Fréttablaðið - 28.05.2005, Blaðsíða 46
28. maí 2005 LAUGARDAGUR
0
20
40
60
80
100
-stærsti fjölmiðillinn
,,Gull, silfur og brons”
-stærstu fjölmiðlar landsins.
81%
91% 89%
Íslendingar 12-80 ára
Fréttablaðið er stærsti fjölmiðill landsins.
Yfir 90% landsmanna lesa blaðið yfir vikuna.
Þetta er í annað sinn á hálfu ári sem
Fréttablaðið tekur þetta sæti af
Ríkissjónvarpinu. Stöð 2 er í þriðja sæti
og helsti keppinautur Fréttablaðsins
á dagblaðamarkaði , Morgunblaðið,
er nokkuð á eftir í 5. sæti
*Uppsöfnuð dekkun vikunnar
*
STÖ
Ð
2
R
EY
K
JA
V
ÍK
P
R
A
G
R
Ó
M
M
A
D
R
ÍD
LEVI’S 501
1
6
.9
9
0
*
1
0
.6
3
0
8
.9
1
0
7.
2
9
0
R
EY
K
JA
V
ÍK
V
ÍN
P
A
R
ÍS
LO
N
D
O
N
APPLE IPOD 20 GB
3
9
.9
0
0
2
5
.0
0
0
2
6
.7
0
0
2
5
.6
0
0
R
EY
K
JA
V
ÍK
S
TO
K
K
H
Ó
LM
U
R
D
U
B
LI
N
D
Ü
S
S
E
L D
O
R
F
8
.0
0
0
3
.9
7
0
1
.6
2
0
1
.2
2
0
FRÁ FLUGVELLI Í MIÐBÆ
R
EY
K
JA
V
ÍK
M
A
D
R
ÍD
P
A
R
ÍS
E
N
S
C
H
E
D
E
4
.9
0
0
4
.0
9
0
3
.9
7
0
4
.2
1
0
CHANEL NO 5 ILMVATN
*
h
æ
st
a
v
e
rð
V erðlag í verslunum íReykjavík á hinum marg-víslegustu vörum stenst
illa samanburð við aðrar borgir í
Evrópu samkvæmt lauslegri út-
tekt Fréttablaðsins en til saman-
burðar var nýleg verðkönnun
evrópsku neytendasamtakanna,
European Consumer Center, sem
gerð var í tíu borgum álfunnar í
apríl síðastliðnum.
Í ljós kemur að í tíu tilvikum af
sextán reyndust þær vörur sem
verð var kannað á dýrastar í
Reykjavík. Þar að auki var höfuð-
borg Íslands ofarlega í hinum sex
flokkunum sem eftir stóðu. Að-
eins verð á Gucci-rakspíra hér á
landi reyndust nokkuð samkeppn-
ishæf við aðrar borgir Evrópu en
voru þó rúmlega 30 prósent hærri
en þar sem varan fékkst ódýrust.
Madrid ódýrust
Höfuðborg Spánar, Madrid, reynd-
ist að meðaltali ódýrust þeirra
borga sem könnunin tók til en þar
með er ekki sagt að allt sé ódýrara
þar. Geisladiskar voru að jafnaði
ódýrastir í Enschede í Hollandi
eða á innan við 1.200 krónur. Sama
upphæð kemur ferðamönnum frá
flugvellinum í Düsseldorf niður í
miðbæ borgarinnar með leigubíl.
Standi hugur til þess að heim-
sækja Madríd þarf aðeins að
punga út 80 krónum fyrir 25 mín-
útna strætóferð niður á miðbæjar-
svæðið sem er í miklu ósamræmi
við þær 1.150 krónur sem greiða
þarf fyrir 40 mínútna rútuferð frá
Leifsstöð til Reykjavíkur.
Vörur frá Zöru voru ódýrastar
í Madríd og voru að meðaltali þús-
und krónum ódýrari en í öðrum
borgum. Það helgast að einhverju
leyti af því að þar eru höfuðstöðv-
ar fyrirtækisins og þar opnaði
fyrsta verslun fyrirtækisins. Við-
skiptahugmynd þess fyrirtækis
er að bjóða sömu vörur alls staðar
á sama verði og er það staðreynd-
in í París, Düsseldorf, Dublin,
Róm og Vín en London og Reykja-
vík eru aðeins dýrari.
Reykjavík í sérflokki
Reykjavík er í sérflokki hvað
varðar verðlagningu á iPod frá
Apple og Levi’s gallabuxum. Mun-
aði tæpum sextán þúsund krónum
á 20 GB iPod tæki hér á landi og í
Madríd þar sem það reyndist
ódýrast. Vert er einnig að minnast
þess að iPod er almennt enn ódýr-
ari en þetta í Bandaríkjunum.
Hafa forsvarsmenn Apple á Ís-
landi gagnrýnt stjórnvöld fyrir
skattlagningu á slíkum tækjum,
sem er úr öllum takti við það sem
gerist annars staðar. Útskýrir það
að einhverju leyti hátt verð spilar-
ans hér á Íslandi.
Levi’s-gallabuxur eru einnig
dýrar hérlendis. Skiptir munurinn
þúsundum króna í flestum tilfell-
um. Aðeins í London og Stokk-
hólmi er verðlagning eitthvað í
líkingu við það sem hér gerist en
engu að síður er munurinn mikill.
Reykjavík hefur líka forystu
hvað varðar verð á tímaritum.
Kosta ensku útgáfurnar af Vogue
og Cosmo rúmlega helmingi
meira hér en í Bretlandi en hafa
ber í huga að nýlega hóf Office1
verðsamkeppni á tímaritamarkaði
hérlendis. Það fyrirtæki er ekki
með í könnun Fréttablaðsins þar
sem um undantekningu er að
ræða en ekki almenn verð á mark-
aðnum.
Í samræmi við aðrar kannanir
Stutt er síðan hagstofa Evrópu-
sambandsins kynnti ítarlegar
niðurstöður sínar á rannsóknum á
verðum á fatnaði og skóm árið
2003. Tók sú rannsókn til 25 ríkja
ESB auk þriggja væntanlegra
aðildarríkja og EFTA-ríkjanna
þriggja. Þó hartnær tvö ár séu
liðin síðan sú könnun fór fram eru
niðurstöður þeirrar könnunar
keimlíkar þessari nýju að því leyti
að verðmismunur á Íslandi og
aðildarríkjum ESB er á bilinu 30
til 50 prósent yfir línuna. Svipaðar
niðurstöður hafa fengist þegar
borin hafa verið saman verð á
matvælum hér á landi og erlendis.
Skattlagning og önnur gjald-
taka íslenskra yfirvalda er með
því hæsta sem gerist, ef ekki sú
hæsta, og fullyrða má að það út-
skýri að stórum hluta þennan
ævarandi verðmun sem virðist
vera á vörum seldum hérlendis og
annars staðar.
Önnur rök sem oft heyrast
varða þann launa- og kjaramun
sem er milli landa og eiga að út-
skýra hærri gjaldtöku og álagn-
ingu hérlendis. Það má til sanns
vegar færa að sé miðað við Rúm-
eníu, Tékkland, Ítalíu eða Spán
eru laun almennt talsvert hærri
hérlendis en það sama á ekki við
um Frakkland, Bretland, Írland,
eða Stokkhólm. Almenn launakjör
og kaupmáttur launafólks í þess-
um löndum er ekki mikið lakari en
hér gerist.
Tekið skal tillit til að ekki var
um ítarlega verðkönnun að ræða
hérlendis heldur eingöngu athug-
að verð á viðkomandi vöru í vin-
sælum verslunum. Um var að
ræða Hagkaup, Skífuna, Hygea,
Eymundsson, Mál og menningu,
Flybus, Bifreiðastöð Keflavíkur,
Apple á Íslandi, Levi’s búðina og
Zöru. Allar upphæðir eru reiknað-
ar úr evrum á gengi um hádegis-
bil miðvikudaginn 25. maí. Nokk-
ur verð voru námunduð þegar um
var að ræða krónur og aura en
hvergi munar meira en fimm
krónum til eða frá. Ekki er tekið
tillit til allra þátta eins og til að
mynda fjarlægða frá flugvöllum
að miðbæjum viðkomandi borga.
Sú vegalengd hefur eðlilega áhrif
á alla gjaldtöku.
Könnun ECC fór fram í lok
apríl 2005. albert@frettabladid.is
Reykjavík er áberandi d‡rust í tíu algengum vöru-
flokkum af sextán samanbori› vi› ver›lag í tíu
ö›rum borgum Evrópu. Ver›mismunur um og yfir 30
prósent er algengur.
Höfu›borgin stenst
illa samanbur›