Fréttablaðið - 28.05.2005, Side 26
Garðyrkjufélag Íslands mun í dag
halda upp á það að 120 ár eru síðan
Georg Schierbeck, þáverandi
landlæknir, stofnaði félagið. „Í
upphafi var félagið stofnað til þess
að efla garðyrkju sem tengdist
heilsueflingu, það er að auka rækt
heilnæmra matjurta. Félagið held-
ur að hluta til ennþá í þessa stoð,
þó félagið hafi vitanlega breyst
mikið,“ segir Jóhanna Borghildur
Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri
Garðyrkjufélags Íslands.
Félagið styrkti einn félags-
mann, Einar Helgason, til náms í
Danmörku og þá hófst fyrir al-
vöru þróun garðyrkjustarfsemi
innan félagsins. „Einar var með
tilraunir á því hvaða tegundir
gætu þrifist hér á landi og var
driffjöður í starfi félagsins um
áratugaskeið,“ segir Jóhanna.
Vinsælasti viðburður í starfi
Garðyrkjufélagins er árleg
garðaskoðun. Þá opna félags-
menn garðana sína, sem margir
hverjir eru farnir að minna á
garða erlendis. „Við finnum fyrir
því að sumurin eru að verða
betri, hér eru farnar að þrífast
ýmsar tegundir sem ekki hafa
verið hér áður, til dæmis vitum
við af því að eplatré eru komin í
garða, og með stórum og góðum
eplum,“ segir Jóhanna.
Starfsemi félagsins hefur ver-
ið virkust hér á höfuðborgar-
svæðinu, þar sem klúbbarnir þrír
innan félagsins, sumarhúsa-
klúbbur, rósaklúbbur og mat-
jurtaklúbbur, eru mest virkir. Það
er þó vilji félagsins að efla starf-
semina út á landi. „Það eru fjórar
landshlutadeildir innan félagsins,
í Árnessýslu, Skagafirði, Egils-
stöðum og Húsavík, og það er von
okkar að hægt verði að virkja
þær enn frekar og fjölga þeim
einnig,“ segir Jóhanna.
Skemmtunin í dag verður
fjölbreytt og ætlar Magga Stína
að spila á blómaballi á stéttinni
fyrir utan Fjölskyldu- og hús-
dýragarðurinn þegar líða tekur
á. ■
26 28. maí 2005 LAUGARDAGUR
ALFRED ADLER (1870-1937)
lést þennan dag.
TÍMAMÓT: GARÐYRKJUFÉLAG ÍSLANDS 120 ÁRA
Eplatré farin að þrífast hér
„Það er alltaf auðveldara að berjast fyrir
hugsjónum en að lifa eftir þeim.“
Austurríski læknirinn Alfred Adler stofnaði sálfræðiskóla sem miðaður
var við þarfir einstaklinga. Hann lærði við háskólann í Vínarborg og
lagði mikið af mörkum til sálfræðinnar. Frægastur er hann þó fyrir að
setja fram kenningar sem studdust ekki við hugmyndir Freuds.
timamot@frettabladid.is
JÓHANNA Í GRASAGARÐINUM Grasagarðurinn er stolt garðyrkjuáhugamanna í höfuð-
borginni. Þar verður mikil afmælishátíð í dag.
Þennan dag árið 1937 var Golden
Gate-brúin opnuð fyrir umferð.
Hún var á þeim tíma ein stærsta
brú veraldar.
Brúin var hönnuð af Clifford Paine,
sem hafði mikið fyrir því að sann-
færa yfirvöld um að mögulegt væri
að byggja brúna. Paine hafði lokið
við hönnunarhlutann árið 1930 en
þurfti að eyða næstu þremur árum
í að sannfæra stjórnvöld um ágæti
brúarinnar.
Útlit hennar er undir miklum áhrif-
um af verkum arkitektsins Irvings
Morrow. Hann hafði þó ekki fram
að þessu unnið við að hanna brýr,
en þótti framsækinn og hug-
myndaríkur með eindæmum.
Hann lagði til að hafa brúna app-
elsínugula að lit, til þess að undir-
strika framfarakraft Bandaríkjanna,
og á það féllst Clifford Paine.
Brúin var dýr, kostaði samfélagið
um 35 milljónir dollara á þeim
tíma. Það þótti gríðarlega hátt verð
og varð brúin umdeild fyrir vikið.
Í brúna fór mikið af vírum, um 50
þúsund kílómetrar. Turnar brúar-
innar eru miklar byggingar, ná í
rúmlega 250 metra hæð, en brú-
arstoðirnar sem eru undir sjávar-
máli eru þó miklu lengri..
Þótt kostnaður vegna brúarsmíð-
innar hafi verið íþyngjandi fyrir
bandarískt samfélag á sínum tíma
hefur brúin færst nær hjörtum
Bandaríkjamanna og er í dag eitt
helsta tákn landsins.
GOLDEN GATE
ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR
1800 Konungsúrskurður er gef-
inn út um að gera skuli
vandlegar strandmælingar
á öllu landinu. Mælingarn-
ar voru mikið verk og lauk
ekki fyrr en 1826.
1959 Tveir apar verða fyrstu líf-
verurnar til þess að lifa af
ferð út í geiminn.
1983 Eldgos hefst í Grímsvötn-
um í Vatnajökli. Það stóð í
fáa daga.
1991 Addis Ababa, höfuðborg
Eþíópíu, fellur í hendurnar
á uppreisnarmönnum. Þar
með lýkur formlega
sautján ára marxískri stjórn
í landinu.
1998 Pakistanar hefja tilraunir
með kjarnorkusprengjur.
Vígbúnaðarkapphlaup milli
Pakistans og Indlands er í
algleymingi.
Golden Gate-brúin opnu›
Tilkynningar um merkisatbur›i, stórafmæli,
andlát og jar›arfarir í smáletursdálkinn má
senda á netfangi› timamot@frettabladid.is.
Augl‡singar á a› senda á
auglysingar@frettabladid.is e›a hringja í
síma 550 5000.
Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir,
Jakobína H. Schröder
til heimilis að Fannaborg 8,
áður Birkihlíð við Nýbýlaveg, Kópavogi,
andaðist á Landspítalanum við Hringbraut miðvikudaginn 25. maí.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Erna María Jóhannsdóttir, Ásvaldur Andrésson,
Baldur Schröder, Naomi Herlita
og aðrir aðstandendur.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
Steinunn Þ. O. Nielsen
Seljahlíð, Reykjavík,
lést miðvikudaginn 25. maí.
Sigríður C. Nielsen,
Margrét St. Nielsen, Sveinn Sveinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir
og afi,
Sigurjón G. Sigurjónsson
Birkigrund 71, Kópavogi,
andaðist á heimili sínu föstudaginn 20. maí. Jarðarförin verður auglýst síðar.
Anna Ásgeirsdóttir
Freyja Sigurjónsdóttir Þórir Sigurgeirsson
Ásgeir Sigurjónsson Silja Sverrisdóttir
Drífa Sigurjónsdóttir Ólafur Baldursson
og barnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Björn Aðils Kristjánsson
múrarameistari,
Bræðratungu 19, Kópavogi,
lést á heimili sínu að morgni miðvikudagsins 25. maí.
Lovísa Hannesdóttir,
Unnur Sólveig Björnsdóttir,
Hannes Björnsson, Hafdís Ólafsdóttir,
Kristján Björnsson, Helga Haraldsdóttir,
Sigríður Björnsdóttir, Brynjar Guðmundsson,
Illugi Örn Björnsson, Fanný María Ágústsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Magnús Þór Sigurðsson, Tunguseli 6,
lést mánudaginn 16. maí. Útförin hefur
farið fram.
Sigurður Björgvinsson, fyrrverandi
bóndi á Neistastöðum, lést föstudaginn
20. maí.
Benedikt Már Aðalsteinsson, Holta-
gerði 65, Kópavogi, lést þriðjudaginn 24.
maí.
Guðný Bjarnadóttir, frá Gerðisstekk,
Norðfirði, Lóurima 6, Selfossi, lést mið-
vikudaginn 25. maí.
Björn Aðils Kristjánsson, múrarameist-
ari, Bræðaratungu 19, Kópavogi, lést
miðvikudaginn 25. maí.
Anna Fríða Stefánsdóttir, Grund, Vest-
mannaeyjum, lést miðvikudaginn 25.
maí.
JAR‹ARFARIR
11.00 Guðmundur Guðleifsson frá
Langstöðum í Flóa, síðast til
heimilis á Lyngheiði 15, Selfossi,
verður jarðsunginn frá Selfoss-
kirkju.
11.00 Sigurlaug Þorkelsdóttir, Bárustíg
7, Sauðárkróki, verður jarðsungin
frá Sauðárkrókskirkju.
14.00 Anna Magnúsdóttir, frá Selhóli,
Hellissandi, verður jarðsungin frá
Ingjaldshólskirkju.
14.00 Guðrún Vilmundardóttir,
Steinnesi, Austur-Húnavatnssýslu,
verður jarðsungin frá Þingeyrar-
kirkju.
14.00 Inga Maria Warén, Selási 13,
Egilsstöðum, verður jarðsungin frá
Egilsstaðakirkju.
ANDLÁT
Valdís Gunnarsdóttir
Sunnudagsmorgna 9-12
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L.