Fréttablaðið - 28.05.2005, Blaðsíða 61
LAUGARDAGUR 28. maí 2005 45
Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar
verður með dansleik í Klúbbnum við
Gullinbrú.
Rúnar Þór og hljómsveit leika á
Ránni í Keflavík.
Vegagerðin, dúett þeirra Sváfnis
Sigurðarsonar og Haraldar Vignis
Sveinbjörnssonar, syngur og leikur í
Café Aroma í Hafnarfirði.
Hljómsveitir Tilþrif skemmtir í félags-
heimilinu Kirkjuhvoli á Klaustri þar
sem Íslandsmeistaramótið í Enduru
stendur yfir. Unglingahljómsveitin
The Lost Toad tekur einnig lagið.
■ ■ ÚTIVIST
14.00 Í tilefni 120 ára afmælis
Garðyrkjufélags Íslands býður Grasa-
garður Reykjavíkur upp á fræðslu-
göngu kl. 14 og aftur kl. 15. Garð-
yrkjufræðingarnir Auður Jónsdóttir
og Ingunn J. Óskarsdóttir leiða
gönguna og vekja athygli á völdum
trjám og runnum.
■ ■ SAMKOMUR
14.00 Listaháskóli Íslands braut-
skráir nemendur frá skólanum á há-
tíðarsamkomu sem haldin verður á
stóra sviði Borgarleikhúsins. Auk
ávarpa verður sýn myndbandið Viol-
in Power með Steinu Vasulka, Sif
Tulinius fiðluleikari leikur Adagio úr
einleikssónötu eftir Johann Sebastian
Bach í g-moll og slagverkshópurinn
Parabóla slær bumbur.
■ ■ FÉLAGSLÍF
14.00 Stofnfundur Félags fagfólks
í frítímaþjónustu verður haldinn í
félagsmiðstöðinni Miðbergi, Gerðu-
bergi 1.
■ ■ LISTAHÁTÍÐ
15.00 Kvartettinn Pacifica leikur á
Listahátíðartónleikum í Íslensku óp-
erunni. Kvartettinn skipa Sigurbjörn
Bernharðsson fiðluleikari, Masumi
Per Rostad á víólu, Simin Ganatra á
fiðl og Brandon Vamos á selló.
20.00 Barði Jóhannsson úr Bang
Gang og franska söngkonan Keren
Ann koma fram á Listahátíðartón-
leikunum í Íslensku óperunni, þar
sem þau flytja tónlist sína með ís-
lenskum kór og hörpuleikara.
21.00 Portúgalska fado-söngkonan
Mariza syngur á Broadway ásamt
fjölmennri hljómsveit.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki
síðar en sólarhring fyrir birtingu.
Hann er hér á listahátíð í boði og
að frumkvæði hertogaynjunnar
Francescu af Habsburg og upp-
haflega í alls engu samráði við
forsvarsmenn listahátíðar. Verk
hans hér er upphaf að nýju verki
sem verður sett upp og fram-
kvæmt víðar, alla vega í Namibíu,
Vínarborg, Los Angeles og New
York. Útgáfan sem er hér til sýnis
í húsakynnum Klinks og Banks í
Brautarholtinu heitir „Hús þrá-
hyggjunnar“ en átti fyrst að heita
„Rústum Þingvöll“ því þar varð
fæðing stjórnkerfisins sem lista-
maðurinn vill stanga. Nafninu var
hins vegar breytt á síðustu
stundu. Verkið er samsetningur af
leikhúsi og myndlist og er nánast
presenterað sem innkoma þessa
þekkta leikhúss- og kvikmynda-
gerðarmanns inn á svið myndlist-
ar og boðun um mikið áframhald.
Þess háttar sambræðsla er auðvit-
að ekki ný af nálinni en svo ein-
kennilegt sem það má vera hafa
myndlistarmenn verið meira fyr-
ir það að vinna með tengingar for-
manna heldur en listafólk í öðrum
greinum.
Sýningin er staðsett í kjallar-
anum í myrkvuðu rými. Vind-
hljóð, yfirlýsingar og hróp úr
gjallarhornum hvína allstaðar.
Áhorfandinn þarf að fara í gegn-
um göng inn úr einu herbergi í
annað og enda sjálfir á hringsvið-
inu. Á leiðinni og á hringsviðinu
eru sýndar kvikmyndir sem tekn-
ar voru sérstaklega hér á landi
þar sem ýmislegt sérkennilegt
ber fyrir augu svo sem strútur frá
Afríku spígsporandi um íslensk
hverasvæði. Verkið gefur til
kynna xenófóbíu, útlendinga-
hræðslu. Listamaðurinn stillir
Decode og Kára Stefánssyni upp
við thailenska menningu og mat-
sölustaði á Íslandi og segir „Ev-
erybody's island is a Thailand“.
Forsetinn er gerður að trúði og
forsetafrúin að dvergi. Hann
„vanhelgar“ Þingvelli með svið-
settri eftirlíkingu af afhendingu
Eyrarrósarinnar á Bessastöðum
og afhendir íslenskum listamönn-
um „Gullharðfiskinn“. Íslensku
guðirnir Loki og Óðinn eru tengd-
ir við raunveruleika dagsins í dag
á hringsviðinu og fleira í þessum
dúr.
Flest virkar svo yfirborðslega
að þetta verður í raun að aumum
fimmaurabröndurum. Listamað-
urinn lét hafa eftir sér að honum
líkaði ekki við myndlistarmenn
sem kæmu inn í annað menning-
arsamfélag með yfirborðslegar
klisjur og yfirlýsingar en er í raun
að enda svoleiðis sjálfur. Sem
myndlistarmaður er hann með til-
vísanir í „nýja“ þýska myndlistar-
arfleið. Krukkuverkin er nálgun á
Beuys/Roth akademíunni. Þar af-
helgar hann tvo stórmeistara.
Krítartafla Beuys er á hringsvið-
inu. Gallinn er að þetta virkar allt
eins og hvert annað props eða
leikmunir. Allt sem átti að verða
myndlist endar sem enn eitt leik-
húsverkið. Honum tekst allavega
ekki að helga munina – í þeim er
engin dýnamík. Það tókst hins
vegar Beuys og Dieter Roth með
miklum bravúr. Verkið er líka í
heild ofhlaðið vegna þess að inn-
takið er rýrt. Það sem er hins veg-
ar gott við það er að honum tekst
að skapa trúverðugt andrúmsloft
– hann skilar sensasjóninni vel.
Þetta er sterk upplifun, sterk leið-
sögn að animatograph hringsvið-
inu og áhorfandinn fær á tilfinn-
inguna að sterk orka sé í gangi.
Það er verk leikhúsmannsins og
þar er hann á heimavelli. ■
Hús flráhyggjunnar
„Systir mín spilaði á fiðlu þegar ég
var lítill drengur en þá hafði ég eng-
an áhuga á hljóðfærinu. Seinna fór
mamma með mig fimm ára á tón-
leika barna sem spiluðu á strengja-
hljóðfæri og ég varð svo afbrýði-
samur að ég varð að læra sjálfur,“
svarar fiðluleikarinn Sigurbjörn
Bernharðsson, spurður að því hví
fiðlan varð fyrir valinu, enda stund-
um álitin stelpuhljóðfæri.
„Á viðkvæmum unglingsárum
vissu allir að ég lék á fiðlu án þess
ég auglýsti það sjálfur. Mér fannst
sem allir horfðu á mig með fiðluna í
strætó en fyrst ég var í fótbolta líka
brá ég á það ráð að setja fiðluna í
fótboltatöskuna,“ segir Sigurbjörn
hlæjandi og bætir við að líf tónlist-
armannsins sé kannski ekki það
besta í heimi, en örugglega það eina
sem hann geti hugsað sér.
Sigurbjörn er eini Íslendingur-
inn í Pacifica, sem er talinn einn
allra fremsti kvartett Bandaríkj-
anna og hefur hvarvetna vakið
feiknalega athygli. Auk Sigur-
björns eru í Pacifica: Masumi Per
Rostad á lágfiðlu, Simin Ganatra á
fiðlu og Brandon Vamos á selló.
Kvartettinn heldur þrenna tónleika
á Listahátíð.
„Við Simin vorum saman í tón-
listarháskóla, lærðum hjá foreldr-
um Brandons og höfum því allir
verið góðir vinir frá því við vorum
táningar. Masumi kynntist ég síðar
á tónlistarhátíð og nú er hafið tí-
unda árið sem Pacifica starfar sam-
an,“ segir Sigurbjörn, en Pacifica er
aðalstarfi fjórmenninganna sem all-
ir stunda kennslu á milli tónleika-
halds, en þeir eru allt að 80 á ári í
Evrópu, Ameríku og Asíu.
„Ég hef verið í Bandaríkjunum
síðan 1992 að ég lauk einleikara-
prófi frá Tónlistarskólanum í
Reykjavík. Mér líður mjög vel úti,
en er alltaf með hugann hér heima.
Eftir því sem ég bý lengur fjarri
heimahögunum finnst mér mikil-
vægara að lesa íslenskar bækur og
fylgjast með íslenskum fréttum.
Heimþráin er því lífseig, þótt ég
hafi alltaf stjórn á henni,“ segir Sig-
urbjörn einlægur.
„Mörg tónskáld sömdu strengja-
kvartett, þegar þau vildu virkilega
tjá sig á sem innhverfastan og ein-
lægastan máta. Síðustu verk Beet-
hovens voru öll strengjakvartettar
og sama má segja um flest síðustu
verk Mozarts, Brahms og Bartóks.
Tónskáldum nútímans þykir jafn
áhugavert að gera tilraunir með
strengjakvartetta og því erum við
jafnan í sambandi við bestu tón-
skáldin, sem er þroskandi.“
Sigurbjörn segir lífið með
Pacifica snúast fyrst og fremst um
tónlist, þótt því fylgi líka glamúr og
ferðalög.
„En þetta er ekkert rokkstjörnu-
líf. Ferðalögin eru spennandi og
eins að spila með ótrúlegum tónlist-
armönnum. Ég var spenntur að
koma með vini mína til Íslands, því
þau hafa heyrt mig tala svo mikið
um landið, og eru hæstánægð,“ seg-
ir Sigurbjörn að lokum, hamingju-
samur að vera heima. ■
ÁTÖK VIÐ STRÚTINN Myndlistarsýning þýska leikstjórans Christophs Schlingensief er í
Klink og Bank.
MYNDLIST
GUÐMUNDUR ODDUR MAGNÚSSON
Klink og Bank
Christoph Schlingensief
Animatograph
Niðurstaða: „Allt sem átti að verða
myndlist endar sem enn eitt leikhús-
verkið.“
Sigurbjörn Bernharðsson fiðluleikari: Leikur með Pacifica-kvartettnum á Listahátíð
Faldi fi›luna í fótboltatöskunni
SIGURBJÖRN OG PACIFICA-KVARTETTINN Á ÆFINGU „Mér líður mjög vel úti, en er
alltaf með hugann hér heima. Heimþráin er því lífseig þótt ég hafi alltaf stjórn á henni.“