Fréttablaðið - 09.06.2005, Blaðsíða 65
SVERRIR GUÐJÓNSSON Sönghópurinn
Voces Thules tekur þátt í Mandela tónleik-
unum í Noregi.
Syngja me›
í Tromsø
Sverrir Guðjónsson og félagar
hans í sönghópnum Voces Thules
taka þátt í styrktartónleikum Nel-
sons Mandela, sem haldnir verða í
Noregi á laugardaginn.
Ástæðan er sú að þeir sungu
inn á plötuna Earth Affair með
Gunnlaugi Briem, sem var boðið
að taka þátt í þessum tónleikum
þar sem platan hefur greinilega
vakið athygli.
„Við syngjum með Gulla á tón-
leikunum,“ segir Sverrir Guðjóns-
son, „en jafnframt ætlum við að
syngja eitt númer úr Þorlákstíð-
um, þannig að dýrlingurinn verði
með í för.“
Meðal þeirra sem koma fram á
tónleikunum í Tromsø eru Brian
May gítarleikari Queen, Peter
Gabriel, Annie Lennox og Robert
Plant.
Nóg er að gera hjá sönghópn-
um þessa dagana, því í dag syngja
þeir á norrænni ráðstefnu meina-
tækna í Háskólabíói. Þar flytja
þeir tónlist við kvikmyndina
Fimmta árstíðin, sem var gerð
eftir handriti Friðriks Erlingsson-
ar og sýnd í sjónvarpinu í vetur.
„Ég sá þessa mynd og langaði
þá að prófa að setja við hana okk-
ar músík, sem er alveg frá fornu
til samtíma og stilla þá músíkina
inn á dramatíska framvindu í
myndinni.“ ■
FIMMTUDAGUR 9. júní 2005 37
Einn stærsti leiklistarviðburður árs-
ins verður á Akureyri dagana 22.-26.
júní þegar önnur alþjóðleg leiklist-
arhátíð Bandalags íslenskra leikfé-
laga verður haldin.
Ellefu sýningar verða á hátíðinni,
þar af tvær erlendar, en leikhópar
víðs vegar að af landinu taka þátt.
Að auki verða í boði leiksmiðjur þar
sem listafólk í fremstu röð á sviði
leikbrúðugerðar, stomps og sviðs-
slagsmála leiðbeinir hátíðargestum.
Einnig mun klúbbur hátíðarinnar
starfa á kvöldin og þar má gera ráð
fyrir uppákomum af ýmsu tagi. Það
verður því stanslaus leiklist frá
morgni til kvölds.
Fjölbreytni einkennir dagskrá
hátíðarinnar og sú mikla nýsköpun
og gróska sem hefur verið aðals-
merki íslensks áhugaleikhúss und-
anfarin ár setur sterkan svip á hana.
Í boði verða ný íslensk verk, nútíma-
klassík úr leikbókmenntum heims-
ins, rómuð íslensk verk frá fyrri
árum og nýstárleg tilraunaverk unn-
in í hópvinnu undir leiðsögn leið-
beinanda.
Erlendis frá kemur sænski nýs-
irkushópurinn Cirkity Gravikus
sem hefur aðsetur í Gautaborg en er
fjölþjóðlegur hópur sem hefur vakið
mikla athygli fyrir frumlegar og
óvenjulegar sýningar þar sem
blandað er saman þöglu leikhúsi,
tónlist og dansi og klassískum
sirkusbrögðum.
Frá Litháen kemur síðan leikhóp-
ur frá bænum Jonava með sýning-
una „Bobos“, konur, sem byggð er á
þjóðsagnasafni sem gengur undir
nafninu Þorp fíflanna. Jonavaleik-
húsið er eitt öflugasta leikfélag
landsins og hefur oft verið fulltrúi
Litháen á alþjóðlegum hátíðum. ■
Sænskur n‡sirkus
og florp fíflanna
CIRKITY GRAVIKUS Sænskur nýsirkus tekur þátt í alþjóðlegri leiklistarhátíð áhuga-
manna sem haldin verður síðar í mánuðinum á Akureyri
Skífan Laugavegi 26 opið alla daga til 22 • Skífan Smáralind • Skifan Kringlunni • www.skifan.is
...skemmtir þér ; )
System Of A Down - Mezmerize
Coldplay -
X&Y
1.999 kr.
1.999 kr.
Gorillaz - Demon Days
Barbie Summer Hits Il Divo - Il Divo Mariza
Duran Duran - Astronaut Duran Duran - Greatest
Í NÆSTU
VIKU...
Bubbi - Ást Bubbi - ...í 6 skrefa... Foo Fighters - In Your...
Gavin DeGraw - Chariot
SUMAR
TILBOÐ!
Allar nýjar og vinsælar geislaplötur á sumartilboði í verslunum Skífunnar
1.999 kr.1.999 kr.1.999 kr.
1.999 kr. 1.999 kr. 1.999 kr. 1.999 kr.
CD+DVD
Hátí› í
Borgarfir›i
Borgfirðingahátíð er að ganga í
garð í björtu og verður með ör-
lítið breyttu sniði í ár þótt fast-
ir liðir séu margir hverjir á
sínum stað.
Hátíðin hefst á föstudag og
stendur fram á sunnudags-
kvöld. Á föstudaginn verður
meðal annars baðstofukvöld
með Álftagerðisbræðrum í
hlöðunni á Indriðastöðum í
Skorradal. Síðar um kvöldið
verða djass- og blústónleikar á
Búðarkletti og miðnætursund
verður í Hreppslaug í Skorra-
dal.
Á laugardaginn verður síð-
an efnt til útihátíðar við Borg-
arbrautina í Borgarnesi og um
kvöldið verður hinn hefð-
bundni Ullarsokkur í Fossa-
túni, þar sem verður brekku-
söngur og íslensk stuðsveifla á
árbakkanum. ■