Fréttablaðið - 28.05.2005, Side 56
28. maí 2005 LAUGARDAGUR
> Við hrósum ...
... stuðningsmönnum FH sem virðast vera
líklegir til þess að halda uppi
stuðinu á leikjum
Landsbankadeildarinnar í
sumar en þeir settu frábæran
svip á mótið í fyrra.
Nýja lagið er eins
og flest annað
sem frá þeim
kemur -
afbragð.
Heyrst hefur ...
... að Valsmenn séu að leita að miðjumanni
til að styrkja leikmannahópinn fyrir
komandi átök. Liðið er nú með fullt hús
stiga en ljóst þykir að menn þar á bæ vilji
bæta enn um betur. Þeir róa því á erlend
mið eftir öflugum miðjumanni. Valsmenn
ætla greinilega að leggja allt undir í sumar.
sport@frettabladid.is
40
> Við samgleðjumst ...
.... með Frömurum sem hafa heldur betur
bætt árangur sinn í upphafi móts frá
síðustu leiktíð með
tveimur sigrum í
þremur leikjum. Þegar
tímabilið var hálfnað
í fyrra voru Framarar
með sama stigafjölda
og nú, sex stig.
Framarar eru komnir í flri›ja sæti Landsbankadeildar karla eftir 3–0 sigur á firótti í nágrannaslagnum í
Laugardalnum í gær. Andri Fannar Ottósson skora›i tvö mörk og var óheppinn a› ná ekki flrennunni.
Allt annar bragur á Framliðinu
FÓTBOLTI Framarar byrja vel í
Landsbankadeild karla og þá sér-
staklega á heimavelli en liðið
vann Þrótt 3-0 í gær í lokaleik
þriðju umferðar Landsbanka-
deildar karla á heimavelli beggja
liða á Laugardalsvellinum í gær-
kvöld.
Fram komst með sigrinum upp
í þriðja sætið með 6 stig en liðið
vann ÍBV einnig 3-0 í fyrsta
heimaleik sínum. Þróttur er hins
vegar í kjölfarið stigalaust á botn-
inum ásamt ÍBV og Grindavík.
Andri Fannar Ottósson skoraði
tvö fyrstu mörk Framara sem
hefðu vel getað skorað fleiri mörk
ef ekki hefði komið til Fjalars Þor-
geirssonar í marki Þróttar.
Ásgeir Elíasson, þjálfari Þrótt-
ar, breytti leikaðferð liðsins frá
því í fyrstu tveimur leikjunum,
fækkaði um einn í vörninni og
Framarar nýttu sé hvað eftir ann-
að óöryggið í Þróttaraliðinu á upp-
hafsmínútum leiksins. Það reyndi
því mikið á Fjalar Þorgeirsson í
Þróttaramarkinu sem hélt liðinu á
floti í upphafi leiks. Fjalar kom þó
engum vörnum við þegar Andri
Fannar Ottósson kom Fram í 1-0
um miðjan hálfleikinn. Það var
sjöunda skot Framliðsins en
Þróttarar höfðu þá ekki náð skoti
og varla komist fram yfir miðju.
Þróttarar tóku smá kipp í lok
hálfleiksins en færin voru af
skornum skammti. Þeir komu
sterkir inn í seinni hálfleikinn en
náðu ekki að jafna og fengu síðan
annað mark á sig og eftir það spil-
aðist leikurinn fyrir Framara.
Framliðið datt aftur á völlinn,
spilaði skynsamlega og fékk í
kjölfarið nokkrar góðar skyndi-
sóknin sem hefðu getað skilað
fleiri mörkum. Andri Fannar fékk
svo tækifæri á lokamínútum
leiksins til að fullkomna þrennuna
en Fjalar varði skot hans meist-
aralega vel.
Framliðið hefur tekið stakka-
skiptum undir stjórn Ólafs H.
Kristjánssonar sem er að móta
sterka liðsheild í Safamýrinni
sem hefur alla burði til þess að
vera langt frá fallbaráttunni í
sumar. Upp úr stendur samt
Andri Fannar Ottósson, einn
skemmtilegasti leikmaður deild-
arinnar til þessa, en eins voru þeir
Hans Mathiesen og Gunnar Þór
Gunnarsson mjög traustir.
Það sitja því þrjú lið stigalaus á
botninum eftir fyrstu þrjár um-
ferðirnar en Grindvíkingar, Eyja-
menn og Þróttarar geta þó huggað
sig við það að þótt að staðan sé
slæm þá eru önnur tvö lið í sömu
vandræðum.
ooj@frettabladid.is
GOLF. Úrval íslenskra kylfinga
verður saman komið á Toyota-
mótaröðinni í sumar, en hún sam-
anstendur af sex mótum. Það
fyrsta verður nú um helgina á
Strandarvelli á Hellu, þar sem
aðstæður munu vera hinar ákjós-
anlegustu, en ástand valla hefur
víða verið ansi bágborið í vor
vegna kulda og þurrka. Þar eru
skráðir til leiks yfir 130 kepp-
endur, því aðeins eru leiknar 36
holur á mótinu.
Leiknar verða 18 holur hvorn
daginn og ræst út frá klukkan
átta um morguninn til hálf fjögur
seinni partinn. Gert er ráð fyrir
að flestir bestu kylfingar lands-
ins taki þátt í Toyota-mótaröðinni
í sumar, en þó gætu einhverjir
þeirra misst af mótum vegna
keppni á erlendri grundu.
Áhugi Íslendinga á golfíþrótt-
inni hefur aldrei verið meiri en
nú og á dagskrá eru yfir eitt þús-
und mót á völlum landsins í sum-
ar. Flestir vellir landsins eru
mjög þétt setnir og aðstaða til
æfinga, sem og öflugt unglinga-
starf, aukist til muna. Yngri
kylfingarnir munu etja kappi á
KB banka mótaröðinni í sumar.
Þar koma saman efnilegustu
kylfingarnir, og munu sumir
þeirra einnig munu taka þátt í
keppnum hinna eldri og reynd-
ari.
Meistaramót klúbba verður
haldið í júlí í sumar og stendur
yfir í fjóra daga á öllum völlum.
Leiknar verða 72 holur og mun
gríðarlegur fjöldi kylfinga taka
þátt sem og í ágúst þegar sveita-
keppnir verða haldnar. - bb
Toyota-mótaröðin í golfi hefst um helgina með Icelandair-mótinu:
Fjöri› byrjar á Strandarvelli á Hellu
Risinn er vaknaður nefnist nýtt lag frá
Hafnarfjarðarmafíunni, hljómsveit
stuðningsmanna FH. Hljómsveitina
skipa þeir Heiðar og Halli úr Botnleðju
ásamt Viðari. Þeir hafa slegið allræki-
lega í gegn með öðrum þekktum
stuðningsmannalögum en nýjasta við-
bótin þykir gefa hinum ekkert eftir. Lag-
ið er alvörurokk eins og von er og vísa
hjá Mafíunni. „Já, það þýðir ekkert ann-
að – þetta er það sem mun færa titilinn
heim ... annað árið í röð,“ sagði Heiðar
galvaskur við Fréttablaðið. „Strákarnir í
liðinu eiga ekkert í þessum titli, þetta
eru bara við stuðningsmennirnir,“ sagði
Heiðar og hló. „En það er mikið undir
hjá okkur stuðningsmönnum og þess
vegna gefum við allt í botn. Þá dugar
ekkert annað en rokkslagari. Það virðist
nefnilega enginn átta sig á því að það
er rokkið sem er málið ef það á að
verja titilinn. Öll önnur félög eru með
eitthvert popp. Bubbalagið í KR er
reyndar orðið klassík.“
Þegar Heimir Guðjónsson, fyr-
irliði FH, tók við deildarbik-
arnum fyrr í mánuðinum lýsti
hann því yfir að risinn væri
vaknaður. „Já, þetta er ein-
hver húmor sem byrjaði
hjá Heimi og strákun-
um. FH-ingar eru
nefnilega svo hóg-
værir,“ segir Heiðar
kaldhæðnislega. „Og
svo er þetta einnig vísun
í nýja knattspyrnuhúsið í
Kaplakrika, sem heitir
einmitt Risinn.“ Í textanum
segir einmitt að „Risinn sé upprisinn“.
„Ég er búinn að sjá alla leikina þrjá,“
segir Heiðar um FH-liðið í sumar. „Ég
reyni að fara á alla leiki sem ég kemst
á. Ætli það eru ekki fjög-
ur eða fimm ár síð-
an ég
byrjaði að
fylgjast með
þessu af einhverju
viti og nú er maður
algerlega háður
þessu. Maður hefur þó
alltaf verið FH-ingur og ég spilaði
með þeim sem gutti.“ Aðspurð-
um líst Heiðari vel á framhaldið.
„Nú reynir á gegn KR á sunnudag,
það þýðir engin ræfilsháttur gegn
þeim.“
HAFNARFJARÐARMAFÍAN MEÐ NÝTT LAG: RISINN ER VAKNAÐUR
Menn vinna ekki titla me› popplögum
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
25 26 27 28 29 30 31
Laugardagur
MAÍ
■ ■ LEIKIR
14.00 Víkingur R. og Víkingur Ó.
mætast á Víkingsvelli í fyrstu deild
karla í fótbolta.
14.00 KA og Þór mætast á
Akureyrarvelli í fyrstu deild karla í
fótbolta.
16.00 HK og KS mætast á
Kópavogsvelli í fyrstu deild karla í
fótbolta.
16.00 Haukar og Völsungur
mætast á Ásvöllum í fyrstu deild
karla í fótbolta.
■ ■ SJÓNVARP
10.50 Formúla 1 á Rúv. Tímatökur
fyrir Evrópukappaksturinn.
11.30 Úrslitakeppni NBA á Sýn.
Útsending frá leik í úrslitakeppninni
13.30 Landsbankadeildin á Sýn.
Útsending frá leik Fram og Þróttar.
15.00 Snjóbrettagleði á Rúv.
15.10 Fitness á Sýn.
Grunnskólamót UMSK í fitness.
15.30 Íslandsmótið í snóker á
Rúv. Úrslitaleikur í meistaraflokki
karla.
15.45 Meistaradeildin á Sýn.
Útsending frá leik AC Milan og
Liverpool.
18.25 Inside the PGA á Sýn.
Bandaríska mótaröðin í golfi.
19.00 US PGA Monthly á Sýn.
Golfþáttur.
19.50 Spænski boltinn á Sýn.
21.55 Hnefaleikar á Sýn.
Hopkins-Eastmann.
22.55 Hnefaleikar á Sýn. Vargas –
Joval.
TOYOTA-MÓTARÖÐIN:
28.-29. maí: Icelandair-mótið á
Strandavelli á Hellu. 36 holur.
11.júní: Carlsberg-mótið á Vest-
mannaeyjavelli. 56 holur.
25.-26. júní: Ostamótið á Garðavelli.
56 holur.
21.-24. júlí: Íslandsmótið í höggleik á
Hólmsvelli. 72 holur.
5.-7. ágúst: Íslandsmótið í holu-
keppni á Hvaleyrarvelli.
3.-4. september: Flugfélagsmótið á
Korpúlfsstaðavelli. 36 holur.
VERÐUR MEÐ Birgir Leifur Hafþórsson
tekur þátt í mótum sumarsins.
1. deildarlið Víkings styrkist:
Jóhann í lán
til Víkings
FÓTBOLTI Valsarinn Jóhann Hreið-
arsson hefur verið lánaður til ná-
grannaliðsins Víkings í mánuð,
hið minnsta. Sigurður Jónsson,
þjálfari Víkinga, sagði að hann
fagnaði komu Jóhanns, enda
reyndur leikmaður þar á ferð og
góður. Jóhann er bróðir
Sigurbjörns Hreiðarssonar,
fyrirliða Vals, en þeir bræður
hafa borið uppi miðjuspil Vals
síðustu árin.
„Hann á eftir að koma til með
að auka breiddina í leikmanna-
hópi okkar sem og samkeppni,
sem er aðeins af hinu góða.“ Sig-
urður vildi ekki staðfesta hvort
Jóhann færi strax í byrjunarlið
Víkings á morgun þegar liðið tek-
ur á móti nafna sínum frá Ólafs-
vík.
Hann verður þó í leikmanna-
hópnum. Sigurður segir enn frem-
ur að ekki sé loku fyrir það skotið
að Jóhann framlengi dvöl sína hjá
félaginu, það yrði að koma í ljós
er fram líða stundir. - esá
3-0
Laugardalsv., áhorf: 804 Kristinn Jakobsson (7)
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 18–6 (14–2)
Varin skot Gunnar 2 – Fjalar 11
Horn 7–6
Aukaspyrnur fengnar 14–13
Rangstöður 1–3
1–0 Andri Fannar Ottósson (24.)
2–0 Andri Fannar Ottósson (60.)
3–0 Heiðar Geir Júlíusson (78.)
Fram Þróttur
*MAÐUR LEIKSINS
FRAM 4–3–3
Gunnar S. 6
Kristófer Skúli 5
(72. Ívar –)
Þórhallur 5
Kristján 6
Gunnar Þór 7
Mathiesen 7
Nörholt 5
(61. Viðar 5)
Ingvar Þór 5
*Andri Fannar 7
Ríkharður 4
Andri Steinn 5
(56. Heiðar Geir 6)
ÞRÓTTUR 4–4–2
Fjalar 7
Freyr 6
Jens 5
Jaic 6
Eysteinn 4
Halldór 6
Páll 5
Haukur Páll 4
(68. Erlingur Þór 5)
Daníel 6
Þórarinn 3
Sævar 5
TVÖ MÖRK ANDRA Framarinn Andri Fannar Ottósson, sem skoraði tvö mörk í gær, reynir
hér að komast fram hjá Jens Sævarssyni (13) og Halldóri Hilmissyni, Þrótturum.
FRÉTTABLAÐIÐ/HARI