Fréttablaðið - 28.05.2005, Blaðsíða 66
FRÉTTIR AF FÓLKI
Daníel er ungur Dani sem líður
værukær í gegnum lífið á hraða
snigilsins. Hann hefur líkt og ná-
frændi sinn, Nói albínói, nánast sagt
sig úr lögum við samfélagið. Hann
fer hvorki eftir skráðum né óskráð-
um reglum en er samt ekki svo mik-
ill uppreisnarseggur að hann fari
eftir eigin reglum. Hann fer ein-
faldlega ekki eftir reglum. Hann
bara er og lætur þar við sitja.
Daníel vinnur fyrir sér með
veggjakroti á milli þess sem hann
hangir með kunningja sínum, sem
einhverra hluta vegna gengur undir
nafninu Afi. Sá er vægast sagt
kostuleg persóna og tvímælalaust
skemmtilegasti kynlegi kvisturinn
sem Dagur Kári töfrar fram í þess-
ari einföldu og ljúfsáru kvikmynd.
Voksne mennesker kemur í rök-
réttu framhaldi af glæsilegu byrj-
endaverki Dags Kára, Nói albínói,
og rétt eins og þar byggir hann frá-
sögnina á persónum og stemmningu
frekar en rökréttum og klassískum
söguþræði. Þessi frásagnarmáti
leikur ákaflega vel í höndum Dags
Kára, sem kemst áreynslulaust upp
með að segja sögur sínar á lág-
stemmdum nótum án nokkurs
bægslagangs. Þrátt fyrir hæga-
ganginn missir hann ekki athygli
áhorfandans og þó það gerist stund-
um ekki neitt í myndunum leiðist
manni aldrei.
Nói albínói er samt sterkari heild
en Voksne mennesker, aðallega
vegna þess að hér segir Dagur sögu
dómara, sem fær mál Daníels til
meðferðar, samhliða meginsögunni.
Dómarinn er áhugaverð persóna,
það vantar ekki, en tenging hans við
Daníel er of veik til þess að hremm-
ingar hans styrki heildarmyndina.
Þetta eru þó hreinir og klárir
smámunir og með lygilega
skemmtilegu persónugalleríi og
þrælfínum dönskum leikurum tekst
Degi Kára að segja meinfyndna og
lúmskt harmræna sögu fólks sem
reynir að skapa sér merkingarbæra
tilveru í litlausum samtíma sem
steypir alla í sama mót. Hæg og
brotakennd frásögn Dags Kára er í
hrópandi ósamræmi við hraðar
klippingar og athyglisbrest MTV-
kynslóðarinnar og það er í raun frá-
bært að fólk skuli enn segja sögur á
eðlilegum gönguhraða á þessum síð-
ustu og verstu tímum.
Persónur Dags Kára eru jafn
mikið á skjön við hefðbundin gildi
og frásagnarmáti hans en þó Daníel
reyni til þrautar að vera eyland
kemst hann ekki hjá því að fullorðn-
ast og axla ábyrgð. Það verður hins
vegar hvorki af honum né Nóa tekið
að kynlegir kvistir af þeirra sauða-
húsi gera tilverunna skemmtilegri
um leið og Dagur Kári stimplar sig
inn sem einn áhugaverðasti kvik-
myndagerðarmaður Íslendinga.
Þórarinn Þórarinsson
Ljúfsár flroskasaga
VOKSNE MENNESKER
LEIKSTJÓRI: DAGUR KÁRI PÉTURSSON
AÐALHLUTVERK: MIKAEL BERTELSEN,
NICOLAS BRO, TILLY SCOTT PEDERSEN,
JAKOB CEDERGREN
NIÐURSTAÐA: Voksne mennesker kemur í rök-
réttu framhaldi af glæsilegu byrjendaverki Dags
Kára, Nói albínói, og rétt eins og þar byggir
hann frásögnina á persónum og stemningu
frekar en rökréttum og klassískum söguþræði.
[ KVIKMYNDIR ]
UMFJÖLLUN
HUGSAÐU STÓRT
SÍMI 564 0000
- allt á einum stað
Sýnd kl. 2 og 4 m/ísl. tali
SK DV
Sýnd kl. 8 og 11 B.i. 16 ára.
HL MBL
Sýnd kl. 1, 2, 4, 5, 7, 8, 10, 11 og
00.30 eftir miðnætti B.i. 10 ára
Sýnd í Lúxus kl. 1, 4, 7 og 10
Sýnd kl. 1, 3.30, 5.45, 8 og 10.15
★★★★★ Fréttablaðið
★★★★1/2 kvikmyndir.is
★★★★ MBL
★★★1/2 SJ Blaðið 1/2
★★★1/2 Kvikmyndir.com
Yfir
20.000 gestir á aðeins 7 dögum!
SÍMI 551 9000
Sýnd kl. 3.20, 5.40, 8 og 10.20
B.i. 16 ára
O.H.T. Rás 2
Sýnd kl. 3, 6 og 9
Sýnd kl. 1.30, 4.30, 7.30 og 10.30
B.i. 10 ára
★★★★★ Fréttablaðið
★★★★1/2 kvikmyndir.is
★★★★ MBL
★★★1/2 SJ Blaðið 1/2
★★★1/2 Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 2, 4 og 9
Einstök upplifun!
SK DV
Breskur glæpatryllir eins og þeir
gerast bestir. Svartur húmor, ofbeldi
og cool tónlist með Cult, Starsailor, FC
Kahuna og Duran Duran.
Frá framleiðendum Lock Stock & Snatch
Yfir
20.000 gestir á aðeins 7 dögum!
- allt á einum stað
ÍSLENSK TÓNLIST Í ÞÚSUND ÁR
„Myndin er
gargandi snill
d“
SGT Talstöð
in
„Frábær tónlist... lifandi og
upplýsandi leiðsögn um landið
sem framleiddi hana“
Kenneth Turan LA TIMES
★★★
SK DV
★★★★
HJ MBL
Nýtt myndband Eminem við lagiðAss Like That
hefur vakið óhug
og reiði stjarna eins
og Gwen Stefani,
Britney Spears og
Elton John.
Myndbandið
samanstendur af
brúðum að gera
sig að fífli.
Eminem viður-
kennir þó ekki að
myndbandið sé
eitthvað slæmt og
talsmaður hans
sagði: „Þetta eru
brúður. Fólk ætti
ekki að láta
þetta fara í
taugarnar á sér.“
Rod Stewart verður bráðumpabbi í sjöunda sinn. Heitkona
söngvarans, Penny Lancaster, á von
á fyrsta barni þeirra. „Þau eru í skýj-
unum. Þau elska hvort annað svo
mikið og barn mun fullkomna líf
þeirra,“ sagði heimildarmaður en
parið hefur í hyggju að giftast næsta
vor. Rod á nú þegar sex börn úr fyrri
samböndum.
FRÉTTIR AF FÓLKI