Fréttablaðið - 09.06.2005, Blaðsíða 66
9. júní 2005 FIMMTUDAGUR
■ DANSLEIKHÚS
■ BJARTIR DAGAR
NÝJA SVIÐ/LITLA SVIÐ/ÞRIÐJA HÆÐIN
KALLI Á ÞAKINU
e. Astrid Lindgren
Í samstarfi við Á þakinu
Su 12/6 kl 14 UPPS, Su 12/6 kl 17 UPPS,
Lau 18/6 kl 14, Su 19/6 kl 14 - UPPS.,
Su 26/6 kl 14, Lau 9/7 kl 14, Su 10/7 kl 14,
Su 17/7 kl 14, Su 24/7 kl 14
STÓRA SVIÐ
99% UNKNOWN - Sirkussýning
CIRKUS CIRKÖR frá SVÍÞJÓÐ
Þri 14/6 kl 20,
Mi 15/6 kl 20,
Fi 16/6 kl 20,
Fö 17/6 kl 20 Aðeins þessar sýningar
25 TÍMAR
Dansleikhús / samkeppni LR og Íd í samstarfi
við SPRON. Í kvöld kl 20 - Uppselt
Einstakur viðburður
NÝJA SVIÐ/LITLA SVIÐ/ÞRIÐJA HÆÐIN
ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR
Einleikur Eddu Björgvinsdóttur.
Í kvöld kl 20 - UPPS., Fö 10/6 kl 20
Lau 11/6 kl 20, Þri 14/6 kl 20, Fi 16/6 kl 20,
Lau 18/6 kl 20, Su 19/6 kl 20
Síðustu sýningar
Börn 12 ára og yngri fá frítt í
Borgarleikhúsið í fylgd
fullorðinna
- gildir ekki á barnasýningar
Miðasölusími 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Miðasala á netinu www.borgarleikhus.is
Miðasalan í Borgarleikhúsinu er opin:
10-18 mánudaga og þriðjudaga, 10-20
miðviku-, fimmtu- og föstudaga
12-20 laugardaga og sunnudag
Fös. 10/6 nokkur sæti laus
Síðasta sýning í vor!
GUÐMUNDUR STEINGRÍMSSON Lesið
verður upp úr óútkominni bók hans á
Björtum dögum í Hafnarfirði.
Áfram bjart í
Hafnarfir›i
Bjartir dagar í Hafnarfirði fóru
vel af stað í blíðskaparveðri og
framundan er fjölbreytt dagskrá.
Í dag verður opið hús í Hraun-
seli, Flatahrauni 3, þar sem eldri
borgarar bjóða upp á kvennatríó
sem syngur og jóðlar, karlakvar-
tett og upplestur úr óútkominni
bók Guðmundar Steingrímssonar
trommuleikara og fleira.
Funkkvöld verður í Gamla
bókasafninu við Mjósund þar sem
Sammi úr Jagúar flytur fyrirlest-
ur um funktónlist og blandar inn
lifandi tónlist.
Þá verður ljóðakvöld í Hafnar-
fjarðarleikhúsinu, þar sem ljóð-
skáld úr Hafnarfirði lesa upp ljóð
sín m.a. Valur Grettisson, Haukur
Ingvarsson og Ólafur Kolbeinn
Guðmundsson.
Á morgun verður Hipp-hopp
kvöld í Gamla bókasafninu við
Mjósund þar sem Einfarinn, Ram-
ses, Hin heilaga þrenning og NBC
rappa og Hermigervill spilar.
Graffityhópurinn SMK sýnir list-
ir sínar á veggjunum.
Um kvöldið verður síðan hald-
in Söngvakeppni hinna mörgu
tungumála í umsjá Alþjóðahúss-
ins þar sem söngur, sviðsfram-
koma, búningar og undirtektir
áhorfenda skipta máli til að fá
sem flest stig. Dómarar eru þrír
landsþekktir hafnfirskir tónlistar-
menn. Söngvakeppnin fer fram í
húsnæði Hafnarfjarðarleikhúss-
ins. ■
Í kvöld standa Íslenski dansflokkur-
inn og Leikfélag Reykjavíkur fyrir
dansleikhúsi á stóra sviði Borgar-
leikhússins. Um er að ræða eina
sýningu þar sem níu höfundar etja
kappi um besta dansverkið. Guðrún
Vilmundardóttir er leiklistarráðu-
nautur (dramatúrg) Borgarleik-
hússins og var í undirbúningsnefnd
samkeppninnar. Guðrún segir að
dansleikhús sé sjaldséð listform á
Íslandi en vinsælt erlendis. „Þetta
er alveg viðurkennt form og hefur
verið að verið að ryðja sér til rúms
úti í heimi,“ segir hún. „Dansleik-
húsið er mjög módern, og bæði í
dansflokknum og á leiksýningum
sér maður dansleikhústakta. En hér
á landi er þessi samkeppni eina sýn-
ingin þar sem listformið er alveg
hreint og klárt.“
Þetta er í þriðja sinn sem sam-
keppnin er haldin og hafa undirtekt-
ir verið góðar, en á fjórða tug hug-
mynda að verkum bárust fyrir jól
þegar keppnin var auglýst. Rjóminn
af þeim var valinn til frekari út-
færslu og nú hafa níu verk verið
æfð til sýningar í kvöld. Höfundarn-
ir fengu 25 tíma til að æfa verkið
með dönsurum og leikurum, sem
þeir völdu sjálfir, og því fékk sýn-
ingin nafnið 25 TÍMAR. Höfundar
verkanna, sem og leikarar og dans-
arar, eru flestir menntaðir í leiklist
eða dansi en nokkrir áhugamenn
taka einnig þátt. Þrenn verðlaun eru
veitt af fimm manna dómnefnd en
að auki munu áhorfendur kjósa um
besta verkið. Formaður dómnefnd-
arinnar, Sean Feldman, er þekktur í
listaheiminum en hann hefur komið
fram með fjölda virtra dansflokka.
Að mati Guðrúnar hentar dans-
leikhúsformið Borgarleikhúsinu vel
því það gefur leikurum leikfélags-
ins og dönsurum í Íslenska dans-
flokknum sem hefur aðsetur í leik-
húsinu tækifæri til að vinna mjög
náið saman. „Það gefur nýja vídd í
bæði formin, dans og leikhús,“ seg-
ir Guðrún. „Þetta er eiginlega hátíð,
hápunktur leikhússins á árinu,“ seg-
ir hún enda er sköpunarkrafturinn
mikill þegar níu ólíkir höfundar
koma við sögu.
Sýningin 25 TÍMAR – dansleik-
hús/samkeppni hefst klukkan átta á
stóra sviði leikhússins. „Þetta er
keppni og eðli málsins samkvæmt
er hún ekki endurtekin,“ segir Guð-
rún. Hún bendir á að verkin eigi sér
mörg framhaldslíf en verðlauna-
verk fyrri ára hafa verið útfærð
frekar af Íslenska dansflokknum.
Aðstandendur sýningarinnar stefna
á frekari landvinninga og því má
búast við að samkeppnin vaxi enn á
næsta ári.
rosag@frettabladid.is
N‡tt listform ry›ur
sér til rúms á Íslandi
INTEGRATE EFTIR INGVAR SIGURÐSSON „Íslenski dansflokkurinn er mjög módern og
er svolítið að róa á þessi mið,“ segir leiklistarráðunautur Borgarleikhússins. Dansleikhúsið
felur í sér meiri leik en í nútímadansi og texti er oftar notaður.