Fréttablaðið - 28.05.2005, Qupperneq 10
10 28. maí 2005 LAUGARDAGUR
Írönum boðið til aðildarviðræðna við Alþjóðaviðskiptastofnunina:
Samkomulagi› flegar fari› a› bera ávöxt
GENF, AP Aðeins degi eftir að sam-
komulag náðist við Írana um kjarn-
orkumál þeirra ákvað Alþjóðavið-
skiptastofnunin, WTO, að hefja á
ný viðræður við þá um aðild að
stofnuninni. Formlegar viðræður
við Írana áttu sér síðast stað árið
1996 en þeim var þá hætt vegna
andstöðu Bandaríkjamanna.
Evrópusambandið hafði lýst
yfir stuðningi við inngöngu Írana
ef þeir létu af áformum sínum um
auðgun úrans. Jafnframt hefur
þeim verið sagt að þeir geti vænst
efnahagslegs og tæknilegs sam-
starfs. Bandaríkin höfðu í mars
síðastliðnum lýst sig tilbúin til að
láta af andstöðunni við aðild Írans
uppfylltu þeir sett skilyrði.
Utanríkisráðherrar Bretlands,
Frakklands og Þýskalands, ásamt
utanríkismálastjóra ESB, funduðu
í þrjár klukkustundir með samn-
inganefnd Írana, og munu þar
hafa gefið í skyn að alþjóðlegum
refsiaðgerðum yrði beitt héldu
þeir áformum sínum til streitu.
Hasan Rowhani, formaður samn-
inganefndar Írana, sagði Írana
hafa staðfest fyrri skuldbindingar
um að þróa ekki kjarnorkuvopn.
Kálið er þó ekki sopið þótt í
ausuna sé komið. Íranar hafa
þrátt fyrir samkomulagið sagst
áskilja sér rétt til að hefja auðgun
úrans á nýjan leik sýnist þeim
sem svo. ■
Mesta síldin í flrjátíu ár
Norsk-íslenska síldin hefur ekki fundist í jafnmiklu magni innan íslenskrar
lögsögu sí›an síldarævint‡rinu lauk. Fri›rik Jón Arngrímsson segir fletta hljóta
a› styrkja samningsstö›u Íslands flegar vi›ræ›um ver›ur áfram haldi›.
NORSK-ÍSLENSKA SÍLDIN Það eru
miklar gleðifréttir að norsk-ís-
lenska síldin finnist aftur innan
íslenskrar lögsögu að sögn Frið-
riks J. Arngrímssonar, fram-
kvæmdastjóra
Landssambands
íslenskra út-
vegsmanna. Sjó-
menn segja
hennar ekki hafa
orðið vart í jafn
miklu magni í
þrjátíu ár.
„Ef síldin fer
að halda sig inn-
an lögsögunnar skiptir það sköp-
um,“ segir Friðrik J. „Það er
grundvallaratriði er kemur að
samningsstöðu okkar og gerir síld-
ina líka verðmætari. Þá getum við
unnið hana í landi í stað þess að
bræða hana úti á sjó eins og við
höfum verið að gera.“
Norðmenn sögðu fyrir tveimur
árum einhliða upp samningi um
skiptingu síldarinnar og fóru fram
á aukinn hlut. Aðild að samningn-
um áttu strandríkin svokölluðu, Ís-
land, Færeyjar, Rússland og Nor-
egur auk Evrópusambandsins.
Hlutur Norðmanna samkvæmt
samningnum frá 1996 er 57 prósent
en eftir að ekki náðust samningar
juku þeir veiði sína í 63 prósent afl-
ans. Hlutur Íslendinga var 15,54
prósent.
„Við hefðum sætt okkur við
samninginn frá 1996. En fyrst
Norðmenn tóku þetta í sínar hend-
ur urðum við náttúrulega að gera
það líka. Því jukum við veiðina til
samræmis við Norðmenn.“
Friðrik segir stöðuna í viðræð-
um slæma og býst ekki við að sam-
komulag náist á þessu ári.
Aðspurður hvort nýtt síldaræv-
intýri sé í uppsiglingu segir Frið-
rik: „Það er of snemmt að segja til
um það. Hins vegar er að koma
fram mjög sterkur árgangur sem
við bindum miklar vonir við. Við
erum í það minnsta full bjartsýni.“
Gullbergið kom í gærdag inn til
Neskaupstaðar með um 200 tonn af
mjög vænni síld sem fékkst í nót
austur af Dalatanga en til þessa
hefur síldin nær eingöngu veiðst í
troll.
Hákon Viðarsson hjá Síldar-
vinnslunni hf. segir síldina einstak-
lega góða og átulausa og Gullberg-
ið einstaklega vel búið til að halda
henni kældri, enda um afbragðs
hráefni að ræða.
jsk@frettabladid.is
Slysavarnarfélagið Landsbjörg endurnýjar flotann:
Kaupa nánast ósökkvandi skip
LANDSBJÖRG Slysavarnarfélagið
Landbjörg ætlar nú að ráðast í að
endurnýja þrjú skip í fjórtán
skipa flota sínum. Skipin sem um
ræðir eru þrjú Arun Class-björg-
unarskip frá Englandi sem eru
mun hraðskreiðari og öruggari en
skipin sem þau leysa af hólmi.
Þetta eru 43 brúttórúmlesta sér-
hönnuð björgunarskip sem geta at-
hafnað sig í mjög vondum veðrum.
Þau eru smíðuð úr plasti og búin
fullkomnum fjarskipta- og sigl-
ingatækjum sem og afar góðum
sjúkra- og björgunarbúnaði.
Ganghraði skipanna er 18 sjó-
mílur á klukkustund og á mynd-
inni má einmitt sjá slíkt skip á
fullri ferð.
Skipin eru þannig hönnuð að
þau eru því sem næst ósökkvandi.
Hvolfi skipinu þá snýr það sér
sjálkrafa á réttan kjöl aftur.
Auðvitað kostar það skilding-
inn að festa kaup á slíkum tækjum
og því leitar Slysavarnarfélagið
Landsbjörg til almennings um að-
stoð. Gíróseðlar verða sendir inn
á heimili á næstu dögum og al-
menningur beðinn um aðstoð við
að „loka hringnum“ eins og átakið
er kallað.
- oá
SÆLAR SÍLDARSTÚLKUR Það var nóg að gera hjá fiskvinnslufólki í Neskaupstað enda ekki verið meiri síld á Íslandsmiðum í þrjátíu ár.
FRIÐRIK J.
ARNGRÍMSSON
SAMKOMULAGI NÁÐ Jack Straw, utanríkisráðherra Bretlands, og Hassan Rowhani, aðal-
samningamaður Írana, kynntu samkomulagið í Genf í fyrradag. Þótt Íranar hafi sýnt meiri
sveigjanleika um kjarnorkumálin en áður áskilja þeir sér samt rétt til að hefja tilraunir sín-
ar á ný.
ARUN CLASS BJÖRGUNARSKIP Slysavarnar-
félagið Landsbjörg biðlar nú til lands-
manna um aðstoð vegna kaupa á þremur
nýjum björgunarskipum af fullkomnustu
gerð.