Fréttablaðið - 28.05.2005, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 28.05.2005, Blaðsíða 4
KAUP Gengisvísitala krónunnar Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR USD GBP EUR DKK NOK SEK JPY XDR 64,60 64,90 117,69 118,27 80,88 81,34 10,87 10,93 10,12 10,18 8,79 8,85 0,60 0,60 95,84 96,42 GENGI GJALDMIÐLA 27.05.2005 GENGIÐ HEIMILD: Seðlabanki Íslands SALA 112,50 -0,01% 4 28. maí 2005 LAUGARDAGUR Heilbrigðiskerfið: fiarf tvo milljar›a til a› auka öryggi HEILBRIGÐISMÁL Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra telur að það þurfi að verja um tveimur millj- örðum króna á næstu fjórum árum til að auka öryggi í heil- brigðiskerfinu. Í Fréttablaðinu í gær kom fram að gera má ráð fyrir að um 130 manns látist hér á landi árlega vegna einhvers konar mistaka í heilbrigðiskerfinu og að þessi mistök kosti þjóðarbúið um 1,3 milljarða króna á ári. „Það sem ég legg áherslu á í þessu sambandi er að við bætum öryggi í heilbrigðiskerfinu og stór þáttur í því er að flýta uppbygg- ingu rafrænna samskipta og raf- rænna skráninga innan kerfis- ins,“ segir Jón Kristjánsson. Hann segir unnið að þessum málum í ráðuneytinu og þó að þessu fylgi nokkur kostnaður þá komi sparnaður á móti ef hægt verður að draga úr mistökum. Engin áform eru þó innan ráðu- neytisins um að rannsaka mistök í heilbrigðiskerfinu að svo stöddu. „Það eru skiptar skoðanir á því hvað á að leggja mikla vinnu og fjármuni og slíkt, en ég skil þau sjónarmið að menn vilji vita hvar þeir standa,“ segir heilbrigðisráð- herra. - ssal Ákær›ur fyrir a› rassskella konu Sævar Óli Helgason er ákær›ur fyrir a› veitast a› konu sem lag›i fyrir inn- keyrsluna hans í fyrrahaust. Hann segir leikskólakennarann hafa vegi› a› sér kynfer›islega og reynt a› sparka í punginn á sér. Hann hafi flví rassskellt hana. DÓMSMÁL Réttað var yfir manni sem ákærður er fyrir að hafa veist að leikskólakennara, skellt honum ofan á vélarhlíf bifreiðar hans og slegið hann nokkrum sinnum í aft- urendann. Sævar Óli Helgason sagði leik- skólakennarann hafa lagt ólöglega fyrir innkeyrslu á milli húsa þannig að hann átti í miklum vand- ræðum með að aka þar inn. Hann hafi séð hana stíga út úr bílnum og þótt ástæða til þess að benda henni, að eigin sögn kurteisislega, á að bílnum væri ólöglega lagt. Sævar Óli segir konuna þá hafa vegið að karlmennsku sinni með kynferðislegum athugasemdum, reynt að sparka í punginn á sér og ekki viljað kannast við að bílnum væri lagt ólöglega. Þá segist hann að hafa brugðist við eins og mamma hans kenndi honum með því að skella konunni á vélarhlíf bílsins og slá nokkrum sinnum þéttingsfast í rassinn, semsagt rassskellt hana á gamla mátann. Leikskólakennarinn bar vitni í málinu og hélt því staðfastlega fram að hún hefði ekki gert neitt til að réttlæta þvílík viðbrögð. Hún sagði Sævar hafa talað til sín á ögrandi hátt og þvertók fyrir kynferðislegar athugasemdir, hvað þá meint pungspark. Þegar hún var beðin um að rifja upp at- burðarásina í fyrrahaust fékk það svo mikið á hana að hún brast í grát og þurfti að gera stutt hlé á máli sínu. Hún viðurkenndi þó að hafa kallað Sævar „frekjudollu“ rétt áður en hann flengdi hana. Annað vitni að málinu sem stóð álengdar þegar atvikið átti sér stað hélt því fram að leikskóla- kennarinn hefði kallað Sævar „rugludall“. Ragnar Aðalsteinsson, verjandi Sævars, sagði í munnlegum mál- flutningi „að ekki væri hægt að dæma ákærða fyrir einn hlekk í atburðakeðju“. Hann vildi meina að leikskólakennarinn hefði sjálf- ur brotið hegningarlög á Sævari með niðrandi athugasemdum, hún hefði ráðist á hann með orðum áður en hann hefði ráðist á hana með gjörðum. Dómur verður kveðinn upp í málinu í byrjun júní. oddur@frettabladid.is Japanskir hermenn: Gáfu sig fram eftir sextíu ár JAPAN Tveir japanskir hermenn, 85 og 87 ára, hafa gefið sig fram á Filippseyjum. Þeir segjast hafa orðið viðskila við flokkinn sinn fyrir sex áratugum. Þeir óttuðust að verða dregnir fyrir herrétt vegna liðhlaups og mættu ekki á fund embættismanna á dögunum. Síðast gaf japanskur hermaður sig fram fyrir þrjátíu árum. Frægastur slíkra hermanna er leyniþjónustumaðurinn Hiroo On- oda, sem neitaði í 29 ár að gefast upp nema japönsk stjórnvöld sendu gamla yfirmanninn hans til Filippseyja til að tilkynna honum um uppgjöf Japans. ■ FISKUR FLUTTUR MILLI SKIPA Flutninga- skipið Sunny Jane frá Belís tekur við fiski frá sjóræningjaskipinu Okhotino. Fiskveiðieftirlit: Sjö sjóræningj- ar a› vei›um VEIÐAR Sjö svokölluð sjóræningja- skip sáust á veiðum á karfaslóð á Reykjaneshrygg í gær þegar flug- vél Landhelgisgæslunnar flaug þar yfir. Sjóræningjaskipin eru togarar sem ekki hafa leyfi til veiða á fiskveiðistjórnunarsvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiði- nefndarinnar. Áhöfn TF-SYN sá alls sextíu erlenda úthafskarfatogara á veið- um við mörk lögsögunnar suð- vestur af Reykjanesi. - bþg Líkamsárás: Tveir s‡knir en einn dæmdur DÓMSMÁL Dómur féll í gær í Hér- aðsdómi Norðurlands eystra yfir þremur mönnum sem gert var að sök að hafa lamið þann fjórða það illa á Húsavík í fyrrasumar að hann hlaut sýnilega áverka á höfði. Þegar gögn og vitnisburðir höfðu verið skoðaðir komst dóm- urinn að þeirri niðurstöðu að sennilega hefði aðeins einn mann- ana veitt fórnarlambinu umrædda áverka og aðkoma hinna tveggja þótti þar að auki óljós. Þeir tveir voru því sýknaðir af öllum ákær- um en sá þriðji dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi enda ung- ur að árum og að öðru leyti með hreinan skjöld. - oá Launamisrétti í Svíþjóð: Meiri munur en tali› var LAUNAMUNUR Sænskar konur fá að- eins 71 prósent af launum sænskra karla, samkvæmt nýrri könnun. EIn skýringin er sögð vera sú að mun fleiri konur en karlar vinna hlutastörf. Slík störf eru al- gengari í hefðbundnum kvenna- störfum, svo sem í heilbrigðis- kerfinu og í verslunar- og þjón- ustustörfum. Engu að síður eru þessar niðurstöður nokkuð áfall fyrir sænskt samfélag. - ssal LÖGREGLUFRÉTTIR VEÐRIÐ Í DAG INNBROT Á SELFOSSI Brotist var í gærmorgun inn í veitingahúsið Hafið bláa sem stendur við ósa Ölf- usár. Höfðu þjófarnir fjórar vín- flöskur og tóman peningakassa á brott með sér. Mynd náðist af tveimur mönnum á öryggismynda- vélar staðarins og hefur lögreglan á Selfossi sent myndirnar út og lýst eftir ljósgrænni Mazda 323 bifreið sem talin er tengjast málinu. Ólögmæt uppsögn: Ríki› dæmt til grei›slu DÓMSMÁL Íslenska ríkinu var gert að greiða fyrrverandi starfs- manni á sambýli fatlaðra á Blönduósi 800 þúsund krónur vegna ólöglegrar uppsagnar. Hann hafði starfað á sambýl- inu frá ágúst 1996 til október 1998 þegar honum var sagt upp. Í dómnum kemur fram að rök fyrir uppsögninni hafi verið ófull- nægjandi, og því ekki lögmætt að segja starfsmanninum upp á þess- um tímapunkti. Krafa stefnanda, sem fór fram á að ríkið greiddi honum rúmlega 26 milljónir, var ekki samþykkt og þóttu 800 þúsund krónur hæfileg- ar bætur. - mh JÓN KRISTJÁNSSON Vill auka öryggi í heil- brigðiskerfinu með því að efla rafræna skráningu. SÆVAR ÓLI HELGASON Hér stendur Sævar við innkeyrsluna sem leikskólakennarinn lagði framan við skömmu áður en hann rassskellti hana. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /H AR I
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.