Fréttablaðið - 09.06.2005, Side 42
„Þjóðvegur eitt liggur beint í
gegnum Austurland. Við viljum
beina þeim ferðamönnum sem
hingað koma út af þjóðvegi eitt,
vísa þeim á rúntinn á firðina til að
kynnast öllu því sem þeira hafa
upp á að bjóða. Einnig reynum við
að beina þeim upp á hálendið, upp
að Snæfelli eða upp í Kverkfjöll
eða að Öskju ef menn eru á góðum
bílum,“ segir Arngrímur Viðar Ás-
geirsson, forstöðumaður Ferða-
skrifstofu Austurlands.
„Hálendið fyrir norðan Vatnajökul
er vel þess virði að skoða það. Í
rauninni er hægt að áætla dagsferð
til þess, taka Vopnafjörðinn, koma
við í sundlauginni í Selárdalnum
og spjalla við álfana í Borgarfirði
eystri en þar er að finna mikið
fuglalíf. Ef menn koma á tjald-
vagni, sem mikið er orðið af, er
sniðugt að eiga bækistöð inni á
héraði, eins og til dæmis í Atlavík.
Ef menn hitta á sólardagana okkar,
sem að jafnaði eru heitir og góðir,
er mjög sniðugt að taka dagsferðir
frá Atlavík. Búið er að stækka og
bæta tjaldsvæðið þar og í Hall-
ormsstaðarskóginum sjálfum. Lag-
arfljótsormurinn sjálfur siglir frá
Atlavík á sumrin á hverju kvöldi
og Hallormsstaðarskógurinn sjálf-
ur er náttúrlega sérstök upplifun.
Þetta er eina svæðið á Íslandi þar
sem ferðalangurinn fær það á til-
finninguna að hann sé í Evrópu-
loftslagi eða Evrópuumhverfi.
Fyrir þá sem hafa áhuga á göngu-
ferðum er Austurlandið alger para-
dís. Fyrsta göngusvæðið sem varð
vinsælt hér fyrir austan er Lónsör-
æfin, þar sem gengið er um Snæ-
fellið niður í lón. Gerpissvæðið
milli Breiðafjarðar og Norðfjarðar
náði einnig vinsældum fljótlega
meðal göngufólks. Víknaslóðirnar
á milli Seyðisfjarðar og Borgar-
fjarðar njóta mikilla vinsælda í
dag. Oft eru þessar leiðir skipu-
lagðar sem 4-5 daga ferðir og þá er
gist í fjallakofum. Hér fyrir austan
eru einir níu mjög góðir fjallakof-
ar sem taka allt upp í 80 manns.
Við hjá Ferðaskrifstofu Austur-
lands tökum á móti fjölda ferða-
manna og það er í okkar hlutverki
að vísa þeim út í náttúruna.
Það er svo margt annað í spilunum
en að keyra hringinn og gista á
hótelum á leiðinni. Við höfum orð-
ið vör við fjölgun ferðamanna með
Norrönu undanfarin ár og því á ég
von á annasömu sumri í ár. Síðan
er alltaf að aukast ásókn í veiði
hérna fyrir austan á haustin, gæs-
ina, rjúpuna og hreindýrin. Það
verður því nóg um að vera hérna,
svo ekki sé minnst á allar bæjarhá-
tíðirnar.
Það er mikið af fólki á aldrinum
20-40 ára sem hefur oftar komið til
Kaupmannahafnar eða ákveðinnar
sólarstrandar en hingað austur til
okkar.
Mér finnst vera vakning hjá
þessari kynslóð um að nú sé kom-
inn tími til þess að skoða Ísland.“
8 ■■■ { AUSTURLAND } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
ALLT
í fótboltann
í gönguna
í íþróttirnar
í útivistina
FULL BÚÐ AF FLOTTUM FÖTUM
OPIÐ ALLA DAGA • SÍMI 471 1230
SÉRSMÍÐI
SÉRSMÍÐUM OG HÖNNUM INNRÉTTINGAR
AF ÖLLU TAGI. Sérsmíðum og hönnum innrétt-
ingar af öllu tagi, með séráherslu á vandaðar innihurðir
fyrir heimili, fyrirtæki og stofnanir.
YFIR 20 ÁRA REYNSLA.
BIRKITRÉ sf
Lyngási 12 / 700 Egilsstaðir / sími 471-1619
Austfirðingar
SETJUM SVIP Á BÆINN Í SUMAR
Tökum að okkur málningarvinnu á flestum sviðum, heimili, hús,
fyrirtæki og fleira. Víðtæk reynsla – vönduð vinnubrögð.
FAXATRÖÐ 2, 700 EGILSSTAÐIR
sími: 899-4312 og 864-0347
„Hér á Egilsstöðum rekum við upp-
lýsingamiðstöð Austurlands, sem er
landshlutamiðstöð. Að sjálfsögðu
leiðbeinum við lengra áfram suður
fyrir Djúpavog eða norður fyrir
Bakkafjörð ef fram á það er farið.
Hér starfa á sumrin sex starfsmenn
sem skipt er á vaktir. Nú í byrjun
júní virðist svo sem sumarið fari
mjög vel af stað. Það komu hingað
fyrstu ferðalangarnir í kringum 20.
apríl sem tjölduðu hér hjá okkur í tíu
stiga gaddi,“ segir Sigurbjörg Inga
Flosadóttir, forstöðumaður upplýs-
ingamiðstöðvar Austurlands.
„Sumarið leggst þannig í mig að
stefni í aukningu á ferðamanna-
strauminum frá síðasta ári, þrátt fyr-
ir að það hafi verið gott. Ferða-
mannatíminn hefur verið að lengjast
á báðar áttir. Ferjan Smyrill, sem
leggst upp að Seyðisfirði einu sinni í
viku, veldur álagspunktum hjá okk-
ur og þá skipta farþegarnir oft leið-
um. Sumir fara norður og aðrir fara
suður fyrir. Koma Smyrils hleypir
alltaf miklu lífi í bæjarlífið hjá okk-
ur og það er óneitanlega gaman þeg-
ar svo er. Það hefur vakið athygli
okkar hérna í upplýsingamiðstöðinni
að ferðamynstur fólks er að breytast.
Við erum farin að fá húsbíla eða
tjaldvagna á vorin til okkar en fólk
kýs í auknum mæli að nota slíkar
græjur. Húsbílar og tjaldvagnar hafa
ýmsa kosti, eru ekki eins háðir veðr-
inu. Við finnum einnig mikið fyrir
því að allir þeir sem vinna uppi í
Kárahnjúkum koma hingað þegar
þeir eiga frí á sunnudögum. Þá fyl-
list Egilsstaðabær af fólki og sömu-
leiðis af fólki frá Reyðarfirði vegna
framkvæmdanna við álver þar.“
Breytt ferðamynstur
Á Egilsstöðum er rekin upplýsingamiðstöð Austurlands. Umráðasvæði hennar er frá
Bakkafirði í norðri allt suður til Djúpavogs.
Sigurbjörg Inga Flosadóttir er forstöðumaður upplýsingamiðstöðvar Austurlands.
„Við erum með dagsferðir að Kára-
hnjúkum á miðvikudögum og laug-
ardögum. Dagsferðir frá Eskifirði
upp að Kárahnjúkum taka um 8-9
tíma með leiðsögn. Þetta er þriðja
árið sem Tanni Travel býður upp á
þessar ferðir. Í þeim gefst fólki tæki-
færi til að berja virkjunarsvæðið
augum auk alls svæðisins í heild,
sem er mjög áhugavert,“ segir
Sveinn Sigurbjarnarson, fram-
kvæmdastjóri Tanna Travel.
„Í ferðunum upp að virkjunarsvæð-
inu við Kárahnjúka er farið í hring,
út Jökuldalinn og komið að Klaust-
urseli þar sem hægt er að skoða
dýragarð með refum og hreindýrum.
Það eru dýr sem menn berja ekki
augum á hverjum degi. Alltaf slæð-
ist með eitthvað af göngufólki sem
við keyrum í Snæfell eða jafnvel
sækjum þangað. Á vorin er algengt
að fá vinnuhópa, félagasamtök eða
fyrirtæki í þessar ferðir. Síðari hluta
sumars ber meira á einstaklingum
sem vilja skoða virkjunarsvæðið.
Tanni Travel dregur nafn sitt af snó-
moksturstækinu Tanna sem var hér í
notkun við snómokstur í Oddsskarði
á árunum 1974-1984 , en ég var bíl-
stjóri á þessu tæki. Tanni var fyrsti
snjóbíll á Íslandi sem var með tönn
sem hægt var að skekkja með
glussatöngum. Hann þurfti því ekki
að vera með jarðýtur á undan sér
við moksturinn til að laga hliðar-
hallann.“
Dregur nafn sitt af
snjómoksturstæki
Fyrirtækið Tanni Travel skipuleggur dagsferðir upp að Kárahnjúkum á miðviku- og
laugardögum.
Sveinn Sigurbjarnarson, framkvæmdastjóri Tanna Travel, við eina af rútunum sem
notaðar eru í ferðirnar upp að Kárahnjúkum. Vinstra megin er hinn frægi snjóbíll,
Tanni.
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/Í
sa
k
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/Í
sa
k
Miðpunktur til allra átta
Austfirðirnir eru mjög fjölbreytilegir og hafa upp á margt að bjóða fyrir ferðamanninn.
Egilsstaðir eru ágætis miðpunktur í allar áttir fyrir þá sem gefa sér tíma til að kanna svæðið.
Arngrímur Viðar Ásgeirsson veitir Ferðaskrifstofu Austurlands forstöðu, en hún er á
Egilsstöðum.
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/Í
sa
k