Fréttablaðið - 05.06.2005, Side 2
2 5. júní 2005 SUNNUDAGUR
Norðurlandakeppni í ökuleikni vagnstjóra:
Íslendingar ur›u hlutskarpastir
ÖKULEIKNI Íslenskir vagnstjórar
sigruðu starfsbræður sína frá
öðrum Norðurlöndum auðveld-
lega í ökuleikniskeppni vagn-
stjóra sem fram fór við höfuð-
stöðvar Strætó að Kirkjusandi í
gær. Urðu þeir alls 2.500 sekúnd-
um á undan Dönum sem komu
næstir.
Þetta er fjórða árið í röð sem
Íslendingar skipa sér í efsta sætið
í þessari keppni sem haldin hefur
verið síðustu þrjátíu árin en ís-
lenskir vagnstjórar tóku þó ekki
þátt fyrr en 1983. Er um margvís-
legar þrautir að ræða sem sex
vagnstjórar frá hverri þjóð fyrir
sig verða að leysa á sem stystum
tíma. Reyndist munurinn heilar
2.500 sekúndur þegar upp var
staðið sem telst vera afar öruggur
sigur Íslendinga. Finnar urðu
þriðju, Norðmenn fjórðu og Svíar
ráku lestina.
Af 30 vagnstjórum reyndist
Markús Sigurðsson stigahæstur
og er því Norðurlandameistari en
næstu sæti voru einnig skipuð Ís-
lendingum, þeim Þórarni Söebech
og Rögnvaldi Jónatanssyni.
-aöe
Chirac og Schröder ræddu stjórnarskrána:
Ver›um a› halda áfram
ÞÝSKALAND, AP Jacques Chirac
Frakklandsforseti og Gerhard
Schröder, kanslari Þýskalands,
vöruðu leiðtoga aðildarríkja Evr-
ópusambandsins við því í gær að
láta höfnun stjórnarskrársátt-
mála sambandsins í Frakklandi
og Hollandi koma í veg fyrir
staðfestingarferli hans annars
staðar í ríkjum Evrópusam-
bandsins.
Chirac og Schröder hittust í
Berlín í gær og sagði talsmaður
Schröder að þeir hefðu verið
sammála um að ferlið yrði að
halda áfram þrátt fyrir þau áföll
sem það hefur orðið fyrir. Hann
sagði leiðtogana líta svo á að ef
það yrði ekki gert væru Evrópu-
búar látnir vera í óvissu um
framtíð sína. ■
Stjórnvöld ver›a a›
tryggja stö›ugleika
Framkvæmdastjóri Alfl‡›usambandsins og forma›ur Vinstri-grænna segja a›
ríkisstjórnin ver›i a› grípa til a›ger›a en geti ekki vísa› ábyrg› á efnahags-
málum á Se›labankann. Pétur Blöndal segir stjórnina hafa gripi› til a›ger›a.
EFNAHAGSMÁL Stjórnvöld verða að
gera meira til að tryggja stöðug-
leika en þau hafa gert til þessa,
segir framkvæmdastjóri Alþýðu-
sambands Íslands og tveir stjórn-
arandstöðuþingmenn.
Gylfi Arnbjörnsson, fram-
kvæmdastjóri Alþýðusambands
Íslands, segir betra ef ríkisstjórn-
in notaði ríkisfjármálin til að
halda þenslunni í skefjum en að
Seðlabankinn notaði gengið til
þess, því það þrengdi að afkomu
fyrirtækjanna í landinu sem aftur
skapaði þrýsting á þau að lækka
launakostnað. Seðlabankinn til-
kynnti vaxtahækkun í fyrradag
og hafa stýrivextir ekki verið
hærri í rúm þrjú ár.
„Við höfum auðvitað áhyggjur
af stöðunni,“ segir Ágúst Ólafur
Ágústsson, varaformaður Sam-
fylkingar. Hann telur lausatök
stjórnarflokkanna í ríkisfjármál-
um hafa haft slæm áhrif á efna-
hagslífið. „Í gegnum tíðina hafa
fjárlögin aldrei staðist og oft hefur
munað tugum milljarða á þeim og
raunveruleikanum sem blasir við á
ríkisreikningnum. Ríkisstjórnin
þarf að beita meiri ábyrgð og að-
haldi í ríkisfjármálunum.“
Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður Vinstri Grænna, tók í sama
streng og sagðist búast við að
ástandið í efnahagsmálum yrði
svipað á meðan Seðlabankinn sæi
sig knúinn til að hækki vextina
aftur og aftur. Steingrímur skor-
aði á ríkisstjórnina að gefa út yfir-
lýsingu þess efnis að ekki yrði
stuðlað að fleiri stóriðjufram-
kvæmdum í bili. „Slík yfirlýsing
ein og sér myndi strax verða til
þess að kæla hagkerfið.“ Einnig
vildi hann að hætt yrði við skatta-
lækkunaráformin.
Pétur Blöndal, formaður efna-
hags- og viðskiptanefndar, taldi á
hinn bóginn að ríkisstjórnin beitti
þegar aðhaldi. Búið væri að fresta
framkvæmdum í vegamálum fyr-
ir einhverja milljarða og reka ætti
ríkissjóð með afgangi á fjárlaga-
ári. Hann sagði jafnframt að verð-
bólgan væri innan markmiða
Seðlabankans ef breytingar á hús-
næðisliðnum væru ekki taldar
með. Hækkun fasteignaverðs
hækkaði neysluverðsvísitöluna,
en skuldbreytingar eldri lána
kæmu ekki inn í hana til lækkun-
ar. Pétur segir merkilegt að lækk-
un á greiðslubyrði almennings
komi fram sem hækkun á neyslu-
verðsvísitölu.
Ekki náðist í Halldór Ásgríms-
son forsætisráðherra.
grs@frettabladid.is
Stjórnarskrá ESB:
Vilja fá a›
kjósa
DANMÖRK, AP Meirihluti Dana vill fá
að kjósa um stjórnarskrársáttmála
Evrópusambandsins þrátt fyrir að
hvort tveggja franskir og hollensk-
ir kjósendur hafi hafnað honum.
Þetta sýnir ný skoðanakönnun sem
Politiken birti.
Samkvæmt könnuninni telja 53
prósent Dana réttast að láta fyrir-
hugaða þjóðaratkvæðagreiðslu
fara fram. 31 prósent telur hins
vegar að í ljósi höfnunar Frakka og
Hollendinga sé réttast að hætta við
þjóðaratkvæðagreiðsluna. Sextán
prósent aðspurðra voru óákveðnir.
Fjórar kannanir gefa til kynna
að Danir hafni sáttmálanum. ■
44 fermetra ljósaskilti:
Stærsta skilti
landsins
AUGLÝSINGAGERÐ Sérfróðir menn
unnu við það í fyrrakvöld að setja
upp á þak nýrrar verslunar Bíla-
nausts stærsta auglýsingaskilti
sem sést hefur á landinu.
Var þar um að ræða auglýsingu
fyrir verslunina Bílanaust sem
opnar seinna í þessum mánuði en
skiltið er alls 44 fermetrar að
stærð eða svipað og einstaklings-
íbúð og lýst upp af 86 flúorperum.
Var skiltið smíðað í verksmiðju í
Lettlandi eftir íslenskri teikningu
og komu hingað til lands tveir
menn frá fyrirtækinu sérstaklega
til að setja það upp. -aöe
Holtasmára 1 • 201 Kópavogur
Sími: 5 100 300 • Símbréf: 5 100 309
Netfang: langferdir@langferdir.is
Heimasiða: www.langferdir.is
Opnunartímar alla virka daga frá 10:00-17:00
Haustferðir
draCretsaM
udnuM
!aninusívá
aðref
Apollo og Kuoni bjóða ótrúlega fjölbreytta og
hagstæða haustpakka til allra heimshorna.
Kannaðu verðdæmi á heimasíðu okkar, www.kuoni.is,
eða hafðu samband við söluskrifstofuna.
Grikkland • Tyrkland • Túnis • Egyptaland
Kanaríeyjar • Taíland • Indland • Bali...
- og heimsborgin Kaupmannahöfn í kaupbæti!
SPURNING DAGSINS
Kjartan, fl‡›ir fletta a› vagn-
arnir ver›a á réttum tíma í
framtí›inni?
„Engin spurning“
Íslenskir strætisvagnabílstjórar urðu langefstir á
Norðurlandamótinu í ökuleikni. Kjartan
Pálmason er upplýsinga- og fjölmiðlafulltrúi ís-
lenskra strætisvagnabílstjóra.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
AF
ÁN
NORÐURLANDAMEISTARAR
Íslendingar skipuðu sér í öll efstu sætin á
Norðurlandamóti strætóbílstjóra í öku-
leikni sem fram fór í gær.
GLEÐJAST SAMAN Unga fólkið skemmti sér
dável í glampandi sólskini í grillveislu
Krafts í Hafnarfirðinum.
Grillhátíð Krafts:
Gekk framar
vonum
FÉLAGSMÁL Um 70 manns skemmtu
sér hið besta í grillveislu Krafts,
stuðningsfélags ungs fólks sem
greinst hefur með krabbamein, en
slík veisla er haldin á hverju ári.
Grillað var í Hellisgerði í
Hafnarfirði að þessu sinni í blíð-
skaparveðri sem einkenndi suð-
vesturhorn landsins í gær. Að
sögn Maríu Erlu Pálsdóttur sem
sá um undirbúning veislunnar
skemmtu gestir sér hið besta en
fjölmargt var í boði auk þess sem
hljómsveitin Ættarbandið lék og
söng allan tímann. -aöe
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
Ö
RÐ
U
R
LÖGREGLUFRÉTTIR
SLASAÐIST EFTIR VELTU Á
MÓTORHJÓLI
Ökumaður torfæruhjóls slasaðist
þegar hann missti stjórn á hjóli
sínu í Ölfusi um kvöldmatarleytið
í gær. Ók hann út af með þeim af-
leiðingum að hann kastaðist
nokkurn spöl en áverkar hans
reyndust ekki lífshættulegir.
Mun hann engu að síður dvelja á
spítala næstu dægrin.
ALVARLEGT SLYS Í HESTAFERÐ Í
FLJÓTSDAL
Kona í hestaferð í Fljótshlíð slas-
aðist illa þegar hestur sparkaði í
andlit hennar um miðjan dag í
gær. Hún var flutt á slysadeild í
Reykjavík með slæma áverka á
andliti og hálsi. Þarf konan að
gangast undir aðgerð og verður
undir eftirliti næstu dægrin.
SÉST VÍÐA AÐ Risaskiltið er áberandi og
sést víða að en kostnaður við smíði slíkra
skilta skiptir milljónum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IR
G
IR
Spænsk móðir:
Myrti tvö
börn sín
SPÁNN, AP Spænsk kona er talin
hafa drekkt tveimur börnum sín-
um, átta mánaða og tveggja ára
gömlum. Hún hringdi í lögreglu
eftir verknaðinn og sagði frá hon-
um en reyndi síðan sjálfsmorð
með því að fleygja sér fram af
svölum íbúðar sinnar í Barselóna.
Þegar lögregla kom á staðinn
fannst konan alvarlega slösuð á
jörðinni fyrir framan íbúð sína.
Lík barnanna tveggja fundust í
baðkari. ■
VIÐ HÖFNINA Hátt gengi krónunnar bitnar sérstaklega harkalega á sjávarútveginum og
öðrum útflutningsgreinum.
EVRÓPA
LEIÐTOGA SPARKAÐ Í
FRAKKLANDI Franskir sósíalist-
ar viku einum forystumanna
flokksins, Laurent Fabius fyrr-
um forsætisráðherra, úr for-
ystusveit sinni í gær. Ástæðan
er sú að hann stýrði baráttu
þeirra sem vildu hafna stjórn-
arskrársáttmála Evrópusam-
bandsins í þjóðaratkvæða-
greiðslu.
VILJA ENN AÐILD Abdullah Gul,
utanríkisráðherra Tyrklands,
sagði Tyrki enn hafa fullan hug
á aðild að Evrópusambandinu á
ráðstefnu í Austurríki. Gul hét
því jafnframt að Tyrkir myndu
áfram vinna að þeim umbótum
sem eru nauðsynlegar svo þeir
uppfylli skilyrði um aðild en
ýmislegt þykir miður í
stjórnháttum landsins sem
hefur virkað illa á þá
embættismenn ESB sem
ákvarða hvaða þjóðir koma til
greina til inngöngu.
CHIRAC OG SCHRÖDER Leiðtogarnir föðm-
uðust þegar þeir hittust í Berlín.