Fréttablaðið - 28.05.2005, Blaðsíða 70
54 28. maí 2005 LAUGARDAGUR
Lárétt:
1 nabbi, 5 fugl, 6 núll og fimmtíu, 7
íþróttafélag, 8 gerast, 9 hávaði, 10 verk-
færi, 12 fimmtíu og tveir, 13 kassi, 15
tveir eins, 16 skelin, 18 liggja í hnipri.
Lóðrétt:
1 rægir, 2 gruna, 3 tónn, 4 ìskrifî, 6
þungu álögurnar, 8 herbergi, 11 land, 14
sagði upp, 17 á stundinni.
Lausn:
Lárétt: 1bóla,5ara,6ol,7ka,8ske,9
hark,10al,12lii,13lár, 15ðð,16aðan,
18kúra.
Lóðrétt: 1baktalar, 2óra,3la,4blek-
iðja,6okrið,8sal,11láð,14rak,17nú.
1
5 6
87
9
12
15
10
13
16 17
11
14
18
2 3 4
Valdís Gunnarsdóttir
Sunnudagsmorgna 9-12
Valdís snýr aftur
Hin portúgalska söngkona Mariza
hélt tónleika hér á landi í gær og
mun halda aðra í kvöld á Broad-
way. Hún gaf sér tíma fyrr í vik-
unni til að skella sér í miðbæ
Reykjavíkur og kíkti meðal ann-
ars í verslunina Spaksmannsspjar-
ir sem selur íslenska tískuhönnun.
„Mariza var rosalega hrifin af
mörgu og keypti tvo kjóla, eitt
pils, korselett og ermar. Hún verð-
ur líklega í þessum dressum á tón-
leikunum hérna um helgina. Fötin
okkar virtust smellpassa svona
við hennar stíl og hún var yfir sig
ánægð með kaupin,“ segir Þórdís
Ósk Sandholt afgreiðsludama í
búðinni.
Aðspurð segir Þórdís að útlend-
ingar séu yfirleitt mjög hrifnir af
fötunum í Spaksmannsspjörum og
fleiri stórstjörnur hafi verslað hjá
þeim. „Pink kom hérna í fyrra-
sumar og keypti sér talsvert af
fötum og svo hafa þær Teri
Hatcher, Drew Barrymore og
Uma Thurman einnig verslað hjá
okkur en Uma og Drew pöntuðu þó
af netinu,“ segir Þórdís og er
ánægð með að Mariza hafi hrifist
svo af hönnun þeirra í Spaks-
mannsspjörum.
„Ég lét hana fá lista yfir allar
helstu hönnunarbúðirnar í
Reykjavík og hún varð alveg heill-
uð af íslenskri hönnun,“ segir
Guðrún Kristjánsdóttir kynning-
arstjóri listahátíðar. „Hún sagðist
hafa fundið það strax á loftinu að
það væri eitthvað hér sem henni
myndi líka vel. Hún sagði við mig
að þetta væri ekki „Iceland“ held-
ur „Beautyland“ og hreifst af birt-
unni og litunum í umhverfinu.
Hún er rosalega klár og auðmjúk
manneskja, ekta stórstjarna,“ seg-
ir Guðrún en uppselt var á tón-
leika Marizu í gær og örfáir miðar
eftir á tónleikana hennar í kvöld.
Mariza fer svo frá Íslandi til
Stokkhólms, þaðan til Króatíu og
þann 5. júní kemur hún fram í
Róm og er þar aðalnúmerið á
minningarhátíð um Jóhannes Pál
II páfa. hilda@frettabladid.is
Ekki Ísland heldur Frí›leiksland
MARIZA Þessi stórglæsilega söngkona dvelur hérlendis vegna
Listahátíðar og hefur svo sannarlega fallið fyrir Íslandi sem og ís-
lenskri hönnun. Hún gerði stórinnkaup í Spaksmannsspjörum og
sagði að landið ætti að heita „Beautyland“ en ekki „Iceland“.
[ VEISTU SVARIÐ ]
Svör við spurningum á bls. 8
1
3
2
Hann hljóðar upp á þriggja ára
fangelsi.
FH-ingar, eitt mark.
Múlin Rús.
Fjögurra ára samningur milli Dis-
ney-samsteypunnar og Latabæjar
um sýningarrétt á Latabæjarþátt-
unum í Frakklandi, á Ítalíu og
Spáni var undirritaður í gær. Ver-
ið er að talsetja þættina fyrir
hvert land en sýningar munu hefj-
ast í júní á Spáni og með haustinu
í hinum löndunum tveimur. Að-
stoðarforstjóri Latabæjar, Ágúst
F. Ingason, segir að samningurinn
sé mjög góður fyrir fyrirtækið, en
virði samningsins er ekki gefið
upp. Samkvæmt Olivier Bré-
mond sem hefur umgöngu um
sölu sýningarréttarins og tal-
setningu þáttanna á megin-
landi Evrópu og í Miðaust-
urlöndum endurspeglar
samningurinn við Disney
sérstaka stöðu Latabæjar.
„Þetta er algjörlega ein-
stakt á markaðnum
fyrir barnaefni. Við
megum ekki tala um
verðið en þetta er há
tala, hærri en
vanalega á barna-
efni fyrir þennan
aldurshóp,“ segir
Brémond.
Samkeppnisaðil-
arnir Nickelodeon
og Disney hafa bitist
um sýningarréttinn
sem er til merkis
um vinsældir þátt-
anna. „Það eru
mjög stór fyrirtæki að berjast um
Latabæ, það er mjög gott fyrir
merkið,“ segir Brémond. Sérstaða
Latabæjar felst í því að þátturinn
sameinar fræðslu og hátt skemmt-
anagildi á sjaldgæfan hátt, að sögn
Brémonds. „Þetta er lykillinn í
hugmynd Magnúsar, sem er al-
gjörlega einstök. Latabæjarmerk-
ið er augljóslega mjög góð eign.“
Íslenskur uppruni þáttanna stuðl-
ar einnig að hærra verði á sýning-
arréttinum samkvæmt Brémond
því evrópsku stöðvarnar greiða
flestar 30 prósentum hærra
verð fyrir evrópska framleiðslu
en þætti framleidda í
Bandaríkjunum.
E v r ó p u ú t r á s
Latabæjar kemur í
kjölfar mikillar
velgengni í Suður-
og Norður-Ameríku.
Lazytown, eins og
hann heitir á ensku,
hefur hlotið góðar
viðtökur í Bandaríkj-
unum, en þættirnir
voru frumsýndir
þar í ágúst síðast-
liðnum. Nú hefur
Nickelodeon Jr. sjón-
varpsstöðin sem sýnir
efnið ákveðið að nota
persónur Latabæjar á
milli allra þátta á
stöðinni og var það
efni tekið upp á síð-
ustu vikum í Garðabænum. Í
Kanada komst þátturinn á lista
yfir vinsælasta barnaefnið eftir
mánaðarsýningu og í Suður-Amer-
íku hefur gengi Latabæjar einnig
verið gott. Argentínsk börn virð-
ast hafa svipaðan smekk og ís-
lensk börn því að þar varð þáttur-
inn þriðja vinsælasta barnaefnið
eftir átta daga sýningar. Í Evrópu
hafa samningar verið gerðir í
Þýskalandi, Noregi og á Íslandi.
Sýningar munu hefjast á RÚV í
haust en talsetning þáttanna
stendur nú yfir.
Magnús Scheving var ekki við-
staddur undirskrift samningsins í
gær en hann er staddur í Finn-
landi að ganga frá sölu á sýningar-
réttinum þar í landi. „Hann er
potturinn og pannan,“ segir Bré-
mond, en velgengni Latabæjar
hefur ekki haft áhrif á stjórn
Magnúsar á þáttunum. ■
SAMIÐ UM SÝNINGARRÉTT Á LATABÆ Í SUÐUR-EVRÓPU:
Disney fellur fyrir Latabæ
Dýramunstrin koma heit inn núna og hönnuðir keppast við aðskreyta fatnað með dýramyndum. Hvort sem það eru kattar-
myndir eins og á myndinni hér til hliðar, hundamyndir, fugla-
myndir, froskamyndir eða fallegar pöddumyndir. Það skiptir ekki
máli, svo lengi sem það er eitthvað dýrslegt við fatnaðinn.
Bakpokaferðalag. Það er ekkert jafnskemmtilegt og að skrölta í lestum á Interraili, hjóla á milli
landa eða jafnvel ferðast fótgangandi. Villast í stórborgum og finna
litla gullmola inni á milli, borgir og bæir sem enginn annar veit af
nema þú. Fyrir þá sem eru of gamlir til að spranga um með þung-
an poka er upplagt að leigja sér bíl og keyra á áhugaverða staði.
Grænmetisfæði. Það er fátt heit-ara nú til dags en alls konar
hollustufæði. Hummus, tófú,
brokkolí og gulrætur. Stjörnurnar í Hollywood keppast
við að skipa sig í hóp grænmetisætna. Það er þó
óþarfi að neita sér um kjöt til þess að njóta góðs
grænmetisfæðis af og til. Skellið ykkur á einn af græn-
metis-veitingastöðunum hér í bæ og fáið ykkur holla
og góða máltíð. Það er bókað að ykkur líður vel á eftir!
Kokteilsósulitaðir bílar. Nei og aftur nei, þessi kok-teilsósu-andlitslitur á ekki heima á litaspjöldum bíla-
framleiðenda. Hvað er fólk að hugsa? Það er ekkert jafn
hrikalegt og að sjá einn af þessum ógeðslegu bílum ak-
andi um bæinn í leit að næsta McDonalds-stað. Liturinn
á bílnum manns á að vera í stíl við persónuleikann en
ekki í stíl við sósuna sem fylgir frönskunum.
Allt of stutt pils. Pils sem eru svo stutt að ekki er hægt að sitjaeðlilegur í grasinu á Austurvelli án þess að rassaskoran eða
rasskinnarnar gægist út eru engan veginn málið. Pilsin eiga að
vera hnésíð eða jafnvel síðari í dag, hippaleg og efnismikil.
Skræpótt eða í fallegum lit. Klámmyndaleikkonulúkkið er ekki
inni. Og engar andlitslitaðar sokkabuxur við takk!
Að grilla sig á sólarströnd. Hver er ekki kominn með nóg af þessum fjöldasteik-ingum á sólarströndum? Afhverju að borga tugi þúsunda fyrir að liggja á sömu
ströndinni í marga daga og steikja á sér húðina? Farið frekar í ferð sem gefur ykkur
lífsreynslu og fullt af skemmtilegum minningum. Ef það eina
sem fólk vill er að verða hörundsdökkt í nokkra mánuði þá er
mun vænlegri leið að fara bara í ljósatíma eða bera á sig
brúnkukrem og eyða svo peningunum í alvöruferðalag.
INNI ÚTI
...fær ljósmyndarinn Spessi fyrir
heimildarmynd sína, 300 harm-
onikkur. Myndin fjallar um lands-
mót harmonikkuleikara.
HRÓSIÐ
UNDIRSKRIFT SAMNINGSINS Olivier Brémond og Ágúst Ingason skrifuðu undir samn-
inginn við Disney í gær.
PERSÓNUR LATABÆJAR Gam-
an verður að sjá hvernig spænsk,
ítölsk og frönsk börn taka Latabæ.