Fréttablaðið - 09.06.2005, Page 60
9. júní 2005 FIMMTUDAGUR32
LEIKIR GÆRDAGSINS
Undankeppni HM
1. RIÐILL:
Tékkland-Makedónía 6-1
0-1 Goran Pandev (14.), 1-1 Jan Koller (42.),
2-1 Jan Koller (45.), 3-1 Jan Koller (49.), 4-1
Jan Koller (53.), 5-1 Tomas Rosicky, víti (74.),
6-1 Milan Baros (88.).
Finnland-Holland 0-4
0-1 Ruud van Nistelrooy (35.), 0-2 Dirk Kuijt
(77.), 0-3 Phillip Cocu (85.), 0-4 Robin Van
Persie (87.).
Rúmenía-Armenía 3-0
1-0 Ovidiu Petre (29.), 2-0 Gheorghe Bucur
(40.), 3-0 Gheorghe Bucur (80.).
2. RIÐILL:
Danmörk-Albanía 3-1
1-0 Soren Larsen (4.), 2-0 Soren Larsen
(46.), 3-0 Martin Jorgensen (54.), 3-1 Erjon
Bogdani (72.).
Grikkland-Úkraína 0-1
0-1 Andriy Husin (81.).
Kazakhstan-Tyrkkland 0-6
0-1 Fatih Tekke (13.), 0-2 Ibrahim Toraman
(15.), Tuncay Sanli (38.), 0-4 Fatih Tekke
(80.), 0-5 Hamit Altintop (88.), 0-6 Tuncay
Sanli (90.).
3. RIÐILL:
Eistland-Portúgal 0-1
0-1 Cristiano Ronaldo (33.).
Lettland-Liechtenstein 1-0
1-0 Imants Bleidelis (16.)
Luxemburg-Slóvakía 0-4
0-1 Szilard Nemeth (5.), 0-2 Marek Mintal
(15.), 0-3 Karol Kisel (54.), 0-4 Lubos Reiter
(60.)
4. RIÐILL:
Færeyjar-Írland 0-2
0-1 Ian Harte, víti (51.), 0-2 Kevin Kil-
bane (58.)
5. RIÐILL:
Hvíta Rússland-Skotland 0-0
7. RIÐILL:
Spánn-Bosnía 1-1
0-1 Zvjezdan Misimovic (38.), 1-1 Carlos
Marchena (90.).
8. RIÐILL:
Ísland-Malta 4-1
1-0 Gunnar Heiðar Þorvaldsson (28.), 2-0
Eiður Smári Guðjohnsen (34.), 2-1Brian Said
(59.), 3-1 Tryggvi Guðmundsson (75.), 4-1
Veigar Páll Gunnarson (86.).
VINÁTTULANDSLEIKIR:
Þýskaland-Rússland 2-2
0-1 Alexander Aniukov (26.), 1-1 Bastian
Schweinsteiger (30.), 2-0 1-1 Bastian
Schweinsteiger (70.), 2-2 ALeksandr
Kerzhakov (90.).
Svíþjóð-Noregur 2-3
1-0 Kim Källström (17.), 1-1 John Arne Riise
(61.), 1-2 Thorstein Helstad (64.), 1-3
Steffen Iversen (65.) 2-3 Johan Elmander
(68.). Þetta var fyrsti sigur Norðmanna í
Svíþjóð í 54 ár.
Japan, Sádí-Arabía, Suður-Kórea og
Íran tryggðu sér öll sæti í úrslitakeppni
HM í Þýskalandi 2006. Engin Evrópuþjóð
er örugg en Úkraínu vantar aðeins einn
sigur til að komast í fyrsta sinn í
stórkeppni.
Ásgeir Sigurvinssyni landsliðsþjálfara var létt eftir að fyrsti sigurinn var í höfn:
FÓTBOLTI „Það er vissulega léttir að
vera búnir að klára þennan leik,
4-1 eru góð úrslit og ég bið ekki
um meira,“ sagði Ásgeir Sigur-
vinsson landsliðsþjálfari eftir
leikinn.
„Við leyfðum þeim að komast inn
í leikinn á dálitið ódýran hátt, en
við vorum betra liðið í dag og
verðskulduðum þennan sigur. Við
byrjuðum seinni hálfleikinn ekki
nógu vel og ekki þann fyrri held-
ur í rauninni, því við vorum lengi
að koma okkur í gang. Liðið náði
sér á ágætan skrið undir lok fyrri
hálfleiksins og náði svo að rífa sig
upp eftir að þeir minnkuðu mun-
inn, sem mér fannst bera vott um
góðan karakter.
Við vissum að þeir yrðu mjög
varnarlega sinnaðir og við tókum
ekki ákvörðun um að stilla upp 4-
4-3 fyrr en við sáum æfingu hjá
þeim og sáum hversu varnarsinn-
að þeir ætluðu að leika gegn okk-
ur. Við ákváðum að reyna því að
nýta okkur vængina og hafa Eið í
sóknarhlutverki á miðjunni, sem
mér fannst bara heppnast ágæt-
lega.
Ungu strákarnir voru að leika
mjög vel og það var gaman að sjá
Tryggva koma inn og standa sig
svona vel. Hann sannaði það að
það er ekkert búið að afskrifa
menn þó þeir komi til Íslands. Við
erum auðvitað að mæta með mjög
ungt lið til leiks hérna núna og ég
held að ég hafi talið eina átta leik-
menn sem vantaði í liðið, svo að
þetta var bara mjög ánægjulegur
dagur.
Mér finnst jákvæðast við leik-
inn í dag að við skulum skora
fjögur mörk og að við skyldum
ekki láta það á okkur fá þegar við
fengum á okkur markið og vinna
sannfærandi. Ég vona að þetta
gefi okkur sjálfstraust í næstu
leiki og það verður mjög gaman
að taka á móti Króötunum í næsta
leik.“ -bb
Sigurinn gefur okkur gott sjálfstraust
Grétar Rafn Steinsson:
Ég er kominn
til a› vera
FÓTBOLTI „Það er gott að ná sigri
gegn Möltu eftir að hafa aðeins
fengið eitt stig úr fyrri leiknum.
Það er ansi erfitt að spila gegn
svona liðum og þetta minnir á bik-
arleiki, maður þekkir það heima
hvað það er oft erfitt að spila gegn
neðri deildar liðum í bikarnum og
brjóta þau niður.“ sagði Grétar
Rafn Steinsson eftir leikinn en
hann hefur vakið mikla athygli
fyrir vasklega framgöngu með
landsliðinu.
„Ég hef lengi beðið eftir þessu
tækifæri og nú er það komið, ég
vona að ég hafi bara staðið mig
ágætlega og haldi sæti mínu. Ég
er ákveðinn í að vera kominn til
að vera. Það er til nóg af ungum
leikmönnum sem þyrstir í að sýna
sig og sanna og spila fyrir liðið.
Ég held að það sé mjög jákvætt að
það séu að koma smá kynslóða-
skipti í þetta.“ sagði Grétar Rafn.
Liðið og þjóðin þurfti sigur
Landsli›sfyrirli›inn Ei›ur Smári Gu›johnsen skora›i í flri›ja landsleiknum í
rö› og sitt 15. A-landsli›smark frá upphafi.
FÓTBOLTI „Liðið og þjóðin þurftu
sigur og ég vona að fólk hafi
skemmt sér vel. Það voru fleiri á
vellinum en ég bjóst við og mig
langar að þakka fyrir stuðninginn
sem við fengum. Það reynir dálítið
á þolinmæðina fyrir okkur að spila
á móti svona vörn og ég var með
einn límdan á mig allan leikinn,
sem ætlaði að elta mig þegar ég
fór á klósettið í hálfleik,“ sagði
Eiður Smári Guðjohnsen sem
skoraði í þriðja landsleik sínum í
röð og komst upp fyrir föður sinn
Arnór Guðjohnsen á markalista A-
landsliðsins. Arnór skoraði 14
mörk í 73 leikjum á sínum tíma en
Eiður Smári hefur nú skorað 15
mörk í 36 landsleikjum.
„Við náðum að spila ágætlega
og það eina leiðinlega er að fá á sig
þetta mark. Það var mikill kraftur
í ungu strákunum hjá okkur, sér-
staklega Grétari, hann kom inn í
þetta með þvílíkan kraft, sem er
bara gott mál. Auðvitað gæti ég
nefnt tíu til viðbótar og mér finnst
bara gott að enda þetta núna á
sigri hérna á heimavelli og það
verður gott að komast í smá frí,“
sagði Eiður Smári sem hefur skor-
að fimm mörk í sjö leikjum und-
ankeppninnar. Eiður Smári fær nú
langþráð frí en hann hefur leikið
64 leiki á þessu tímabili, 57 með
Chelsea í öllum keppnum og svo 7
með íslenska landsliðinu. Mörkin
hans Eiðs Smára á þessu
eftirminnilega og frábæra
tímabili eru 22 talsins, 16 með
Chelsea og 6 með íslenska
landsliðinu.
-bb, -óój
FIMMTÁNDA MARKIÐ Eiður Smári Guðjohnsen fagnar hér sínu 15. marki fyrir íslenska A-
landsliðið á skemmtilegan hátt ásamt Tryggva Guðmundssyni. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Gunnar H. Þorvaldsson:
Ég og Tryggvi
hugsum svipa›
FÓTBOLTI „Þetta er algjör snilld og
hefur verið draumur síðan ég
byrjaði fyrst í boltanum. Nú er
bara að vona að mörkin verði
fleiri.“ sagði Gunnar Heiðar Þor-
valdsson eftir leikinn þegar hann
var spurður að því hvernig væri
að spila fyrir íslenska landsliðið.
Gunnar spilaði vel í þessum
tveimur leikjum, gegn Ungverj-
um og svo gegn Möltu. Hann náði
að skora sitt fyrsta landsliðsmark
í gær þegar hann skoraði fyrsta
mark leiksins og kom Íslandi yfir.
„Það kom langur á bolta á
Tryggva og ég held að við hugsum
svipað, hann vissi að ég var mætt-
ur þarna. Ég kallaði og hann sá
mig og gaf fyrir í fyrsta og ég
náði að skalla inn.“ sagði Gunnar.
„Þessi leikur var fínn á köflum
en ansi erfitt að brjóta ísinn þegar
þeir voru eitthvað níu í teignum
en um leið og það gekk þá vissum
við að þetta yrði auðveldara. Fyr-
ir leikinn vissum við að þetta yrði
bara þolinmæðisvinna. Við vorum
síðan klaufar að fá þetta mark á
okkur en náðum síðan fljótlega að
svara fyrir það, sem betur fer.“
-egm
FYRSTA MARKIÐ Gunnar Heiðar Þorvalds-
son fagnar hér sínu fyrsta marki fyrir
íslenska A-landsliðið. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Í STÚKUNNI Eggert Magnússon fylgist með
gangi máli í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
SVONA STRÁKAR Ásgeir Sigurvinsson
stýrir sínum mönnum. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
Eggert Magnússon, formaður Knattspyrnusambandsins:
Ánæg›ur me› ungu strákanna
FÓTBOLTI „Ég hefði auðvitað viljað
sex stig út úr þessum tveimur
leikjum núna og það var sárt að
tapa fyrir Ungverjunum, en í dag
er ég gríðarlega ánægður með
þessa ungu stráka sem eru að
koma inn í dag og berjast um
hvern einasta bolta og gefa ekkert
eftir.
Ég vona að þetta sé til marks
um bjarta framtíð hjá landsliðinu
og ég er viss um að við getum
byggt á þessu fyrir leikina í
haust,“ sagði Eggert Magnússon,
formaður KSÍ eftir fyrsta sigur
íslenska landsliðsins í und-
ankeppni HM 2006.
-bb