Fréttablaðið - 09.06.2005, Síða 27
Saddam í tísku
FYRRVERANDI EINRÆÐISHERRA HRINDIR TÍSKUBYLGJU AF STAÐ.
Aðaltískan í Bagdad í Írak þessa dagana er ekki skærlitaðar mussur
eða perlufestar heldur lyklakippur. Og engar venjulegar lyklakippur
heldur kippur með myndum af sjálfum Saddam Hussein. Nú er bara
spurning hvort eigi ekki að framleiða fleiri tískuhluti eða -fatnað
með Saddam í aðalhlutverki sem yrðu seldir á meðan réttarhöldin
standa yfir – rétt eins og er gert á fótboltaleikjum. Ríkisstjórnin í Írak
tilkynnti í síðustu viku að hún ætlaði aðeins að setja fram tólf ákær-
ur á hendur þessa fyrrum einræðisherra þó rúmlega fimm hundruð
ákæruliðir hafi verið í frumgögnum málsins.
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 9
Flokkar
Bílar & farartæki
Keypt & selt
Þjónusta
Heilsa
Skólar & námskeið
Heimilið
Tómstundir & ferðir
Húsnæði
Atvinna
Tilkynningar
Góðan dag!
Í dag er fimmtudagur 9. júní,
160. dagur ársins 2005.
REYKJAVÍK 3.05 13.27 23.51
AKUREYRI 2.03 13.12 00.24
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Náttbuxur sem ekki
er hægt að sofa í
Fatahönnuðurinn Karl Lager-
feld ætlar að setja nýja fatalínu
á markað sem er mun ódýrari
en það sem hann er með
til sölu fyrir. Línan mun
bera nafn hönnuðarins
og verður eingöngu seld
í Bandaríkjunum en
sagan segir að línan
verði fimmtíu prósent
ódýrari en önnur föt Lager-
feld. Karl Lagerfeld lætur
þetta ekki duga og hannar
líka fatalínur fyrir Chanel og
Fendi. Eins og margir muna
hannaði Lagerfeld ódýra
línu fyrir H&M þannig að
hann hefur
reynsluna af
ódýrri fram-
leiðslu.
Söngkonan
Victoria Beckham
hefur gert það
gott hjá tísku-
merkinu Rock
and Republic en
hún hannar VB
gallabuxur fyrir fyrir-
tækið. Gallabuxurnar
hafa slegið í gegn
beggja vegna Atl-
antshafsins en nú ætlar
Victoria að færa út kvíarn-
ar. Hana langar að hanna
barnafatalínu og galla-
buxnalínu fyrir karl-
menn. Líkur eru á að
Victoria fái ósk sína
uppfyllta hjá Rock
and Republic þar sem
VB gallabuxurnar eru
vinsælasta varan hjá
merkinu.
Kínverjar virðast verða æ
æstari í að fylgja nýjustu
tískunni í heiminum. Fyrir
fjörutíu árum þóttu snyrti-
vörur ekki sæmandi í Kína
en nú er landið áttundi
stærsti snyrtivöruneytandi í
heiminum. Heildarvirði feg-
urðar- og snyrtivörumarkaðsins
í Kína er um það bil 5,5 millj-
arðar dollara og sækja snyrti-
vörurisarnir í heiminum meira
og meira til landsins til að fjár-
festa. Síðustu fimm ár hefur
neysla á snyrtivörum aukist um
tuttugu til 25 prósent á hverju
ári, sem má rekja til fleira ungs
fólks sem eyðir bróðurparti
launa sinna í snyrtivörur.
Matta var illa við að láta mynda sig í náttbuxunum en lét undan að lokum enda náttbuxurnar ekkert til að
skammast sín fyrir.
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR ATVINNA TÍSKA FJÁRMÁL TILBOÐ o.fl.
KRÍLIN
Börn hlæja oftar en
fullorðnir því þau
eiga engin börn til
að hafa áhyggjur af!
Listakona skreytir silki og skó
bls. 6
][
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 OG Á visir.is
ÞÚ GETUR PANTAÐ
SMÁAUGLÝSINGAR
Á visir.is
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/VALLI
LIGGUR Í LOFTINU
í tísku
tiska@frettabladid.is
Matthías Már Magnússon, eða Matti
eins og flestir þekkja hann, dagskrár-
stjóri útvarpsstöðvarinnar XFM, er
ekki í vafa um hvað er ómissandi í
fataskápnum.
„Það sem er mér algjörlega lífsnauðsynlegt
í fataskápnum mínum eru Joe Boxer nátt-
buxurnar mínar. Ég skelli mér alltaf í þær
þegar ég kem heim úr vinnunni,“ segir
Matti en viðurkennir að hann sofi þó aldrei
í náttbuxunum. „Ég sef aldrei í þeim því
það er svo óþægilegt. Maður á ekki að sofa
í buxum. Þetta eru heimabuxurnar mínar.“
„Konan gaf mér buxurnar fyrir um
tveimur árum og þær eru bara voðalega
venjulegar með ljótu mynstri. Ekkert sem
ég geng í annars staðar heldur eingöngu
heima þegar ég er að slappa af,“ segir
Matti.
Matti segist alls ekki pæla of mikið í
tískunni en þó kaupi hann sér reglulega
nokkuð af fötum. Smekkurinn sé einfaldur.
„Ég er reyndar með mjög auðveldan
fatasmekk – bara Levi’s-gallabuxur og bol-
ur þannig að ég er ekki í neinum vandræð-
um að finna mér föt. Það tekur mig heldur
aldrei mjög langan tíma að kaupa mér föt.
Það þykir mér mikill kostur,“ segir Matti,
sem veit augljóslega hvernig er best að
snúa sér í fatamálum. lilja@frettabladid.is
M
YN
D
/G
ETTY