Fréttablaðið - 09.06.2005, Side 22
Vinur minn einn bjó á Filippseyj-
um um hríð og hafði þjóna á
hverjum fingri eins og tíðkast
enn þar austur frá: bílstjóra,
garðyrkjumann, húsvörð, kokk
o.s.frv. Þau sátu þá að völdum í
landinu Ferdinand Marcos og
eiginkona hans, Ímelda. Hann
var forseti landsins og hafði öll
ráð í hendi sér, og hún var fyrr-
verandi fegurðardís, hafði verið
kjörin Ungfrú Maníla (með
svindli). Spillingin var æðisgeng-
in: allir vissu það. Ekki þar fyrir
að þau hjónin gengju endilega
beint í ríkiskassann eins og hann
væri þeirra einkaeign, þau not-
uðu aðrar aðferðir. Þau tóku toll
af erlendu hjálparfé, þágu mútur
úr ýmsum áttum og sölsuðu und-
ir sig eigur almennings, þar á
meðal ríkisfyrirtæki. Þau lifðu
hátt, mjög hátt, og þjóðin svaf.
Ferdinand Marcos og frú stálu 5-
10 milljörðum Bandaríkjadollara
af Filippseyingum, eftir því sem
næst verður komizt. Til viðmið-
unar er Móbútú forseti Saír, nú
Kongó, talinn hafa stolið 5 millj-
örðum dollara og Súhartó
Indónesíuforseti 15-35 milljörð-
um dollara: hann á heimsmetið.
Heimildin er Transparency
International í Berlín, en sú
stofnun fylgist með spillingu víðs
vegar um heiminn og birtir tölur
um hana. Landsframleiðslan í ár
hér heima nemur tæpum 15
milljörðum dollara til saman-
burðar.
Tilraunir vinar míns til að
vekja andúð þjónustufólksins á
heimilinu á auðgun forsetahjón-
anna á Filippseyjum báru ekki
árangur. Skömmu eftir að
Marcos hrökklaðist frá völdum í
kjölfar kosningasvika 1986 eftir
rösklega 20 ára valdasetu og þau
hjónin bæði, var forsetahöllin
eins og þau skildu við hana opnuð
almenningi. Þar gat m.a. að líta
skóskápa frúarinnar: þar voru
3000 pör af skóm. Vini mínum
fannst, að þetta þyrfti þjónustu-
fólkið á heimili hans að fá að sjá,
ef það mætti verða til þess að
opna augu þeirra. Hann bauð
þeim öllum í höllina og leiddi þau
sal úr sal. Það er skemmst frá því
að segja, að tilraunin fór út um
þúfur: þjónustufólkinu fannst
það ekki gott, að svo útsjónarsöm
hjón hefðu verið flæmd frá völd-
um. Það getur ekki hver sem er
eignazt 3000 pör af skóm, sagði
þvottakonan. Var réttlætiskennd
þvottakonunnar ábótavant? Ekki
endilega. Hún hafði um ýmislegt
annað að hugsa á eigin vettvangi
og hafði því e.t.v. ekki mikinn
tíma til að gaumgæfa fjármál
forsetans. Ekki er heldur hægt að
skella skuldinni á veika stjórnar-
andstöðu, þar eð Marcos hafði
tekið sér einræðisvald og fang-
elsað ýmsa andstæðinga sína og
trúlega látið myrða helzta leið-
toga stjórnarandstöðunnar, þegar
hann steig á land 1983 eftir langa
útlegð. Við rannsókn morðmáls-
ins bárust böndin að mönnum
forsetans, en vasadómarar hans
sýknuðu handbendin. Og ekki var
mikið hald í fjölmiðlunum, því að
þeir þögðu um fjármál forseta-
hjónanna og margt fleira.
Af þessu öllu leiddi, að þvotta-
kona vinar míns og þjóðin öll
höfðu ekki fengið nógu góð skil-
yrði til að velta auðgun forseta-
hjónanna fyrir sér og mynda sér
skýra skoðun á málinu. Samt svaf
þjóðin ekki fastar en svo, að hún
hrakti Ferdinand og Ímeldu í út-
legð, þegar forsetinn þóttist hafa
borið sigurorð af ekkju hins
myrta stjórnarandstöðuleiðtoga í
forsetakosningunum 1986. Þá
reis fólkið upp, nú var komið nóg,
ekkjan varð forseti, og Ferdin-
and og Ímelda flúðu til Havaíeyja
og settust að þar. Ferdinand
þurfti að eyða þeim árum, sem
hann átti ólifuð (hann dó 1989), í
að verjast tilraunum nýrrar rík-
isstjórnar Filippseyja til að ná
aftur að lögum þeim auði, sem
þau hjónin höfðu safnað í stjórn-
artíð hans. Bandaríkjastjórn
kærði þau fyrir fjárdrátt, og þau
fengu dóm bæði tvö. Ímelda var
þó sýknuð í Bandaríkjunum eftir
hans dag, en hún var síðan dæmd
fyrir spillingu í heimalandi sínu.
Hún er enn á lífi og stendur í
ströngu.
Réttarvandinn er oft mikill í
málum sem þessum. Þegar ein-
ræðisstjórnir verða uppvísar að
gripdeildum, geta þær borið fyr-
ir sig friðhelgi eignarréttarins,
þegar þýfið er komið í höfn.
Vandinn getur þá snúizt upp í að
sýna fram á ólögmæti stjórnar-
innar, sem setti lögin, sem leyfðu
gripdeildirnar, eins og reynt var í
Sovétríkjunum sálugu. Í Rúss-
landi og öðrum lýðræðisríkjum
nú er málið enn snúnara, því að
þar verður lögmæti stjórnarinn-
ar, sem hlóð undir einkavini sína
án þess að brjóta lög, ekki dregið
í efa. Þá ríður á því, að lög um t.d.
einkavæðingu séu vandlega
smíðuð með neyðarútgangi og ör-
yggisventlum – og þjóðin vaki.
Alþingi hefði þurft að byrgja
brunninn, áður en bankarnir voru
seldir. ■
N okkrir svartir sauðir í röðum lækna hafa oft á undanförn-um árum komið óorði á læknastéttina vegna útgáfu lyf-seðla til fíkniefnaneytenda og misindisfólks. Þegar upp
hefur komist tekur umræðan í þjóðfélaginu kipp, rætt er um það
hvernig megi koma í veg fyrir þetta, en sagan endurtekur sig. Oft
hefur það verið svo að mörg nöfn lækna hafa verið nefnd til sög-
unnar varðandi læknadópið og orðrómurinn hefur dæmt saklausa
lækna hart. Þeir hafa orðið fórnarlömb hinna svörtu sauða í stétt-
inni.
Nú hefur verið settur upp lyfjagagnagrunnur og hefur hann að
hluta verið tekinn í notkun. Með tilkomu hans á að vera hægt að
fylgjast með lyfseðlaútgáfu einstakra lækna og koma í veg fyrir
misferli í þessum efnum.
Í Fréttablaðinu í gær greinir landlæknir frá því að nokkrir
læknar hafi verið átaldir vegna ávísunar á morfín. Það er ótrúlegt
að læknar með langt og mikið nám að baki skuli verða uppvísir að
því að láta undan eiturlyfjasjúklingum og ávísa á stórhættuleg
lyf. Talað er um að nú sé morfínfaraldur hér og að hann hafi haf-
ist fyrir um sex árum. Upp undir tíu af hundraði þeirra sem koma
á Vog eru ofurseldir lyfjum sem læknar vísa á. Þar er um að ræða
örvandi og róandi ávanalyf, sterk verkjalyf, ópíumefni eða mor-
fínefni. Ópíumfíklunum fjölgar því stöðugt og hópur þeirra hefur
aldrei verið stærri. Margt af þessu fólki leitar sér aðstoðar á Vogi
og öðrum sjúkrastofnunum, en það þarf að koma í veg fyrir að
þessi hópur stækki og stækki og lækna þá sem þegar hafa ánetj-
ast þessu eitri.
En hver er skýring landlæknis á því að læknar gefa út lyfseðla
á þessi lyf: „Oft er það þannig að menn gera þetta af einhvers kon-
ar miskunnsemi, því þeir vorkenna fíklinum. Í öðru lagi geta fíkl-
arnir talið fólki trú um hluti sem öðrum tekst ekki. Læknar geta
verið móttækilegir fyrir því eins og annað fólk. En það er sem
betur fer mjög lítið um verstu ástæðuna, að læknar séu að gera
þetta til að auka tekjur sínar beinlínis. Ég get ekki sagt hversu
stór sá hópur er, en hann er til. Sá hópur þarf mest á því að halda,
að tekið sé í lurginn á honum,“ sagði landlæknir í viðtali við
Fréttablaðið í gær.
Lyfjagrunnurinn ætti að verða það tæki sem yfirvöld eiga að
geta notað til að koma í veg fyrir að læknar gefi út lyfseðla til
fíkla. Grunnurinn ætti ekki síður að gagnast til að hreinsa sak-
lausa lækna af því að hafa ekki gætt sín sem skyldi við útgáfu lyf-
seðla. Morfín og önnur slík kvalastillandi lyf eru nauðsynleg
mörgum sem þjást af erfiðum sjúkdómum, ekki síst krabbameini,
og því er af og frá að tala um að taka þessi lyf af markaði og koma
þannig í veg fyrir misnotkun. Það verða líklega alltaf til læknar
sem eiga það til að falla í þá freistingu að gefa út lyfseðla til fíkni-
efnaneytenda, en með öflugu eftirliti yfirvalda og viðeigandi ráð-
stöfunum er hægt að koma í veg fyrir eða minnka verulega hætt-
una á slíkri misnotkun. ■
9. júní 2005 FIMMTUDAGUR
SJÓNARMIÐ
KÁRI JÓNASSON
Landlæknir hefur átalið nokkra lækna vegna
ávísunar á morfín.
Læknadóp
FRÁ DEGI TIL DAGS
Tala› er um a› nú sé morfínfaraldur hér og a› hann hafi hafist
fyrir um sex árum. Upp undir tíu af hundra›i fleirra sem koma
á Vog eru ofurseldir lyfjum sem læknar vísa á. fiar er um a›
ræ›a örvandi og róandi ávanalyf, sterk verkjalyf, ópíumefni e›a
morfínefni.
Í DAG
SVEFNÞUNGAR ÞJÓÐIR
ÞORVALDUR
GYLFASON
fiá rí›ur á flví, a› lög um t.d.
einkavæ›ingu séu vandlega
smí›u› me› ney›arútgangi og
öryggisventlum – og fljó›in
vaki. Alflingi hef›i flurft a›
byrgja brunninn, á›ur en
bankarnir voru seldir
Sumarsæla
á Hótel Örk
7.450,- krónur*
- Þriggja rétta kvöldverður hússins
- Gisting í tvíbýli
- Morgunverður af hlaðborði
- Frítt golf á tveimur völlum
- Sundlaug, jarðgufubað, heitir pottar
*Sælulykill 14.900,- krónur. Gildir fyrir 2.
Hveragerði
Sími 483 4700, fax 483 4775
info@hotel-ork.is, www.hotel-ork.is
Paradís rétt handan hæðar!
Komdu maka þínum á óvart í sumar og
bjóddu honum í sumarsælu á Hótel Örk.
Njó
tið
su
ma
rsi
ns
Og fljó›in svaf
Frjálslyndir með borgarstjóraefni
Í allri umræðunni um borgarstjórnar-
kosningarnar í Reykjavík má ekki
gleyma F-lista Frjálslyndra og óháðra.
Ólafur F. Magnússon gekk í raðir Frjáls-
lynda flokksins í vor og mun því F-list-
inn að öllum líkindum bjóða fram und-
ir merkjum Frjálslynda flokksins. Mar-
grét Sverrisdóttir skip-
ar að öllu óbreyttu
annað sæti listans
og mun flokkur-
inn vera sá eini
sem þegar hefur
valið borgarstjóra-
efni flokksins sem
mun án efa blanda
sér verulega í um-
ræðuna.
R-listi fundar
Viðræðunefnd R-listaflokkanna fundar
enn í dag. Ekki verður séð að sam-
komulag milli flokkanna sé í nánd en á
fundum er rætt til skiptis um menn og
málefni. Ekki liggur heldur formlega
fyrir að Vinstri grænir ætli sér
að taka þátt í R-listasam-
starfinu. Sjálfstæðis-
menn í borginni hafa
því tekið nokkra for-
ystu með því að til-
kynna um prófkjör og
vera með kynningu á
skipulagsáherslum
flokksins áður en
sumarleyfin hefjast
og fólk fer í frí.
Orsök og afleiðing
Allir kenna öllum um lítið fylgi Fram-
sóknarflokksins. Flokkurinn mælist nú í
sögulegu lágmarki og er á brattann að
sækja fyrir flokkinn sem leiðir
ríkisstjórnarsamstarfið. Í RÚVAK fann
Dagný Jónsdóttir alþingismaður það út
að einn þingmaður flokksins hafi hag-
að sér svo furðulega að ekki sé hægt
annað en að kenna honum um fylg-
ishrun flokksins. Enginn innan
hinna flokkanna hefur lýst yfir opin-
berlega hverjum sé að þakka þeirra
góða gengi en slíkt mun ekki tíðkast
meðal stjórnmálamanna nema í
þrengri hópum og almennt er farið
mjög varlega með slíkar
yfirlýsingar nema í
aðdraganda kosninga.
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 – prentmiðlar RITSTJÓRI: Kári Jónasson FRÉTTARITSTJÓRAR: Sigurjón M. Egilsson og Sigmundur Ernir Rúnarsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jón Kaldal FULLTRÚI RITSTJÓRA:
Guðmundur Magnússon RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Steinunn Stefánsdóttir AUGLÝSINGASTJÓRI: Þórmundur Bergsson RITSTJÓRN OG AUGLÝSINGAR: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐAL-
SÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is UMBROT: 365 – prentmiðlar PRENTVINNSLA:
Ísafoldarprentsmiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að
fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871
LESTU GREININA Á VISIR.IS
OG SEGÐU SKOÐUN ÞÍNA
hjalmar@frettabladid.is