Fréttablaðið - 28.05.2005, Blaðsíða 31

Fréttablaðið - 28.05.2005, Blaðsíða 31
3LAUGARDAGUR 28. maí 2005 Fjármögnun í takt við þínar þarfir Suðurlandsbraut 22 108 Reykjavík Sími 540 1500 Fax 540 1505 www.lysing.is Það eina sem er erfitt við að kaupa nýjan bíl . . . H in ri k P é tu rs s o n l w w w .m m e d ia .i s /h ip . . . er að þurfa að leyfa krökkunum að keyra hann Almenn smurþjónusta Hjólbarðaþjónusta Sjálfskiptingaþjónusta Rafgeymaþjónusta Ísetning bremsuklossa Dempara – ísetningar o.fl. Vegmúli 4 • Sími 553 0440                                   Áfram veginn Einar Elí Magnússon kemst leiðar sinnar Ferðumst rólega í sumar Sumarið er yndislegur tími. Náttúran lifnar við í skamma stund og landsmenn flykkjast út á þjóðvegi í löngum halarófum til að njóta út- sýnisins og landsins okkar. Munum bara að hafa nægilegt bil í næsta bíl svo við sjáum eitthvað fleira en stuðarann á honum. Það er góð regla að geta sagt „þúsund og einn, þúsund og tveir, þúsund og þrír“ á þeim tíma sem maður er að ferðast vegalengdina á milli bílanna. Prófaði þetta um daginn í bíl sem ég var farþegi í. „Þús... nú? Jæja!“ Slíkt fólk er stundum sagt að sé stuðarahneigt – og er líklegra en ann- að fólk til að keyra aftan á. Svona erum við nú misjöfn, ha? Íslendingar eiga splunkunýjan bílaflota. Það er að segja flestir nema ég, auðvitað. Og næstum því allir eiga tjaldvagn eða fellihýsi. Tja, nema ég. Og af því að allir aðrir eru á nýjum og kraftmiklum bílum með ABS-bremsum, líknarbelgjum og stærðarinnar einbýlishúsaeftirlík- ingar í eftirdragi er ég búinn að ákveða að telja upp í að minnsta kosti „þúsund og fimm“ þegar ég ferðast á þjóðvegunum í sumar. Bara til að vera viss. Og sem ég keyri landshornanna á milli á gamla bílnum mínum með litla tjaldið mitt í skottinu ætla ég heldur ekkert að vera að flýta mér. Stilla hraðanum í hóf og vera ekkert að keppast við að taka framúr öllum. Bara til að vera viss. Og á malarvegum er ég búinn að ákveða að fara enn hægar til að vera örugglega með veggrip, slá af þegar ég mæti öðrum bílum og víkja vel. Bara til að vera viss. Og eins og alltaf verða allir í bílnum með beltin spennt. Annað kemur ekki til greina. Bara til að vera viss. Ég er nefnilega handviss um að ef ég geri þetta minnka líkurnar á því að ég lendi í umferðaróhappi til muna. Ég vil miklu frekar vera lengi á leiðinni, fastur á eftir öðrum bíl og þurfa að gista aukanótt ein- hvers staðar heldur en að enda ævina á malbikinu eða úti í skurði. Þú mátt alveg ákveða þetta líka. Bara til að vera viss. KIA Sorento. Opnunar- sýning KIA KIA umboðið opnaði nýjan sýningarsal í síðustu viku og býður gesti velkomna í dag. Opnunarsýning verður haldin hjá KIA-umboðinu í dag, laugardag, í sýningarsalnum á Laugavegi 172 en umboðið opnaði salinn í síð- ustu viku. Á sýningunni verður boðið upp á reynsluakstur, kaffi og kleinur en meðal nýjustu bíla frá KIA eru Sportage, Picanto og Sorento en hann hlaut hæstu einkunn á dög- unum í 4x4 flokki bifreiða í hinni árlegu JD Power-áreiðanleika- könnun. Hekla keypti rekstu KIA-um- boðsins fyrr á þessu ári og ætlar umboðið að auka markaðshlut- deild sína og sölu verulega á þessu ári. ■ Sjö manna fjölnotabíll frá ind- verska bílaframleiðandanum Tata er væntanlegur á Evrópumarkað eftir um það bil þrjú ár. Þetta kemur fram á heimasíðu FÍB, fib.is, en Tata er stærsti bílafram- leiðandi í Indlandi. Bíllinn var sýndur á bílasýn- ingunni í Genf í vetur og fer senn í framleiðslu. Bíllinn, sem heitir Xover, er hannaður í ítalska hönnunarfyrir- tækinu I.D.E.A Institute í Torino. Bíllinn er með sítengdu aldrifi og 4,85 metrar á lengd sem er svipað og Chrysler Voyager. Bíllinn verður líka framleiddur með dísilvél og ætti það að auka gengi hans í Evrópu. ■ Bíllinn er álíka langur og Chrysler Voyager. Indverskir bílar til Evrópu Stærsti bílaframleiðandi Indlands, Tata, mun selja indverska bíla í Evrópu eftir þrjú ár. M YN D /G ET TY
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.