Fréttablaðið - 09.06.2005, Síða 30
9. júní 2005 FIMMTUDAGUR
Taktu þátt...
í kjöri um áhorfendaverðlaun ársins á visir.is
og þú gætir farið frítt í leikhús - 20 miðar og 2 árskort í boði!
Verðlaunin verða afhent í Þjóðleikhúsinu 16. júní
B
as
eC
am
p
Pr
od
uc
tio
ns
Í samvinnu við:
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 10
sími 561 1300
Útskriftargjafir.
Glæsilegt úrval
skartgripa.
• Rúskinsjakkar stærðir 40-54
• Silkisjöl og skart í úrvali
Ný tæki - Betra verð!
17.900.-kr.
kr.
12.900.-
Ásnum - Hraunbæ 119 - Sími 567 7776
Opið virka daga kl. 11:00-18:00
Sumarbolir og
sundfatnaður
15% afsláttur
9.-16. júní
Konum sem komnar eru af
allra léttasta skeiði er ekkert
sérstaklega vel við sólina þar
sem hún afhjúpar hrukkur og
misfellur sem auðveldara er
að dylja í skammdeginu. Það
er að sjálfsögðu ekki sama
hvernig konur mála sig og
leiðinlegt ef farðinn undirstrik-
ar aldurinnn frekar en að
draga aðeins frá. Helga Sig-
urðardóttir, snyrtifræðingur á
Salon Ritz, gefur nokkur ráð
um fallegan farða í sólskininu.
„Minna er alltaf betra en meira,“
segir Helga. „Konur sem eru
komnar á fimmtugsaldur og þar
yfir ættu að nota lítinn farða og ef
húðin er þurr er miklu fallegra að
nota fljótandi meik. Þær ættu líka
að nota sem minnst af púðri því
það getur undirstrikað fínar lín-
ur.“
Helga segir að hyljari sé nauð-
synlegur ef nefið hefur tilhneign-
ingu til að verða rautt eða ef far-
ið er að bera á háræðasliti og lita-
mismun í andlitinu. „Þær eiga
ekki að setja mikinn augnskugga
og alls ekki að setja neitt sanser-
að í andlitið þar sem það getur
sest í hrukkurnar. Það er falleg-
ast að nota bjarta liti á augun til
að lífga upp á, en þumalputtaregl-
an er að ef kona er dökkhærð not-
ar hún ljósari liti, en dekkri ef
hún er ljós yfirlitum. Skygging á
augnlok á að deyja út uppi við
augabrún og svo er ljósari litur
settur yfir.“
Helga segir að konur á besta
aldri eigi aldrei að nota svarta
augnblýanta. „Dökkfjólublár er
fallegur með köldum litum en
brúnn með heitum. Augabrúnir
er svo hægt að dekkja með
augnskugga.“
Helga bendir á konur eigi það
til að festast í sömu litatónum og
nota þá jafnt sumar og vetur.
Sumarið er einmitt tilvalinn tími
til að breyta til og fara út í bjart-
ari og ljósari liti. Svo má alls ekki
gleyma varalitablýantinum, þar
sem fínar línur myndast oft við
munninn og ef blýantur er ekki
notaður lekur varaliturinn út í
línurnar. Það er líka nauðsynlegt
að vera duglegur að spyrja og fá
ráðleggingar þegar snyrtivörur
eru keyptar og vera óhræddur að
prófa eitthvað nýtt.“
Minna alltaf betra en meira
Bergdís Guðnadóttir áður en hún var förðuð... ...og eftir að Helga hafði farðað hana.
Helga Sigurðardóttir, snyrtifræðingur á
Salon Ritz, farðaði Bergdísi með snyrtivör-
um frá No name.