Fréttablaðið - 09.06.2005, Qupperneq 12
FLÓÐ Í BÚLGARÍU Kona, sem hefur forðað
sér upp á þak bíls síns, bíður björgunar í
bænum Pernik um 30 km suðvestur af
búlgörsku höfuðborginni Sofíu í gær. Mikil
úrkoma síðustu vikur hefur valdið skað-
ræðisflóðum víða um landið sem hafa
kostað nokkur mannslíf og valdið tjóni á
mannvirkjum.
12 9. júní 2005 FIMMTUDAGUR
RAUFARHÖFN Guðný Hrund Karls-
dóttir, sveitarstjóri í Raufarhafn-
arhreppi, segist hafa orðið fyrir
vonbrigðum með lítinn stuðning
stjórnvalda, en þau hefðu gefið
vilyrði fyrir aðstoð þegar staður-
inn gekk í gegnum mikla erfið-
leika. „Ég hélt að það væri meira
kjöt á þessum beinum ríkisstjórn-
arinnar, því það hefur ekki farið
mikið fyrir þeim stuðningi sem
talað var um.“
Staða Raufarhafnar hefur batn-
að mikið, en að sögn Guðnýjar er
það aðgerðum sveitar-
stjórnarinnar sjálfrar að þakka.
Væntingar sem gerðar hafi
verið til nefndar sem skipuð var af
Valgerði Sverrisdóttir, ráðherra
byggðamála, hafi verið miklar og
því vonbrigði að henni hafi ekki
tekist að standa undir þeim.
Valgerður Sverrisdóttir segir
málið flóknara en svo að nefnda-
starf komi með endanlegar lausn-
ir á svona málum. „Það er nú ekki
svo að ríkisstjórnin geti dregið
lausnir í svona málum upp úr
hatti. Nefndin sem skipuð var
kom hins vegar ýmsum málum á
hreyfingu, og beitti sér fyrir því
að koma upp meiri atvinnustarf-
semi á svæðinu, sem síðar varð
raunin“. - mh
Málræktarsjóður úthlutar engum styrkjum:
Tapa›i fé í áhættu-
fjárfestingum
MÁLRÆKTARSJÓÐUR Málræktarsjóð-
ur hefur ekki úthlutað styrkjum
síðustu þrjú ár vegna fjármagns
sem tapaðist í áhættufjárfesting-
um árið 2000 og sennilega eru tvö
ár í að hann geti úthlutað næst.
Samkvæmt reglum sjóðsins
má hann ekki ganga á eigin höfuð-
stól og því hefur hann ekki úthlut-
að styrkjum þrátt fyrir hagnað á
síðustu árum. Sjóðurinn hagnaðist
um níu milljónir á síðasta ári en
samt vantar enn um tíu milljónir
upp á að hann komist aftur upp í
upprunalegan höfuðstól. Upp-
reiknaður höfuðstóll sjóðsins er
126 milljónir.
Í árskýrslu stjórnar Mál-
ræktarsjóðs fyrir síðasta ár
kemur fram að ein helsta
ástæða slakrar stöðu sjóðsins
séu fjárfestingar Kaupþings
fyrir hönd sjóðsins árið 2000 í
sjóðnum Alpha 1 Venture, sem
er áhættufjárfestingarsjóður á
sviði upplýsingartækni.
Málræktarsjóður var stofn-
settur árið 1991 af íslenskri mál-
nefnd. Markmið sjóðsins er að
beita sér fyrir og styðja hvers
konar starfsemi til eflingar ís-
lenskri tungu og varðveislu
hennar.
- grs
Kennurum settir afarkostir
Skólastjórn Landakotsskóla sendi nokkrum kennurum skólans bréf í gær flar sem sagt er a› skriflegur
stu›ningur vi› stjórnina sé skilyr›i fyrir flví a› fleir haldi starfi sínu vi› skólann. Foreldrar funda me›
stjórninni í kvöld flar sem afsagnar hennar ver›ur krafist lagist sta›an ekki.
SKÓLAMÁL Nokkrir kennarar
Landakotsskóla fengu í gær bréf
frá skólastjórn Landakotsskóla. Í
bréfinu kemur fram að þeir sem
hafi hug á því að starfa áfram við
skólann þurfi að skrifa undir
stuðningsyfirlýsingu við stjórn
hans. „Starfið felur að sjálfsögðu í
sér viðurkenningu á nýkjörinni
stjórn Landakotsskóla,“ segir í
bréfinu sem undirritað er af Mar-
gréti Halldórsdóttur og Irenu
Kojic sem hefur verið falið að
fara með starfsmannamál skólans
meðan leitað er nýs skólastjóra.
Einn kennaranna sem fékk
slíkt bréf sent kveðst ekki ætla að
skrifa undir yfirlýsinguna. Hann
segist hafa leitað álits lögfræð-
ings sem sagt hafi að ólöglegt sé
að beita slíkum aðferðum. Fleiri
kennarar Landakotsskóla taka í
svipaðan streng samkvæmt heim-
ildum blaðsins.
Irena Kojic formaður kennara-
ráðs segir að flestir kennarar
skólans hafi lýst því yfir að þeir
vilji starfa áfram við skólann.
Deilendur í málinu skiptast í
tvær fylkingar. Annars vegar er
það skólastjórn og kennararáð og
hins vegar hluti kennaraliðsins
sem styður Hjalta Þorkelsson, frá-
farandi skólastjóra. Kennararnir
segja að kennararáð starfi ekki í
umboði kennara þar sem van-
traustsyfirlýsing á kennararáðið
hafi verið samþykkt einróma þann
1. mars. Ástæðan fyrir því var
meint níð kennararáðs um Hjalta
Þorkelsson, Bessí Jóhannsdóttur,
aðstoðarskólastjóra, og nokkra
nafngreinda kennara við skólann.
Bessí var sagt upp af skólanefnd í
maí og skólastjóri sagði af sér síð-
astliðinn föstudag því hann taldi
skólastjórn hafa farið inn á vald-
svið sitt með uppsögn Bessíar.
Foreldrar barna við skólann
ætla að funda með stjórninni í
kvöld. „Við erum með yfirlýsingu
tilbúna þar sem við förum þess á
leit við stjórnina að hún segi af
sér,“ segir Edda Björgvinsdóttir,
sem á barn í Landakotsskóla.
Giovanni Tonucci, erkibiskup
og sendiherra páfastóls á Norður-
löndum, veit af ástandinu í Landa-
kotsskóla en vildi ekki tjá sig um
málið og vísaði á kaþólska bisk-
upinn yfir Íslandi, Jóhannes Gji-
sen. Biskup sagðist ekkert hafa
með málið að gera og vísaði á
skólastjórn. ingi@frettabladid.is
Ekki til eftirbreytni:
Níræ› kona
bar›i fljóf
BANDARÍKIN, AP Katherine Wood-
worth, 91 árs gömul kona, barði
töskuþjóf með innkaupapoka
sínum og hrakti á endanum á
flótta á bílastæði verslunar í
Toledo í Bandaríkjunum um
helgina.
„Ég var ekki með heyrnar-
tækið og vissi í fyrstu ekki hvað
hann sagði,“ sagði hún og kvaðst
í fyrstu hafa misskilið ræningj-
ann. „Svo endurtók hann að
hann vildi töskuna og ég hélt nú
ekki.“
Í kjölfarið handtók lögregla
tvítugan mann og kærði fyrir
þjófnaðartilraun, árás og fyrir
eiturlyfjaneyslu.
Lögregla taldi þó óráðlegt að
konur á þessum aldri tækjust á
við árásarmenn. Konan taldi
aldurinn þó litlu skipta. „Ég
verð 92 í ágúst og er líklegra
kjarkmeiri nú en þegar ég var
yngri,“ sagði hún. ■
MÁLRÆKT KOSTAR Þótt Málræktarsjóður eigi 116 milljónir og fjárfestingarhagnaður sjóðs-
ins hafi verið 9 milljónir á síðasta ári nægir það sjóðnum ekki til að úthluta styrkjum.
LANDAKOTSSKÓLI Deilurnar í Landakotsskóla halda áfram að magnast. Í dag ætti staða mála að skýrast því foreldrar sem eiga börn í
skólanum halda á fund skólastjórnar í kvöld.
Raufarhafnarbúar eru óhressir með lítinn stuðning ríkisstjórnarinnar:
Undrast a›ger›arleysi stjórnvalda
FRÁ RAUFARHÖFN Sveitarstjórinn í Raufarhafnarhreppi segir stuðning ríkisstjórnarinnar
hafa verið lítinn.