem
auðvelt eiga með að fá fullnægingu
séu líklegri til að sætta sig við síð-
ur bólfiman maka.
Helmingur tvíburanna var ein-
eggja og deila því sama erfðaefni,
en hinn helmingurinn ekki. Kon-
urnar voru svo beðnar um að svara
skriflega spurningum um ástarlíf
sitt. ■
Niðurstöður nýrrar breskrar rannsóknar á tvíburum:
Fullnægingarvandi
bundinn erf›um
UNDIRBÚA LEIÐTOGAFUND Leiðtogar ESB-ríkjanna tínast þessa dagana hver á eftir öðrum
til formennskuríkisins Lúxemborgar til undirbúnings leiðtogafundarins í næstu viku. Í gær
var danski forsætisráðherrann Anders Fogh Rasmussen (t.h.) hjá hinum lúxemborgska
starfsbróður sínum, Jean Claude Juncker. Blair hittir Juncker síðastur.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
Skotárás við leikskóla:
Skotinn úr
bíl á fer›
SVÍÞJÓÐ 37 ára gamall maður varð
fyrir skotárás fyrir utan við leik-
skóla í Helsingjaborg í Suður-Sví-
þjóð um helgina. Komu skotin úr
Audi-bifreið sem ók þar framhjá á
fleygiferð. Vitni tók niður bílnúm-
erið og leiddi það lögreglu á spor
hins grunaða, sem er góðkunningi
hennar. Það er fórnarlambið
reyndar einnig og því er talið lík-
legt að árásarmaðurinn hafi átt
einhverjar óuppgerðar sakir við
það.
Maðurinn var lagður inn á spít-
ala og að sögn sænsku lögreglunn-
ar er ástand hans stöðugt. Málið
er í rannsókn. ■