Fréttablaðið - 28.05.2005, Blaðsíða 47
LAUGARDAGUR 28. maí 2005 31
Margir þættir
skipta máli
Ýmis atriði gera það að verkum að alþjóð-
legur verðsamanburður er erfiður og ekki
áreiðanlegur að öllu leyti. Jón Þór Sturlu-
son, forstöðumaður Rannsóknarseturs
verslunarinnar við Viðskiptaháskólann að
Bifröst, hefur tekið saman þau sex megin-
atriði sem máli skipta og hafa ber í huga.
VÖRUKARFAN
Hvaða vörumerki eru í þeim körfum sem
samanburður er gerður á? Miklu máli
skiptir hvaða vörur eru valdar til saman-
burðar og hversu mikið er af hverri vöru
fyrir sig. Neyslumynstur er mismunandi
milli landa, sem gerir verðsamanburð
flókinn og vandasaman. Neyslusiðir hverr-
ar þjóðar skipta einnig máli. Þar ber sem
dæmi að líta til þess að leigubílar í
London eru að jafnaði ekki í sama gæða-
flokki og hér á Íslandi þó undantekningar
séu auðvitað á því.
RAUNVERÐ
Hvað er raunverð hverrar vöru fyrir sig?
Algengt er erlendis að veittir séu ýmiss
konar afslættir sem þekkjast ekki hérlend-
is í jafn ríkum mæli. Þar er meðal annars
um að ræða afsláttar- og tryggðarkort af
ýmsu tagi. Þau eru til hér á landi og eru
að ryðja sér meira til rúms á ári hverju en
enn sem komið er eru það aðeins stærri
fyrirtæki sem bjóða slíkt.
STAÐSETNING
Hvar fara kaupin fram? Miklu getur munað
á verði vöru innan hvers markaðssvæðis
fyrir sig. Það á líka við um borgir og gott
dæmi um þetta eru nýlegar auglýsingar
Office1 um umtalsverðan afslátt af tímarit-
um í verslun sinni. Lágvöruverslanir eru
annað gott dæmi og sýnir hversu miklu
getur munað á verðum þegar þjónusta er
skert miðað við hefðbundnar verslanir. Í
könnun ECC er tekið dæmi um verð á
leigubíl frá flugvelli í miðbæ hverrar borg-
ar fyrir sig. Það skekkir samanburðinn að
bílstjórar í Búdapest eru fráleitt á sömu
launum og kollegar þeirra hérlendis.
FLUTNINGSKOSTNAÐUR
Þar sem mikið af vörum sem hingað ber-
ast kemur ekki hingað beint heldur í
gegnum Evrópu má ljóst vera að flutn-
ingskostnaður hingað til lands er meiri en
gengur og gerist innan Evrópu. Að auki er
flutningskostnaður breytilegur milli lands-
svæða og líklegt að margar vörur séu enn
dýrari þegar úr borgunum er komið.
SKATTAR OG GJÖLD
Opinber gjöld og skattar á vörur eru mis-
munandi landa á milli. Neysluskattar hér
á Íslandi er hæstir af öllum þjóðum Efna-
hags- og framfarastofnunar Evrópu. Með
einföldun má segja að hið opinbera hér-
lendis leggi tæplega 40 prósent hærri
álögur á neysluvörur en gert er að jafnaði
innan Evrópusambandsins. Álögur þessar
fara að hluta eða öllu leyti út í verðlagið
og neytendur borga brúsann.
GENGIÐ
Gengi gjaldmiðla er eðli málsins sam-
kvæmt breytilegt frá degi til dags. Rann-
sóknir benda til að verð á innfluttum vör-
um aðlagist gengisbreytingum með all-
nokkurri töf og þá gjarnan aðeins að
hluta til. Af þessum sökum skiptir tíma-
setning verðkannanna talsverðu máli.
Tegund Vara Stærð Vín Prag París Düsseldorf Búdapest Dublin Róm Madríd Stokkhólmur Enschede London Reykjavík
Fatnaður (konur)
Zara gallabuxur
með grænum borða Allar 4045 4.000 4.045 4.045 3.940 4.045 4.045 2.920 4.306 4.300 4.795
Zara regnfrakki Allar 5590 5.330 5.590 5.590 5.470 5.590 5.590 4.041 5.830 6.020 5.995
Levi’s 501 Allar 6470 6.100 4.780 5.100 6.400 7.130 5.830 7.120 6.470 6.070 9.990
–10.630 – 6.150 – 8.910 – 7.290 – 11.660 – 7.690 – 12.270 – 16.990
Snyrtivörur (karlar)
Gucci Envy rakspíri 35 ml 2.510 2.640 3.210 2.350 2.600 3.320 3.490 3.000 3.160 3.119
Gucci Envy rakspíri 100 ml 3.730 3.710 4.820 5.030 3.000 3.899
Hugo Eau de Toilette úði 150 ml 3.480 5.190 3.950 4.450 4.750 3.720 3.590 4.340 4.170 4.450 5.170 4.030
Snyrtivörur (konur)
Chanel No 5 ilmvatn 35 ml 4.290 4.580 3.970 4.050 4.550 4.090 4.690 4.210 4.900
Chanel No 5 ilmvatn 50 ml 5.920 6.410 4.480 5.660 6.430 5.670 4.450 5.660 6.460 4.180 5.940 6.880
Lancome Miracle ilmvatn 50 ml 4.930 5.460 3.800 4.770 5.400 4.290 4.340 4.930 5.300 4.940 5.090 5.240
TÓNLIST
U2 How to Dismantle ..... CD 1.850 1.330 2.080 1.460 1.620 1.850 1.290 1.780 1.130 1.220 1.999
Britney Spears Greatest Hits CD 1.820 1.620 1.930 1.380 1.380 1.670 1.540 1.790 1.130 1.220 1.999
Apple iPod 20 gb 25.000 29.000 26.700 24.220 29.890 27.500 24.200 26.900 25.000 25.600 39.900
TÍMARIT Vogue (breska) 867 799 486 903 616 475 567 595 745 559 417 1.090
Cosmopolitan (breska) 587 746 526 562 681 412 607 439 404 362 1.010
FÓLKSFLUTNINGAR Rúta 486 240 970 162 720 405 730 80 800 490 1.150
(stök ferð frá Leigubíll 2.350 1.864 2.026 1.220 1.620 3.240 1.784 3.970 5.620 8.000
alþjóðaflugvelli í miðbæinn)