Fréttablaðið - 05.06.2005, Síða 12
Verðskuldaður virðing-
arvottur við sjómenn
TIMAMÓT: SJÓMANNADEGI FAGNAÐ UM ALLT LAND
Sjómannadegi er fagnað víðast
hvar um landið í dag en fyrsti
sunnudagur júnímánaðar hefur
verið helgaður sjómönnum all-
ar götur síðan 1938.
Það er óhætt að segja að
óvíða hefur myndast jafn sterk
hefð fyrir deginum og á Pat-
reksfirði. Þar hefur dagurinn
undið upp á sig í gegnum tíðina
og er í raun og veru orðinn sjó-
mannadagshelgi því dagskráin
er þéttskipuð frá fimmtudegi
fram á sunnudag. Einar Jónsson
og Árni Magnússon fara
fremstir í flokki sjómannadags-
ráðs á Patreksfirði sem hefur
veg og vanda að því að skipu-
leggja hátíðarhöldin. Þeir hafa
verið í ráðinu í tæpa tvo áratugi
og eru sammála um að sjó-
mannadagurinn er stéttinni
afar mikilvægur. „Þetta er dag-
urinn þar sem sjómenn koma
saman og eiga ánægjulega
stund og það skiptir menn
miklu máli að finna fyrir þess-
ari samkennd.“
Aðrir þurfa heldur ekki að
láta sé leiðast enda nóg um að
vera og fólk getur tekið þátt í
knattspyrnu- og golfmóti,
sjóstangaveiði, hlýtt á Álfta-
gerðisbræður syngja, litið á
myndlistarsýningar og
bryggjuball svo fátt eitt sé
nefnt. Herlegheitunum lýkur
svo með stórum dansleik á
sunnudeginum og ekki er óal-
gengt að samúðarfullir yfir-
menn gefi starfsmönnum frí
fram að hádegi á mánudeginum
þar sem flestir hafa jú verið að
dansa fram á nótt.
Árni og Einar segja að það sé
ekki vanþörf á að hafa þétta og
fjölbreytta dagskrá þar sem
fjölmargir gestir leggi leið sína
í bæinn yfir helgina. „Ég geri
ráð fyrir að íbúatalan tvöfald-
ist,“ segir Einar. „Það er mikið
af brottfluttum Patreksfirðing-
um sem nota tækifærið og vitja
heimahaganna en það kemur
líka margt fólk hingað sem hef-
ur heyrt af stemningunni og vill
heimsækja okkur. Við tökum
þeim auðvitað fagnandi.“
Einar og Árni eru þó hóg-
værðin uppmáluð og eigna sér
ekki heiðurinn af velgengninni
fyrir vestan. „Það er einvalalið
manna sem stendur í þessu með
okkur og gefur tíma sinn til að
koma þessu í kring. Það fylgir
þessu vissulega mikil vinna en
það væri auðvitað ekki hægt að
koma þessu í kring ef ekki væri
fyrir fólkið sem tekur þátt í
þessu með okkur og vill með því
sýna sjómönnum þann sóma
sem þeir eiga skilið.“ ■
12 5. júní 2005 SUNNUDAGUR
RONALD REAGAN (1911-2004) LÉST
ÞENNAN DAG.
Ronald Reagan varð Bandaríkjaforseti 1981 og
sat hann í tvö kjörtímabil. Hann var vinsæll kvik-
myndaleikari áður en hann fór út í stjórnmál.
„Stjórnvöld eiga það til að leysa ekki
vandamál, heldur hliðra þeim til.“
- Ronald Regan
timamot@frettabladid.is
AFMÆLI
Vilhjálmur Einarsson frjálsíþróttamaður
á Egilsstöðum er 71 árs.
Hjörtur Pálsson rithöfundur er 64 ára.
Sigurður Rúnar Friðjónsson er 55 ára.
Kristín Arngrímsdóttir myndlistarkona
er 52 ára.
Guðmundur Oddur Magnússon er 50 ára.
Sigrún Waage leikkona er 44 ára.
Drífa Snædal, fræðslu- og fram-
kvæmdastjóri samtaka um Kvennaat-
hvarf, er 32 ára.
ANDLÁT
Rósa Magnúsdóttir frá Bíldudal, andað-
ist á Sjúkrahúsi Ísafjarðar mánudaginn
30. maí.
Sigurlín (Eva) Andrésdóttir, Skjóli, áður
Furugerði 1, lést mánudaginn 30. maí.
Helgi Hallgrímsson húsgagna- og inn-
anhússarkitekt, lést á hjúkrunarheimilinu
Eir fimmtudaginn 2. júní.
Jófríður Ólafsdóttir, Staðarhrauni 3,
Grindavík, lést á heimili sínu fimmtudag-
inn 2. júní.
Björgvin Bjarnason járnsmiður, Hlíðar-
vegi 57, Kópavogi, andaðist á hjúkrunar-
heimilinu Sunnuhlíð, Kópavogi, fimmtu-
daginn 2. júní.
Þennan dag árið 1956 kynnti
Elvis Presley smáskífu sína
Hound Dog í sjónvarpsþætti
Milton Berle í Bandaríkjunum.
Elvis hneykslaði áhorfendur
þegar hann dansaði með kyn-
þokkafullum mjaðmahnykkjum.
Þessi framkoma olli miklu fjöl-
miðlafári og aðrir spjallþátta-
stjórnendur, þar á meðal Ed
Sullivan, formæltu henni. Sulliv-
an sór þess dýran eið að Elvis
kæmi aldrei í þáttinn til sín. Um
haustið fór það þó svo að Elvis
var gestur hans í þrjú skipti.
Elvis hafði þá verið að hljóðrita
lög í tvö ár. Þegar hann vann í
raftækjabúð í Memphis fór hinn
18 ára Elvis í hádegishléi sínu
og tók upp tvö lög í tilefni af af-
mæli móður sinnar. Afgreiðslu-
maður í stúdíóinu varð svo
upprifinn að hann fór með upp-
tökurnar til Sam Phillips sem
gerði plötusamning við Elvis
sama ár.
Hinn umdeildi dans Elvisar með
mjaðmahnykkjunum frægu
vakti ugg foreldra en heillaði
ungar stúlkur. Í upptökum á
sjónvarpsþætti Eds Sullivan árið
1956 var ákveðið að mynda
einungis efri hluta líkama Elvis-
ar til að gæta allrar siðsemi.
5. JÚNÍ 1956
Til að gæta siðsemi var einungis
efri hluti líkama Elvis sýndur í
sjónvarpsþætti Ed Sullivan.
ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR
1885 Bríet Bjarnhéðinsdóttir skrif-
ar grein um menntun og
réttindi kvenna í Fjallkon-
una. Þetta er fyrsta grein
sem íslensk kona skrifar í
opinbert blað.
1967 Sex daga stríðið hefst þegar
Ísrael ræðst gegn Sýrlandi
og Egyptalandi.
1968 Robert Kennedy, yngri
bróðir John F. Kennedy, er
skotinn. Hann lætur lífið
daginn eftir af sárum sín-
um.
1975 Íslendingar sigra Austur-
Þjóðverja í landsleik í
knattspyrnu.
1991 Hæstiréttur kveður upp
dóm í Hafskipsmálinu.
Flestir hinna ákærðu eru
sýknaðir.
Elvis veldur uppnámi
Tilkynningar um merkisatbur›i,
stórafmæli, andlát og jar›arfarir
í smáletursdálkinn hér a› ofan
má senda á netfangi›
timamot@frettabladid.is.
Augl‡singar á a› senda á
auglysingar@frettabladid.is e›a
hringja í síma
550 5000.
Ástkær maðurinn minn, faðir, tengdafaðir, afi, langafi
og langalangafi,
Kristján Belló Gíslason,
fv. leigubílstjóri, Vogatungu 101, Kópavogi,
er andaðist að hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð að kvöldi þriðjudagsins
31. maí, verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju þriðjudaginn 7. júní kl.
13. Þeim sem vildu minnast hans er vinsamlegast bent á að láta
hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð njóta þess.
Halldóra Stefánsdóttir
Vera Kristjánsdóttir
Gísli Þ. Kristjánsson Oddný S. Gísladóttir
Guðleif Kristjánsdóttir Helgi H. Eiríksson
Arnþrúður M. Kristjánsdóttir Hafsteinn M. Guðmundsson
Stefán R. Kristjánsson Agla B. Róbertsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Austur-Skaftafellssýsla:
Hundra›asti
stúdentinn
Hundraðasti stúdent Framhalds-
skólans í Austur-Skaftafellssýslu
var meðal þeirra sem voru út-
skrifaðir við þrettándu útskrift
skólans í lok maí. Fyrstu nýstúd-
entarnir voru útskrifaðir árið
1992 og hafa alls 102 stúdentar
sett upp hvíta kollinn í skólanum
sem staðsettur er á Höfn í Horna-
firði. Að þessu sinni útskrifuðust
8 stúdentar: 5 af skrifstofubraut
og 16 af almennri braut. Dux
Scolae að þessu sinni var Hulda
Rós Sigurðardóttir. ■
ÚTSKRIFTARHÓPUR Útskriftarnemar
ásamt skólameistara.
Hjólavæn
borg
Alþjóðlegi umhverfisdagurinn er í
dag. Af því tilefni stendur Land-
vernd fyrir hjólalest í samvinnu
við Landssamtök hjólreiðamanna.
Hjólað er undir yfirskriftinni
„Hjólavæn borg“ en lestin er í
tengslum við afhendingu Bláfán-
ans sem afhentur verður á yl-
ströndinni í Nauthólsvík í lok ferð-
ar. Þá býður Íþrótta- og tómstunda-
ráð upp á hressingu. Lagt er af
stað frá Eimreiðinni á miðbakka
Reykjavíkurhafnar þegar klukk-
una vantar tíu mínútur í tvö en for-
maður Landverndar, Björgólfur
Thorsteinsson, umhverfisráð-
herra, Sigríður Anna Þórðardóttir
og forseti borgarstjórnar Reykja-
víkur, Stefán Jón Hafstein, verða í
broddi fylkingar. ■
FJÖLMENNI Á KAJANUM Hundruð manna söfnuðust saman á bryggjunni á Patreksfirði í gær og fylgdust með dorgveiði og kraftakeppni.
EINAR JÓNSSON OG ÁRNI MAGNÚSSON Þeir félagar hafa komið að skipulagningu
hátíðarhaldanna í næstum tvo áratugi.
M
YN
D
/H
AF
ST
EI
N
N
O
R
R
I I
N
G
AS
O
N
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/
B
ER
G
ST
EI
N
N
S
IG
U
RÐ
SS
O
N