Fréttablaðið - 09.06.2005, Qupperneq 36
2 ■■■ { AUSTURLAND } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Skortur á gistirými farinn að há veitingastaðnum
Hugmyndin að húsahóteli á Seyðisfirði hefur verið lengi að gerjast. Fyrir um fimm árum var ákveðið að byggja nýtt hótel á Seyðisfirði en nokkrar
konur, í samráði við Sigurjón Sighvatsson, öfluðu þeirri hugmynd brautargengis að koma hótelinu fyrir í gömlum glæsibyggingum. Með tilkomu Sig-
urjóns að verkinu varð langþráð hugmynd að veruleika. Þau kölluðu hugmyndina „húsahótel“.
„Konurnar sem ýttu húsahótels-
hugmyndinni á flot á Seyðisfirði
eru þær Aðalheiður Borgþórsdóttir
upplýsingafulltrúi ferða- og menn-
ingarmála á staðnum, Jóhanna
Gísladóttir aðstoðarskólastýra og
Þóra Bergný Guðmundsdóttir
móðir mín og arkitekt sem hefur
rekið hér farfuglaheimili í tæpa
þrjá áratugi. Verkefnið hefði
sennilega ekki komist langt án
stuðnings Sigurjóns Sighvatssonar
en auk hans komu að málum
Seyðisfjarðarkaupstaður og
Byggðastofnun,“ segir Dýri Jóns-
son, hótelstjóri Öldunnar, á Seyð-
isfirði.
„Meginhugmynd húsahótelsins er
sú að móttökuhúsið og gistihúsið
eru aðskilin. Hjarta starfseminnar,
móttökuhúsið, er að Norðurgötu 2
í gömlu verslunarhúsnæði sem
byggt var árið 1920 en gistihúsið
með níu herbergjum er í gamla
Landsbankahúsinu sem var byggt
árið1898 og þá sem hótel. Alltaf
hefur staðið til að bæta fleiri hús-
um inn í hugmyndina og auka þar
með gistirýmið.
Við lok 19. aldar stóð Seyðisfjörð-
ur í blóma vegna umsvifa norskra
síldveiðimanna. Mörg ríkmannleg
norsk timburhús höfðu verið flutt
inn og reist í kaupstaðnum.
Eitt þeirra var Hótel Seydisfjord,
sem var byggt sem hótel og talið
eitt hið besta á öllu landinu. Þar er
nú aftur hægt að búa um sig í góð-
um og fallegum herbergjum. Mót-
taka gesta, veitingastaður, bar og
minjagripaverslun er aftur á móti
til húsa í glæsilegu gömlu verslun-
arhúsi sem stendur örskammt frá í
miðbæ kaupstaðarins. Húsnæðið
hefur enn að geyma upprunalegar
innréttingar frá 1920 og við
reyndum að halda í þær við endur-
gerð hússins.“
„Auglýst var eftir rekstrarstjóra
þegar uppbyggingin fór af stað og
ég sótti um starfið eftir að hafa
stundað nám í Danmörku í við-
skiptafræði og nýsköpun. Sigurjón
Sighvatsson var einn þeirra sem
stóð að þessari hugmynd og hrinti
henni í framkvæmd, enda óhemju
áhugasamur um þessi mál. Þess
má geta að Sigurjón fjárfesti fyrir
nokkrum dögum í öðru húsi,
gamla hótel Snæfelli, þar verða
níu herbergi til viðbótar. Það má
því segja að hlutirnir gangi hratt
fyrir sig hérna á Seyðisfirði. Veit-
ingastaður hótel Öldunnar var orð-
inn svo þekktur að skortur á gisti-
rými var farinn að há okkur.“
Dýri Jónsson vill hvergi annars
staðar búa en á Seyðisfirði. „Hér er
yndislegt að vera, ég á tvo stráka
og hvergi betra að ala þá upp en
hér. Ég bjó áður í Reykjavík og
seinna í Kaupmannahöfn og leið
vel á báðum stöðum, en hér er best
að vera.“
Ferðir út í Skálanes njóta vinsælda
Hlynur Oddsson, heimamaður á Seyðisfirði, hóf kajakaleigu fyrir þremur árum sem nýt-
ur töluverðra vinsælda. Stystu ferðir taka aðeins nokkra klukkutíma en þær lengri allt
að því tvo daga.
„Hingað kemur mikið af ferðafólki,
bæði með Norrönu og með bílum
og ég, sem mikill kajakáhugamað-
ur, taldi forsendur fyrir kajakleigu
hérna. Ég byrjaði með þrjá báta
fyrir fimm árum en nú eru þeir
orðnir átta talsins,“ segir Hlynur
Oddsson, framkvæmdastjóri
Kajakleigunnar á Seyðisfirði.
„Menn þurfa ekki að hafa neina
reynslu þegar þeir prófa kajakana
hjá mér, þeir geta fengið kennslu í
grunnatriðunum hérna. Ég útvega
allt sem til þarf, björgunarvesti,
blautbuxur, tjöld og hvaðeina sem
þarf í siglinguna. Þeir sem eru
vanari taka oft tveggja daga ferðir
út í næstu firði þar sem fylgir með
gisting í tjaldi. Það finnst mörgum
gaman að skreppa út í Skálanes,
en það er ysta bújörðin í Seyðis-
firði. Skálanes er nú eingöngu rek-
ið sem sumarstaður, frá maí og
fram í september, um sautján kíló-
metra utan við Seyðisfjarðarkaup-
stað. Þar er mikið fuglalíf sem
gaman er að skoða.“
Hlynur Oddsson rekur kajakaleigu á Seyðisfirði.
FRÉTTABLAÐIÐ/ÍSAK
Gistirými fyrir gesti á Hótel Öldunni á
Seyðisfirði er í gamla Landsbankahúsinu
sem upphaflega var byggt sem hótel.
Dýri Jónsson, hótelstjóri á Hótel Öldunni á Seyðisfirði blandar kaffi í forláta kaffivél í móttökuhúsi hótelsins.
Víkurnar sem ganga inn í golfvöllinn á Höfn í
Hornafirði gera hann einstakan í sinni röð. Útsýnið
þaðan er líka óviðjafnanlegt yfir fjörðinn, fjöllin og
jöklana.
Silfurnesvöllur á Höfn er níu holu golfvöllur. Nú er
unnið að stækkun hans og áformað er að taka viðbót-
ina í notkun næsta vor en í sumar verður hann með
óbreyttu sniði. Kylfingar sem taka hring þar kynnast
áhugaverðum brautum þar sem meðal annars þarf að
slá kúlurnar yfir víkur og voga enda er völlurinn eitt
af því sem ferðamenn heillast af á Höfn, að sögn for-
manns golfklúbbsins á staðnum, Guðnýjar Helgadótt-
ur. „Völlurinn er ein af perlunum okkar og enn betri
verður hann í framtíðinni,“ segir hún stolt.
Ein af perlum HORNAFJARÐAR
Silfurnesvöllur er vel staðsettur.