Fréttablaðið - 05.06.2005, Side 16
16 5. júní 2005 SUNNUDAGUR
Þ jóðvegur eitt er ekkiárennilegasta gönguleiðlandsins enda liggur hann
um heiðar og fjöll. Brekkurnar
bíða Bjarka Birgissonar og Guð-
brands Einarssonar. Meðal helstu
fjallvega eru: Hellisheiði, Al-
mannaskarð, Öxi, Möðrudalsör-
æfi, Mývatnsheiði, Öxnadalsheiði,
Vatnsskarð og Holtavörðuheiði.
Það eru þó ekki brekkurnar sem
Guðbrandur óttast mest. „Ég
kvíði helst fyrir því ef það gerir
storm á Söndunum. Þá getum við
bara pakkað saman á meðan. Svo
held ég að það geti verið erfitt að
ganga í mikilli umferð í grennd
við stóru kaupstaðina.“
Annars telja þeir félagar að
það verði erfiðast að byrja; að
koma sér af stað. Og svo er rétta
hugarfarið vitaskuld mikilvægt.
„Við verðum að passa að verða
ekki leiðir á þessu,“ segja þeir og
bæta við hlæjandi að þeir hafi
reynt að hittast sem minnst síð-
ustu vikur til að verða síður leiðir
hvor á öðrum meðan á göngunni
stendur.
Þeir eru komnir í startholurnar
og vildu helst að mánudagurinn
20. júní væri á morgun en ekki
eftir tvær vikur. „Það væri gott ef
svo væri, þá gætum við byrjað að
ganga.“
Dorrit til verndar
Undirbúningur göngunnar hefur
gengið vel en hann hefur staðið
frá því í janúar. Bjarki og Guð-
brandur hafa leitað stuðnings hjá
fólki og fyrirtækjum og alls stað-
ar hefur þeim verið vel tekið þó
að framlögin hafi verið mishá og
stundum engin. „Í upphafi tók
fólk okkur meira í gríni en al-
vöru,“ segir Bjarki sem hlakkar
til að vera laus við undirbúning-
inn.
Þeir hafa leitað eftir stuðningi
til að standa straum af kostnaðin-
um við gönguna, sem helst felst í
fæði og gistingu, en eru ekki í
áheitasöfnun. „Markmið göngunn-
ar er ekki að safna peningum. Við
erum bara að reyna að komast
kostnaðarlausir frá þessu,“ segir
Guðbrandur en bankareikningur
verður opnaður fyrir þá sem vilja
liggja þeim fjárhagslegt lið.
Sjálfir hafa þeir að mestu und-
irbúið það sem að þeim snýr en
gangan er skipulögð í samstarfi
við Sjónarhól, Íþróttasamband
fatlaðra og Íþrótta- og ólympíu-
samband Íslands.
Þeir félagar verða ekki einir í
för, með þeim verður Tómas Birg-
ir Magnússon íþróttakennari sem
eltir á bíl og veitir þeim nauðsyn-
lega aðstoð á leiðinni. Og verndari
göngunnar miklu verður Dorrit
Moussaieff forsetafrú.
Gengið gegn fordómum
Tilgangur hringgöngu Bjarka og
Guðbrands er þríþættur en allt
ber þó að sama brunni. Þeir vilja
vekja athygli á málefnum barna
með sérþarfir og sýna að hægt sé
að yfirvinna hindranir með við-
eigandi hjálpartækjum, þjálfun
og stuðningi. Þá vilja þeir stuðla
að mannvirðingu og mannlegri
reisn og heimi án aðgreiningar.
„Það verður að minnka for-
dómana í þjóðfélaginu og skapa
samstöðu meðal fólks,“ segir
Bjarki og spyr: „Hvers vegna get-
ur fólk verið haldið fordómum
gegn einhverju sem það getur
sjálft lent í á lífsleiðinni?“ Honum
er málið hugleikið enda hefur
hann fengið sinn skerf af fordóm-
um í gegnum árin. „Þeir hafa birst
mér þannig að fólk setur sama-
semmerki milli þess líkamlega og
þess andlega.“
Með öðrum orðum hefur fólk
litið svo á að eitthvað sé að í koll-
inum á Bjarka þar sem hann getur
ekki gengið beint. Það er dæmi
um hreina og klára fordóma.
Samfélagið gerir fólk fatlað
Bjarki er bjartsýnn og lífsglaður
ungur maður sem strax á æskuár-
unum einsetti sér að sigrast á fötl-
un sinni. „Þegar slíkt tekst er
maður sigurvegari og jafningi
allra,“ segir hann og gagnrýnir
hvaða augum almenningur lítur
þá sem á einhvern hátt eru frá-
brugðnir öðrum. „Það er nú einu
sinni þannig að manneskja í hjóla-
stól er ekki fötluð. Það er samfé-
lagið sem gerir hana fatlaða með
öllum hindrununum. Á þetta vilj-
um við benda og ef þjóðfélagið
kæmi með okkur og lagaði þetta
stæðu allir á jafnréttisgrund-
velli.“
Bjarki vill að allir taki öllum
eins og þeir eru og að allir taki
virkan þátt í samfélaginu.
Og í tengslum við fordómana
rifjar hann upp að fyrir fimmtán
árum var mönnum strítt fyrir að
vera með gleraugu. „Nú þykir
flott að vera með gleraugu og þau
eru í tísku. Normið er miðað út
frá tísku og tíðaranda og hver
segir að ég geti ekki komist í
tísku eftir tíu ár,“ spyr hann og
hlær dátt. Hann brosir að lífinu
og hefur einstaklega gaman af að
vera til.
Hlakka til hvers skrefs
Það krefst orku og úthalds að
ganga hringinn í kringum landið
og Bjarki og Guðbrandur hafa
undirbúið sig ágætlega á síðustu
mánuðum. Þeir hafa gengið reglu-
lega, vanalega í tvo til þrjá
klukkutíma á dag en Bjarki hefur
lengst farið í átta tíma göngutúr.
Þeir þurftu ekki að ráðast í sér-
stakt líkamsræktarátak því báðir
eru í góðu formi og til í glímuna
við þjóðveginn.
Þeir búast við að leggja að
jafnaði 24 kílómetra að baki dag
hvern en það þýðir fimm til sex
tíma daglega göngu. Þeir segja
annars að þeim liggi í raun ekkert
á og ætla því að taka lífinu með ró.
Bjarka og Guðbrandi er kunn-
ugt um tvo Íslendinga sem áður
hafa gengið hringinn í kringum
landið. Tuttugu ár eru síðan Reyn-
ir Pétur Ingvarsson vakti þjóðar-
athygli með göngu sinni en
skemmra er síðan Sverrir Þór
Sverrisson – Sveppi – gekk sömu
leið. Tvímenningarnir hafa ekki
leitað ráða hjá forverum sínum á
hringveginum en vonast til að geta
heilsað upp á Reyni Pétur þegar
þeir ganga í grennd við Sólheima
strax á fyrstu kílómetrunum.
Og þrátt fyrir að einhverjar
hindranir kunni að verða á vegi
Bjarka og Guðbrands eru þeir
hvergi bangnir. „Ég mun hlakka
til að taka hvert skref, þannig
komumst við á leiðarenda,“ segir
Bjarki og Guðbrandur kinkar
kolli til samþykkis. Svo er bara að
vona að það blási ekki mikið á
Söndunum.
Hægt verður að fylgjast með
göngunni á gangan.is og í Frétta-
blaðinu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
AR
I
KLÁRIR Í SLAGINN Félagarnir Guðbrandur og Bjarki hafa búið sig vel undir göngu sína gegn fordómum, hringinn í kringum landið.
HUGMYNDIN
FÆDDIST Á
NUDDBEKK
Það var á nuddbekk á Nuddstofu
Guðbrands Einarssonar í Laugar-
dalnum sem hugmyndin að göng-
unni kviknaði. Það var líka þar sem
Guðbrandur og Bjarki kynntust fyrir
nokkrum árum. „Ég hef nuddað fyrir
Íþróttasamband fatlaðra og Bjarki
kom fyrst til mín 2002 þegar hann
var að búa sig undir heimsmeistara-
mótið í sundi ári síðar,“ segir Guð-
brandur.
Með þeim tókst ágætur vinskapur
og eins og gengur í samræðum
manna fæddist hugmynd. „Við vor-
um bara að spjalla og allt í einu
kom upp hugmyndin um að ganga
hringinn,“ segir Bjarki og Guðbrand-
ur bætir við: „Orðatiltækið haltur
leiðir blindan kom þá upp í hugann
og þá varð ekki aftur snúið.“
BJARKI
„Ég fæddist með spasma í fótum sem
veldur því að ég get ekki gengið
beint,“ segir Bjarki sem hefur ekki lát-
ið það aftra sér í lífinu. Hann stóð í
markinu hjá HK, bæði í hand- og fót-
bolta og vann til verðlauna í báðum
greinum. Þá vann hann fjölmörg afrek
í sundíþróttinni, setti heimsmet,
komst á verðlaunapalla á stórmótum
og keppti á Ólympíumóti. Nú sinnir
hann sundþjálfun hjá Fjölni. „Ég segi
oft að eina hömlunin sé þegar lög-
reglan stoppar mig á bílnum. Ég bið
þá um að þurfa ekki að ganga eftir
línu því það er öruggt að ég fell á
slíku prófi.“ Bjarki er 23 ára Kópavogs-
búi og heldur úti heimasíðunni
bjarki.is.
GUÐBRANDUR
„Ég fékk sýkingu upp úr mislingum
þegar ég var ellefu ára,“ segir Guð-
brandur. „Sjónin var stöðug næstu
fimmtán ár á eftir en hefur svo smá
versnað síðan. Ég áttaði mig á þessu
þegar við vorum að keyra inn að
Hólmavík og ég sá ekki fiskihjallana
sem þar stóðu.“ Guðbrandur er nudd-
ari og kennari við Nuddskóla Íslands
auk þess að vera formaður Nuddara-
félagsins. Hann er frá Broddanesi á
Ströndum og sinnir þar búskapnum
með foreldrum sínum um flestar
helgar. Þangað fer hann helgina fyrir
gönguna til að veiða sel. Hann ætlar
að hafa með sér bita og gefa Bjarka
að smakka sem líst heldur illa á.
Guðbrandur er 42 ára, kvæntur og
tveggja barna faðir.
Haltur lei›ir
blindan
Eftir tvær vikur halda gó›vinirnir Bjarki Birgisson
og Gu›brandur Einarsson í göngutúr. fietta ver›ur
enginn skottúr flví fleir ætla a› ganga 1.200 kíló-
metra – hringinn í kringum landi› – á 46 dögum.
Bjarki er haltur og Gu›brandur nærri blindur. Björn
fiór Sigbjörnsson hitti flá í vikunni.