Fréttablaðið - 09.06.2005, Blaðsíða 55
27
FASTEIGNIR
Sölu annast Húsakaup, fasteignasala, Suðurlandsbraut 52, S ími 530 1500, husakaup@husakaup. is
L I N D A R G ATA 6 0
S Ö L U S Ý N I N G Í D A G
Um er að ræða fjórar 2ja herbergja íbúðir, 48- 56 fm og eina 4ra herbergja íbúð, 93,1 fm.
SÖLUMENN SÝNA ÍBÚÐIRNAR Í DAG FRÁ KL. 17 – 19.
Í nýju stórglæsilegu húsi í hjarta borgarinnar eru til sölu 5
íbúðir. Húsið er byggt í gömlum stíl sem hæfir umhverfi
þess en innri hönnun og skipulag uppfyllir allar
nútímakröfur. Húsið er annars vegar steinsteypt og múrað
(bakhluti) og hins vegar byggt úr timbri og bárujárnsklætt
(framhluti). Mjög var vandað til uppbyggingar hússins en
verkið var unnið af Gamlhús ehf. sem er fyrirtæki á
vegum ÍAV sem sérhæfir sig í uppbyggingu gamalla húsa.
Um innri frágang sáu S.Ó.S fasteignir ehf.
Allur frágangur, stíll og yfirbragð húsins er til fyrirmyndar.
Steypti hluti hússins er einangraður að utan og þær 3
íbúðir sem þar eru hafa allar gólfhita. Tvær íbúðir eiga sér
bílastæði á lóðinni en að öðru leyti eru næg bílastæði í
næsta nágreni m.a. mjög lítið nýtt bílastæðahús í 100
metra fjarlægð. Hús, íbúðir og garður eru að öllu leyti
fullbúin. Hiti er í stéttum og bílaplönum.
Staðsetningin er frábær, stutt í miðbæinn og
Laugavegurinn í aðeins 2 mínútna göngufæri, en húsið
hins vegar laust við skarkala miðbæjarins á kvöldin og um
nætur.