Fréttablaðið - 09.06.2005, Page 69
Nýverið valdi Þorri Hringsson argentínska rauðvínið
Norton Cabernet Sauvignon Reserva 2002 vín mánaðarins
í Gestgjafanum. „Annan mánuðinn í röð er argentínskt
rauðvín vín mánaðarins hjá mér og ef það segir ykkur
ekkert um þá möguleika sem ég tel Argentínu búa yfir þá
hafið þið ekki verið að fylgjast með!“ segir Þorri. Í um-
sögn sinni segir hann að Norton sé „mjúkt og sérlega vel
gert vín sem er á einstaklega góðu verði miðað við gæð-
in“.
Bodega Norton í Argentínu á sér langa sögu sem eitt af
helstu víngerðarhúsum Argentínu. Húsið er þekkt fyrir að
framleiða gæðavín á einkar hagstæðu verði. Víngerðin var
stofnuð árið 1895 af Englendingnum Edmund Norton en
hann hafði komið til Argentínu til að gera járnbraut sem
tengir Mendoza-svæðið við Chile. Árið 1989 var svo fyr-
irtækið keypt af Austurríkismanninum Gernot Langes-
Swarovski sem hefur rekið það síðan og aukið fram-
leiðsluna og gæðin jafnt og þétt.
Norton Cabernet Sauvignon Reserva 2002 fæst í
Heiðrúnu og Kringlunni og kostar 1.390 kr.
Í flestum Vínbúðum er svo á boðstólum Norton
Cabernet Sauvignon 2004 sem er einstaklega að-
gengilegt vín, flauelsmjúkt og hentar vel með góðu
lambakjöti. Fékk einkunnina 17/20 hjá Steingrími
Sigurgeirssyni, vínrýni Morgunblaðsins, og var auk
þess útnefnt „Bestu kaupin“ hjá Þorra Hringssyni í
Gestgjafanum.
Verð í Vínbúðum 990 kr.
FIMMTUDAGUR 9. júní 2005 41
Nuviana Chardonnay
er að mörgum talið
vera eitt helsta
sumarvínið í ár
og var til að
mynda valið bestu kaupin í
Vínbúðunum í síðasta tölu-
blaði Gestgjafans.
Nuviana Chardonnay
er vín sem óhætt er
að mæla með einu
og sér en er einnig
frábært með létt-
um mat s.s. salati,
fiskmeti af ýmsu
tagi og
smellpassar með
kjúklingi og
öðru ljósu kjöti.
C h a r d o n n a y
eins og það
gerist best frá
Spáni.
N u v i a n a
C a b e r n e t
Sauvignon/-
Merlot er
blanda af
tveimur þekkt-
ustu þrúgum vínheimsins sem
tvinnast ákaflega vel saman og er
útkoman þægilegt vín sem óhætt
er að mæla með. Einstakt vín með
grilluðum mat af ýmsu tagi, þó
sérstaklega gott með lambakjöti.
Nuviana Chardonnay og Nuvi-
ana Cabernet Sauvignon/Merlot
eru á reynslu í Vínbúðunum
og fást þar af leiðandi ein-
göngu í Heiðrúnu og
Kringlunni.
Verð í Vínbúðum
990 kr.
NUVIANA:
Brakandi ferskt
frá Spáni
NORTON: Vín mánaðarins í Gestgjafanum