Fréttablaðið - 28.05.2005, Side 24

Fréttablaðið - 28.05.2005, Side 24
„Áður en hægt er að taka afstöðu til álvers í Helguvík þarf fyrst að kanna arðsemi jafnt álversins og þeirra jarðvarmavirkjana sem því tengjast. Jafnframt finnst mér ljóst að fara þarf yfir umhverfisþætti málsins,“ segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, vegna þeirrar umræðu sem verið hefur um fyrirhugað álver í Helguvík og að- komu Orkuveitu Reykjavíkur að orkusölu til þess. Ingibjörg telur ljóst að mikill kaupendamarkaður sé á raforku um þessar mundir. „Orkuveitan ætti að hugsa sig vel um þar sem ýmsir kost- ir eru í boði og margir virðast hafa áhuga. Þeir sem eru á orkuveitu- svæði Orkuveitu Reykjavíkur ættu að njóta góðs af því,“ segir Ingibjörg Sólrún. Hún segir einnig að varhuga- vert geti verið að einblína of mikið á stóriðju í atvinnuuppbyggingu. Hún megi ekki yfirskyggja allar aðrar at- vinnugreinar. Af fréttum síðustu daga má ljóst vera að flokkarnir sem standa að Reykjavíkurlistanum hafa mismun- andi sýn á álversuppbyggingu, svo sem í Helguvík. Framsókn er henni hlynnt, Vinstri-grænir andvígir en Samfylkingin vill fara sér hægt. - hb 24 28. maí 2005 LAUGARDAGUR Hveitibrauðsdögum nýrr- ar forystu Samfylkingar- innar lauk á fyrsta degi eftir tímamótalandsfund um síðustu helgi. Trú- verðugleikinn er á vogar- skálum þar sem Ágúst Ólafur Ágústsson verst ásökunum um að hafa beitt sviksamlegum vinnubrögðum í kjöri um embætti varaformanns. Nýr formaður Samfylkingarinnar hlaut glæsta kosningu á nýafstöðn- um landsfundi. Flokksmönnum hef- ur fjölgað um sjö þúsund frá ára- mótum. Skriður er á málefnavinnu hjá jafnaðarmannaflokki sem gerir tilkall til valda í næstu þingkosning- um. Þetta er flokkur sem mælist varla lengur undir þrjátíu prósenta fylgi í skoðanakönnunum. Styrkur íslenskra jafnaðarmanna er meiri nú en nokkru sinni fyrr í 90 ára sögu íslenska flokkakerfisins. Sérfræð- ingar í almannatengslum og ímynd- arfræðum eru sjálfsagt sammála um að sú mynd sem dregin var upp af Samfylkingunni í tengslum við landsfundinn hafi verið glæst og vel heppnuð. Og þannig fái aukið vægi orð Ingibjargar Sólrúnar Gísla- dóttur flokksformanns um að breyt- ingar þoli enga bið og flokkurinn ætli alla leið. Maðkur í mysu? En ekki var búið að taka niður fánaborgirnar við Egilshöll þegar vandræðin hófust. Maðkur í mysu við kjör á varaformanni Samfylk- ingarinnar. Úrsagnir úr flokknum. Óánægja og brigslyrði. Varafor- maðurinn ungi tekinn á beinið í DV fyrir meint kosningasvik. Keypti hann sér sigur með því að smala ungliðum á landsfundarstað í Egils- höll rétt á meðan kosningin fór fram? Greiddi hann fyrir með kóki og pítsum, spyr blaðið. Kjörstjórn landsfundar Samfylk- ingarinnar sá sig knúna til þess að lýsa yfir sakleysi varaformannsins í yfirlýsingu sem hún sendi frá sér fyrir helgina. Allt hefði verið lög- legt og rétt að kosningum staðið. Ágúst Ólafur varaformaður birtist í viðtölum þar sem hann sór af sér sviksemi og taldi ásakanirnar fá- ránlegar. Aðferðir ungliða skipta ekki sköp- um Hefur ekki verið sagt satt um varaformannskjör Samfylkingar- innar? Skyldi Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hafa fagnað nýkjörnum varaformanni á sviðinu í Egilshöll, faðmað hann að sér en klipið létt í handlegginn á honum svo enginn sá og sagt: Svona gerir maður ekki. Orðrétt sagði Ingibjörg Sólrún við Fréttablaðið 23. maí síðastliðinn: „Ágúst Ólafur Ágústsson stimplar sig mjög sterkt inn í pólítíkina með framboði sínu til varaformanns- embættisins. Hann fékk afgerandi stuðning og það skiptir máli. Mér sýnist munurinn hafa verið það mikill á honum og Lúðvík Bergvins- syni að aðferðir stuðningsmanna Ágústs hafi ekki skipt sköpum.“ Tveimur dögum áður sagði Ágúst Ólafur þegar Fréttablaðið spurði hann um sérstakan stuðning ungliða við framboð hans: „Ég hef ekki hugmynd um hvort svo sé. Ég færi að sjálfsögðu ekki í þennan slag ef ég hefði aðeins stuðning frá ungliðunum.“ Hvaðan kemur óánægjan? Því hefur ekki verið mótmælt að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hallaði sér í aðdraganda landsfundar Sam- fylkingarinnar fremur að Lúðvík Bergvinssyni sem varaformanns- efni en Ágústi Ólafi Ágústssyni, sem lengstum hafði verið talinn stuðningsmaður Össurar Skarphéð- inssonar. Hún kaus hins vegar að hafa þann stuðning ekki opinberan né afgerandi á landsfundinum eða í aðdraganda hans. Það þarf ekki að koma á óvart og mætti líta á sem stjórnkænsku. Á það er einnig að líta að Ágúst Ólafur lýsti yfir hlut- leysi sínu gagnvart formannskjör- inu. Það gerði Lúðvík Bergvinsson einnig. Hann kvaðst hafa unnið náið með Össuri fráfarandi formanni undanfarin fimm ár og sæi ekkert því til fyrirstöðu að vinna einnig með Ingibjörgu Sólrúnu næði hún kjöri. Með gildum rökum mætti halda fram að eftirmál vegna varafor- mannskjörs Samfylkingarinnar séu ekki runnin undan rifjum stuðn- ingsmanna Össurar Skarphéðins- sonar. Áttu þeir ekki þvert á móti að gleðjast yfir yfir kjöri Ágústs sem hafði verið dreginn í dilk með þeim? Varla kemur óánægjan frá hörð- um stuðningsmönnum nýkjörins formanns. Yfirlýsingar Ingibjargar Sólrúnar um varaformannskjörið benda fremur til þess að hún ætli sér að vinna að friði um varafor- manninn, en hefur þó sagst ætla að fara yfir málið. Leiði frekari skoðun eitthvað nýtt í ljós má búast við að málið vandist og kjörstjórn lands- fundarins þurfi að draga í land. Ólíklegt er að slíkt gerist. Lögmætar en óvandaðar aðferðir? Varaformannskjör fór fram í mesta lagi tveimur klukkustundum eftir að úrslit voru tilkynnt í lang- vinnum formannslag Samfylkingar- innar. Þátttakan í varaformanns- kjörinu var yfir 90 próent og getur varla talist óeðlileg í ljósi þess að landsfundarsalurinn var enn þétt- skipaður eftir að úrslit í formanns- slagnum voru kunngerð. Því verður einnig að halda til haga að einstökum aðildarfélögum er heimilt að greiða landsfundar- gjald fyrir fulltrúa sína og styrkja þá með þeim hætti til fundarsetu. Jafnvel þótt sannaðist að ungir jafn- aðarmenn hefðu greitt gjöld full- trúa sinna í ríkum mæli að þessu sinni telst það engu að síður lög- mætt. Fyrir hverja tíu í einstökum að- ildarfélögum Samfylkingarinnar hefur einn rétt til setu á landsfundi. Hafi félögum í Samfylkingunni fjölgað um sex til sjö þúsund frá áramótum var við því að búast að fullgildum fulltrúum á landsfundi fjölgaði um mörg hundruð. Vel má vera að þar hafi ungliðar verið áberandi og einhvern tíma hefði það þótt góðs viti í stjórnmálahreyfingu að fá ungt fólk til liðs við mál- staðinn. Áfallahjálp Í fræðum um almannatengsl og ímyndarsköpun eru ævinlega ítar- legir kaflar um kerfisbundin við- brögð gegn áföllum. Einskonar áfallastjórnun. Þessi fræði ganga út á það að draga sem mest úr afleið- ingum af óhöppum, hneykslum og ýmsum vanda sem skaðað getur ímynd og þar með markaðshags- muni fyrirtækja eða félaga. Þetta getur sannarlega átt við um stjórn- málaflokka og hagsmunasamtök. Ein þumalfingursreglan í þess- um fræðum er að segja allt af létta. Segja satt um ástand mála og bæta trúverðugleikann með þeim hætti jafnvel þó svo að tímabundinn skaði sé óumflýjanlegur. Eiga beinlínis frumkvæði að því að vinda ofan af málinu og með vissum hætti að slá vopnin úr höndum fjölmiðla sem heimta breiðfyrirsagnir. Spurningin er hvort Samfylkingin og ráðgjafar hennar viti af þessari þumalfing- ursreglu. stjornmal@frettabladid.is Formaður Samfylkingar um Helguvík: Kanna flarf ar›semi og umhverfisáhrif Fallvölt ímynd í stjórnmálum nánar á visir.is                             !  "#$%&'' ()(*+,- . !  UMMÆLI VIKUNNAR,, U MÆLI VIKUN AR ,, „Kannski er þessi framtíðarsýn til vitnis um það að sjálf- stæðismenn telji að næstu borgarstjórnarkosningar séu fyrirfram tapaðar.“ Alfreð Þorsteinsson, R-listanum og formaður borgarráðs, um hugmyndir borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins um 30 þúsund manna byggð út með ströndum og í eyjum á sundunum við Reykjavík. Mörgum virðist sem umræðan um Vatnsmýrina og Reykja- víkurflugvöll sé í hörðum hnút. Rétt eins og enginn vilji taka af skarið og hrófli helst ekki við málinu nema með spýtu. Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins kynnti fyrir helgina nýstárlegar hugmyndir um allt að 30 þúsund manna byggð með norðanverðri strandlengju borgarinnar og í eyjunum við sundin. Töldu þetta síst dýrari kost fyrir húsbyggjendur en að brjóta land uppi við Úlfarsfell undir lóðir. Eða annars staðar til fjalla eins og borgarstjórnar- minnihlutinn orðar það. Sjalfstæðismenn höfðu á orði að hver fermetri uppfyllingar þyrfti ekki að kosta meira en sex þúsund krónur. Gróflega. Þá kostar 300 fermetra lóð átján hundruð þúsund krónur á uppfyllingu út í Álfsey. Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri segir þetta hins vegar óraunhæft og allt of dýrt. Stokkhólmur, hin fagra höfuðborg Svía, er reist á hólmum. Brýr og göng tengja eyjarnar og hólmana rétt eins og gert er ráð fyrir í hugmyndum sjálf- stæðismanna. Þetta er allt saman hægt og mikilsvert að setja fram hugmynd- ir. Meira að segja Alfreð Þorsteinsson, formaður borgarráðs, sagði hugmynd- irnar forvitnilegar og athyglisverðar. En bætti við að óbætt hjá garði stæði Vatnsmýrin með rými fyrir 25 þúsund íbúa. Á upplýsandi korti borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins gefur að líta Sundabraut og byggð á eyjunum, brýr og göng. En í Vatnsmýrinni er ekkert. Ekki merktur inn flugvöllur og ekki byggð. Bara eitthvað sem líkist túnum eða kornökrum. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson sagði við Fréttablaðið á föstudag, að í fyllingu tímans yrði að bera framtíð Reykjavíkurflugvallar undir kjósendur með bindandi atkvæðagreiðslu. En fyrst yrði að gaumgæfa alla kosti. Allir vita að flugvöllurinn fer úr Vatnsmýrinni. Af hverju vilja stjórnmála- flokkarnir ekki láta reyna á fylgið við þá hugmynd í borgarstjórnarkosningun- um að ári liðnu? Vatnsm‡rin afskipt VIKA Í PÓLITÍK JÓHANN HAUKSSON INGIBJÖRG SÓLRÚN GÍSLADÓTTIR Stóriðja má ekki yfirskyggja aðrar atvinnugreinar. FORMAÐUR OG VARAFORMAÐUR FAGNA KJÖRI Á LANDSFUNDI Viku eftir tíma- mótalandsfund og glæst fyrirheit í farteskinu glímir nýkjörin forysta Samfylkingarinnar við tortryggni fjölmiðla og jafnvel eigin flokksmanna um kjör varaformanns. JÓHANN HAUKSSON BLAÐAMAÐUR FRÉTTASKÝRING SAMFYLKINGIN EFTIR LANDSFUND VATNSMÝRIN FYRIR FRAMKVÆMDIR VIÐ HRINGBRAUT Stjórnmálaöflin virðast hikandi við að taka af skarið um hver skuli vera framtíð Vatnsmýrarinnar og hvað verði um flugvöllinn sem þar er.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.