Fréttablaðið - 09.06.2005, Page 44
„Árið 1911 var byggt við gistihúsið
á Egilsstöðum og hluti hússins varð
að gistiheimili. Heimildir segja frá
því að bóndi sem átti þessi jörð á
undan langafa mínum, hafi kvartað
undan gestagangi hérna,“ segir
Gunnlaugur Jónasson, hótelstjóri
Gistihússins á Egilsstöðum.
„Þrátt fyrir að hér hafi alltaf verið
rekið gistihús, var aðstaðan orðin
nokkuð lasin árið 1993, en þó
hófust endurbætur á Gistihúsinu.
Árið 1998 keyptum við hjónin, ég
og Hulda Elísabet Daníelsdóttir,
reksturinn og höfum staðið fyrir
miklum endurbótum.“ Gunnlaugur
er sonur Margrétar Pétursdóttur,
sonardóttur Jóns Bergssonar og
Margrétar Pétursdóttur og með
kaupum þeirra hjóna var Gistihúsið
að nýju komið í hendur Egilsstaða-
ættarinnar. Árið 1889 keyptu Jón
Bergsson og Margrét Pétursdóttir
jörðina Egilsstaði og er það upphaf-
ið af sögu ættarinnar á þessum
stað.
„Gistihúsið á Egilsstöðum var eitt
sinn eina húsið á staðnum og segja
má að Egilsstaðabær hafi byggst út
frá þessu húsi. Við lítum björtum
augum til framtíðar, hér er mjög
góð nýting yfir sumarmánuðina, á
köflum hættulega mikil. Það lítur
vel út með pantanir í sumar, en ég
tek eftir því að ferðamynstur fólks
er að breytast. Fólk pantar gisting-
una sína með minni fyrirvara en
áður. Við fáum töluverða kynningu
í gegnum Ferðaþjónustu bænda.
Uppistaðan af okkar gestum eru út-
lendingar á bílaleigubílum sem eru
að keyra hringinn.“
10 ■■■ { AUSTURLAND } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
„Hótel Framtíð á Djúpavogi var
upphaflega byggt sem verslunarhús
og var í eigu dansks verslunar-
manns. Búið er að reka húsið sem
hótel frá árinu 1967 og hótelið
heldur því upp á fimmtíu ára af-
mæli sitt eftir tvö ár, en húsið sjálft
er 100 ára á þessu ári,“ segir Guð-
rún Anna Eðvaldsdóttir, hótelstýra
á Hótel Framtíð á Djúpavogi. Guð-
rún Anna og eiginmaður hennar,
Þórir Stefánsson, reka hótel Fram-
tíð.
„Fyrsta hótelið á Djúpavogi var
samt Hótel Geysir sem nú er nýtt
sem ráðhús staðarins. Sama fjöl-
skylda er búin að eiga húsið frá ár-
inu 1988. Þá var byggð viðbygging
við hótelið sem er rúmir 700 fer-
metrar. Hér eru 36 herbergi, níu
herbergi í gamla húsinu og þar eru
öll herbergi með handlaug en ekki
sturtu. Gestir hótelsins vilja flestir
gista í nýja húsinu þar sem öll her-
bergi eru nýtískuleg með sturtu en
sumir vilja fá að vera í gamla hús-
inu, finnst sérstök stemning að
gista í eldri hluta hússins. Óhætta er
að segja að í þessu húsi ríki afskap-
lega notalegur andi.
Við höfum verið mjög heppin með
kokka á hótelinu og fengið viður-
kenningar fyrir matinn. Hér var
sami kokkurinn í átta ár en hann
hætti nýverið. Nú er kominn nýr
kokkur á hótelið og hann lofar ein-
nig góðu, við erum mjög ánægð
með hann. Báðir kokkarnir eru með
nýjar matarhefðir á hreinu, enda
rétt sloppnir yfir þrítugt. Ferða-
málaráð Íslands veitti okkur viður-
kenningu nýverið sem eitt af bestu
hótelum á landinu og sömuleiðis
fengum við viðurkenningu frá Þró-
unarstofu. Sumartraffíkin er rétt að
hefjast og maímánuður var óvenju
góður hjá okkur. Við höfum svo
mikið að gera að nauðsynlegt er að
fjölga starfsfólki um 12 manns yfir
sumarið. Annars er hér opið árið
um kring.
Íbúafjöldi á Djúpavogi hefur að
mestu staðið í stað undanfarin ár,
en búast má við töluverðri náttúru-
legri fjölgun á þessu ári. Hér búa
tæplega 500 manns og allavega 12
Djúpavogsbörn eru væntanleg í
heiminn á þessu ári. Hér á Djúpa-
vogi er mikið af ungu fólki á aldr-
inum 20-40 ára.“
Aldargamalt tilhöggvið hús
Hótel Framtíð á Djúpavogi var flutt hingað til Íslands tilhöggvið frá Kaupmannahöfn
árið 1905. Húsið sjálft var reist hér árin 1905-06, raðað saman og allir bitar merktir
rómverskum tölum og litum til þess að auðvelda alla samsetningu.
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/Í
sa
k
Eina safnið sinnar
tegundar
Mikill fjöldi hermanna hafði aðsetur á Reyðarfirði í síðari
heimsstyrjöldinni og þeir skildu eftir sig menjar sem hægt er
að berja augum á Íslenska stríðsárasafninu.
Sonja Björk Jóhannsdóttir er safnstjóri Íslenska stríðsárasafnsins á Reyðarfirði.
Á Reyðarfirði er Íslenska stríðsárasafnið við gamla herbragga, en
mikill fjöldi hermanna hafði aðsetur á Reyðarfirði í stríðinu og
stríðsminjar er víða að finna. Stríðsárasafnið var stofnað 1995 og
eru þar varðveittir ýmsir munir og sýndar minjar frá tímum síðari
heimsstyrjaldar og hernámi Íslands frá íslensku sjónarhorni. Sonja
Björk Jóhannsdóttir er safnstjóri Íslenska stríðsárasafnsins á Reyð-
arfirði.
Fatahreinsun og
þvottahús
Þvottabjörn ehf
Búðareyri 25
730 Reyðarfjörður
ÞAR SEM FAGMENNSKAN
ER Í FYRIRRÚMI
Einbúablá 29
Opið 9-17, virka daga
700 Egilsstaðir
Sími:471-2980
Sænautasel
í Jökuldalsheiði
Nýbakaðar lummur og
kaffisala allan daginn frá
9-22.
Matur til sölu eftir pöntun.
S: 855-5399 S:4711086.
jokulsa@centrum.is
Miðvangi 2-4 • Egilsstöðum
Kaffihús og verslun
Anna Eðvaldsdóttir hótelstýra á Hótel
Framtíð.
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/Í
sa
k
Fyrsta húsið á Egilsstöðum
Gistihúsið á Egilsstöðum var byggt árið 1903 og var upphaflega hugsað sem bóndabær.
Frá upphafi var þar mikill gestagangur og með tilkomu Lagarfljótsbrúar 1905 varð um-
ferðin enn meiri.
Gunnlaugur Jónsson er hótelstjóri á
Gistihúsinu á Egilsstöðum.
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/Í
sa
k
„Ætli þetta flokkist ekki undir elliglöp?“ segir Sigurlaug Gissurardóttir hús-
freyja hlæjandi þegar orð er haft á framkvæmdagleðinni á bænum. Nýja hús-
ið verður tekið í gagnið nú um miðjan mánuðinn og eftir það er gisting í 43
rúmum í boði á Brunnhóli, ásamt eldunaraðstöðu og setustofu. Auk þess ber
Sigurlaug fram morgunverð og býður upp á kvöldverðarhlaðborð. Þótt hún tali
um elliglöp er hún enn á besta aldri og eftir því spræk. Hún og eiginmaður
hennar, Jón Kristinn Jónsson, búa í Árbæ sem er steinsnar frá Brunnhóli. Þar
hafa þau rekið kúabú í yfir 20 ár en nú
er sonur þeirra, Sæmundur, að taka við
því, ásamt sinni fjölskyldu. Nýja húsið er
hvoru tveggja í senn bráðabirgðaíbúðar-
hús ungu hjónanna og glæsileg viðbót
við gistipláss Sigurlaugar og Jóns. Þau
voru með þeim fyrstu til að fara út í
ferðaþjónustu bænda í héraðinu og nú
snúa þau sér að henni alfarið. „Upphaf-
lega ætluðum við bara að leigja eyðibýl-
ið Brunnhól út sem sumarbústað en
fljótlega fundum við fyrir mikilli þörf á
gistiplássi fyrir ferðamenn svo við
breyttum stefnunni og fljótlega stækkuð-
um við Brunnhól. Ég byrjaði á að taka
fólk í morgunmat inn í eldhús til mín en
það sprengdi utan af sér og stofan varð að matsal. Svo settum við upp sólstofu
og borðsettum þar og í fyrra var bætt við hana. Ég er með hlaðborð á kvöldin
með að minnsta kosti einum fiskrétti, einum kjötrétti og einhverju vali um
grænmeti. Hef heimilislegan mat og nóg af honum.“
Ýmislegt skapast af aðstæðum eins og skonsuhefðin sem Sigurlaug lýsir svo
„Mér fannst óþægilegt að vera aðgerðarlaus í eldhúsinu meðan fólk var að
borða morgunmatinn svo ég fór að baka skonsur og bera þær heitar á borð.
Áður en ég vissi af var farið að rukka mig um þær ef þær vantaði. Þá var það
komið í einhverja erlenda bók að á þessum bæ fengi fólk alltaf nýbakaðar
skonsur. Því verða ansi margar skonsur til hér yfir sumarið.“
Iðandi fuglalíf
og selalátur
Papeyjarferðir voru stofnaðar 30. maí 1995 og eru því tíu ára um
þessar mundir. Á þeim tíma sem Papeyjarferðir hafa verið starfrækt-
ar hafa rúmlega 10.000 manns verið fluttir út í Papey.
„Af þeim tíu þúsund farþegum sem
við höfum flutt út í Papeyna er um
það bil helmingur útlendingar, en
þeim hefur farið fjölgandi á undan-
förnum árum. Ætli þeir séu ekki
orðnir um 60-70% gesta okkar í
dag,“ segir Már Karlsson, fram-
kvæmdastjóri Papeyjarferða.
„Papey er merkileg eyja, um tveir
ferkílómetrar að stærð en aðaleyj-
unni fylgja margar úteyjar. Allr eyj-
arnar eru iðandi af fuglalífi og sel-
ur á skerjum allt um kring. Fugla-
björgin eru stórfengleg, 20-45
metrar á hæð og þarna er mest um
lunda en einnig mikið um ritu, fýl
og kríu. Papey á sér merka sögu í
fornbókmenntum, en talið er að
papar hafi búið þar fyrir komu nor-
rænna manna til Íslands. Papar
voru kristnir og talið að þeir hafi
komið sér á brott þegar Norðmenn
fóru að byggja landið, því þeir vildu
ekki vera innan um heiðna menn.
Eyjarnar eru óbyggðar í dag, en
þarna er þó gamalt íbúðarhús sem
byggt var upp úr eldra húsi um
1900. Þarna eru einnig tveir litlir
sumarbústaðir.
Papeyjarferðir eru fjölskyldufyrir-
tæki í eigu fjögurra fjölskyldna. Ég
hef verið leiðsögumaður frá upp-
hafi, en nýlega bættist Svavar Sig-
urðsson, kennari á Djúpavogi, í hóp
leiðsögumanna. Báturinn tekur
mest 22 farþega, en við setjum lág-
markið við fjóra farþega til að fara
af stað. Nýlega kom hingað rúss-
neskt skemmtiferðaskip og við af-
greiddum það með hópi gúm- og
flotbáta út í eyjarnar og kunnu
gestir skipsins það vel að meta.“
Hermann Steinsson, skipstjóri Papeyjarferða, og Már Karlsson framkvæmdastjóri.
Skonsubærinn Brunnhóll
Á Brunnhóli á Mýrum í Hornafirði hefur ferðaþjónusta
bænda verið frá 1986. Byrjað var rólega en bætt stöðugt
í og nú er stórhýsi í byggingu.
Sigurlaug bakar skonsur til að bera
fram á morgunverðarborðið.